Magnús Geir: Ekki tilefni til afsökunarbeiðni frá RÚV

Magnús Geir Þórð­ars­son útvarps­stjóri hefur svarað bréfi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morgun. Þar fór Sig­mundur Davíð fram á afsök­un­ar­beiðni frá RÚV vegna þess hvernig komið hafi verið fram við hann og konu hans.

Magnús Geir vísar þessu á bug í bréfi sínu, sem birt­ist á vef RÚV. Hann seg­ist marg­sinnis hafa farið yfir umfjöllun RÚV um Panama­skjölin og Sigmund Davíð með Rakel Þor­bergs­dóttur frétta­stjóra og ætið blasi það sama við: „frétta­gildi máls­ins er ótví­rætt og það átti erindi við almenn­ing í land­inu. Þær upp­lýs­ingar sem fram komu í umræddum þætti standa og hafa ekki verið hraktar. Með umræddum frétta­flutn­ingi var Rík­is­út­varpið að sinna sínu hlut­verki og skyldum. Því er ekki til­efni til afsök­un­ar­beiðni Rík­is­út­varps­ins vegna máls­ins.“

Fjöl­miðlar eigi að vera full­trúar almenn­ings og þeim beri að spyrja kjörna full­trúa út í mál­efni er hann varða. Það sama eigi við um Sigmund Davíð og aðra kjörna full­trúa. „Sig­mundur Davíð hefur ítrekað fengið tæki­færi til að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi og fjallað hefur verið um þau í miðlum RÚV.“

Magnús Geir segir að störf Rík­is­út­varps­ins séu opin­berar og almenn­ingur geti lagt sjálf­stætt mat á þau en stofn­unin njóti yfir­burða­trausts meðal almenn­ings sam­kvæmt mæl­ingum.

„Ef almenn­ingur er ósáttur við til­tekin atriði í frétta­flutn­ingi, þá tekur RÚV fús­lega við athug­semdum og svarar með form­legum hætti. Ef við­kom­andi er ósáttur við þá afgreiðslu sem hann fær hjá stofn­un­inni, þá er hægt að beina mál­inu til sjálf­stæðrar siða­nefndar sem leggur sjálf­stætt mat á fram­göngu starfs­manna RÚV en að auki má benda á að allir geta skotið málum til Blaða­manna­fé­lags Íslands. Ef þing­mað­ur­inn telur á sig hallað þá hvet ég hann til að beina málum í þennan form­lega far­veg sem er til staðar fyrir hann eins og aðra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár