Systurnar játa að hluta

Hlín Ein­ars­dóttir ját­aði brot sín í tengslum við til­raun til að kúga fé út úr þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, við þing­fest­ingu máls­ins í hér­aðs­dómi í dag. Malín Brand, systir hennar, ját­aði hlut­deild í brot­inu en neit­aði sam­verkn­aði. Þetta kemur fram á mbl.is.

Syst­urnar neit­uðu báðar sök í öðru máli þar sem þær eru ákærðar fyrir fjár­kúgun gegn fyrr­ver­andi sam­starfs­manni Hlínar. Hlín sagð­ist vera sak­laus af þeim lið eins og hann væri settur fram. Fram kemur í ákærunni gegn þeim að þær hafi haft 700 þús­und krónur af mann­inum með hót­unum um að Hlín myndi leggja fram kæru hjá lög­reglu fyrir nauðgun ef hann greiddi þeim ekki. Malín ræddi við mann­inn nokkrum sinnum og hún tók við pen­ing­unum í tvennu lagi.

Syst­urnar voru hand­teknar í aðgerðum lög­regl­unnar í byrjun júní í fyrra, en þær höfðu, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá lög­reglu, sent bréf heim til Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og kraf­ist þess að hann greiddi þeim til­tekna upp­hæð. Í ákærunni kemur fram að bréfin hafi verið tvö, hið fyrra var sent til aðstoð­ar­manns Sig­mundar Davíðs, Jóhann­esar Þórs Skúla­sonar, og inni­hélt hótun um að birtar yrðu opin­ber­lega upp­lýs­ingar um afskipti Sig­mundar Dav­íðs af fjár­hags­mál­efnum Vef­press­unar ehf., fjöl­miðla­sam­steypu und­ir­ ­stjórn Björns Inga Hrafns­son­ar, fyrr­ver­andi unnusta Hlín­ar. Til að kom­ast hjá því yrði Sig­mundur Davíð að greiða 7,5 millj­ón­ir króna og afhenda þær þriðju­dag­inn 25. maí í fyrra. Ekki kom hins vegar fram í þessu bréfi hvar afhenda ættið féð, og bréfið var ekki opnað fyrr en 1. júní, eftir að syst­urnar höfð­u verið hand­tekn­ar.

Í milli­tíð­inni hafði Hlín póst­lagt annað bréf til Sig­mund­ar Da­víðs, en stílað á eig­in­konu hans, Önnu Sig­ur­laugu Páls­dótt­ur. Í seinna bréf­inu var búið að hækka fjár­hæð­ina í átta millj­ónir króna og með því fylgdu „fyr­ir­mæli um af­hend­ing­ar­máta, gps-hnit og ljós­myndir af afhend­ing­ar­staðn­um, sem var við Krýsu­vík­ur­veg í Hafn­ar­firð­i,“ að því er segir í á­kærunni á hendur systr­un­um. Bréfið barst á heim­ili þáver­and­i ­for­sæt­is­ráð­herra þann 28. maí í fyrra, og degi síðar vor­u ­syst­urnar hand­teknar við Krýsu­vík­ur­veg, eftir að þær höfð­u ­sótt pakkn­ingu í tösku sem þær töldu inni­halda umkrafða greiðslu. Fram kemur í ákærunni að Hlín hafi ritað bréfin en Malín prent­að þau út.

Í til­kynn­ingu lög­regl­unn­ar í fyrra kom jafn­framt fram að þær hefðu játað við yfir­heyrslu að hafa sent bréfið heim til þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Það var svo í kjöl­far þess að til­raunin til fjár­kúg­unar gegn for­sæt­is­ráð­herra komst í hámæli sem hinn mað­ur­inn kærði syst­urnar til lög­reglu, og Hlín lagði fram kæru á hendur mann­inum fyrir nauðgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár