Bann við einnota plastvörum tekur gildi í dag

Frá og með deg­inum í dag er ekki heim­ilt að afhenda án end­ur­gjalds einnota bolla, glös og mat­ar­í­lát úr plasti til dæmis þegar matur og drykkur er seldur til að taka með og skal gjaldið vera sýni­legt á kassa­kvittun.

Bann við að setja til­teknar, algengar einnota vörur úr plasti á markað tekur gildi í dag. Meðal vara sem bannað er að setja á markað eru einnota bómull­arp­innar úr plasti, plast­hnífa­pör og -diskar, sogrör, hrærip­innar og blöðrust­angir. Mat­ar­í­lát, drykkj­ar­í­lát, glös og bollar úr frauð­plasti eru einnig óheimil. Und­an­tekn­ingar eru gerðar ef vörur flokk­ast sem lækn­inga­tæki.

Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Bannið byggir á breyt­ingu á lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir, sem Alþingi sam­þykkti árið 2020 og miðar að því að draga úr notkun óþarfa plasts í sam­fé­lag­inu.

Gjaldið verður að vera sýnilegt á kassakvittun

Þá er ekki heim­ilt að afhenda án end­ur­gjalds einnota bolla, glös og mat­ar­í­lát úr plasti til dæmis þegar matur og drykkur er seldur til að taka með og skal gjaldið vera sýni­legt á kassa­kvittun.

[links]Fram kemur hjá Stjórn­ar­ráð­inu að á mark­aði séu fáan­legar stað­göngu­vörur sem eru margnota eða inni­halda ekki plast og nota megi í stað þeirra vara sem breyt­ing­arnar taka til. „Þá hafa versl­anir staðið sig vel í að hætta að bjóða upp á einnota plast­poka á afgreiðslu­svæðum (kassa­svæði) í sam­ræmi við plast­poka­bannið. Mik­il­vægt er að dregið verði enn frekar úr notkun á einnota burð­ar­pokum úr öðrum efnum, svo sem pappír, og ráðu­neytið mun í haust halda áfram vinnu með versl­un­inni og Umhverf­is­stofnun við að inn­leiða margnota lausnir.“

Stjórn­völd gáfu út síð­ast­liðið haust aðgerða­á­ætlun í plast­málum, Úr viðjum plast­s­ins, þar sem settar eru fram 18 aðgerðir til þess að draga úr plast­notkun, auka end­ur­vinnslu þess og sporna gegn plast­mengun í haf­inu. Þær breyt­ingar sem nú taka gildi eru hluti af þess­ari áætlun, að því er fram kemur hjá Stjórn­ar­ráð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hringrásarhagkerfið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár