Nýnasistasíða með íslensku léni leiðir til sögulegs fjölda uppsagna

Rík­is­lög­reglu­stjóri tekur ákvörðun um hvort loka eigi nas­ista­síð­unni The Daily Stormer eða ekki. Fram­kvæmda­stjóri ISNIC seg­ist skilja þær miklu til­finn­ingar sem eru undir í mál­inu og að mjög margir hafi sagt upp íslenskum lénum sínum.

Hefur flutt síðuna oft
Hefur flutt síð­una oft Banda­ríski nýnast­inn Andrew Anglin er mað­ur­inn á bak við The Daily Stormer og hefur hann oft­sinnis flutt síð­una á milli landa, meðal ann­ars var hún með rúss­neskt lén um tíma.

„Lög­reglan á erfitt með að loka þess­ari vef­síðu, en það er mögu­legt fyrir lög­regl­una að segja okkur að loka lén­inu,“ segir Jens Pétur Jensen, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins ISNIC sem sér um utan­um­hald og skrán­ingu á lénum sem enda á .is, aðspurður um hvaða aðgerðir fyr­ir­tækið hefur gripið til út af skrán­ingu nýnas­ista­síð­unnar The Daily Stormer. Jens segir að fyr­ir­tækið hafi bent rík­is­lög­reglu­stjóra á skrán­ing­una á síð­unni og beðið hana um að taka ákvörðun um það hvort leyfa beri lénið eða ekki. MBl.is sagði fyrst frá mál­inu og hefur Grapevine einnig fjallað tals­vert um það. 

Hatursáróður er lögbrot

Dreifing á hat­ursá­róðri gegn fólki á grund­velli þjóð­ernis eða kyn­þáttar er bönnuð sam­kvæmt lögum á Íslandi og þarf lög­reglan því að taka mið af því þegar metið er hvort efnið á síð­unni feli í sér lög­brot eða ekki. „Við beinum bara þeirri fyr­ir­spurn til lög­regl­unnar um hvort þarna sé um að ræða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár