Mynd: EPA

Vaxandi spenna í Taívan-sundinu

Kín­verski her­inn hefur aukið þunga her­æf­inga sinna í nágrenni Taívans á síð­ustu mán­uðum og náðu her­æf­ingar þeirra í háloftum Taívans hámarki í októ­ber.

Síð­ast­lið­inn októ­ber flaug kín­verski her­inn tutt­ugu og fimm sinnum inn fyrir taí­vanska loft­helgi­svæðið. Spennan milli Taívan og Kína er ekki aðeins bundin við her­æf­ingar kín­verska hers­ins. Emb­ætt­is­menn beggja ríkja lentu í slags­málum á Fídjí­eyjum síð­ast­lið­inn 8. októ­ber sem end­aði með spít­ala­inn­lögn eins emb­ætt­is­manns frá Taívan. Taívönsk yfir­völd segja atvikið hafa átt sér stað á versl­un­ar­skrif­stofu Taívans á Fídjí­eyjum - sem er í raun sendi­ráðið þeirra. Kínversk stjórn­völd halda því hins vegar fram að atvikið hafa átt sér stað á almanna­færi, eftir að taí­vönsku emb­ætt­is­menn­irnir ögr­uðu þeim kín­versku. Báðar hliðar vilja meina að emb­ætt­is­menn þeirra hafi slasast í átök­unum.

Í ljósi auk­innar spennu í Taívan sund­inu hvatti for­seti Taívans, Tsai Ing-Wen, kín­versk stjórn­völd í ræðu sinni, tveimur dögum eftir slags­málin, til þess að draga úr her­skárri afstöðu sinni og hvatti til frið­sam­legrar við­ræðna í stað­inn. Stuttu síðar birti kín­verska rík­is­sjón­varps­stöð­inni CCTV mynd­band af her­æf­ingum kín­verska hers­ins í Suður-Kínahafi. Líklegt þykir að birt­ing mynd­bands­ins hafi verið ætluð til að senda skýr skila­boð til Taívans og Banda­ríkj­anna, sem er mik­il­væg­asti banda­maður Taívans.

Kínversk stjórnvöld líta á Taívan sem órjúfanlegan hluta Kína

Rík­is­stjórn alþýðu­lýð­veld­is­ins Kína hefur ávallt litið á eyj­una Taívan sem órjúf­an­legan hluta af Kína og á sig sem hið eina rétt­mæta stjórn­vald eyj­ar­innar. Taívan hefur hins vegar í raun verið sjálf­stætt ríki síðan Kín­verski þjóð­ern­is­flokk­ur­inn (Kuom­in­tang) flúði til eyj­unnar eftir ósigur í kín­versku borg­ara­styrj­öld­inni árið 1949.

Þá flúðu 1,2 millj­ónir Kínverja af meg­in­land­inu en fyrir bjuggu 6 millj­ónir manns á eyj­unni og stór hluti þeirra voru etnískir Han Kín­verjar. Á þeim tíma má segja að Kína hafi klofnað í tvennt, í Alþýðu­lýð­veldið Kína á meg­in­land­inu og Lýð­veldið Kína í Taívan. Á þessum tíma gerðu kín­versku lýð­veldin tvö bæði til­kall til land­svæðis meg­in­lands Kína og Taívans. Sú afstaða hefur lítið breyst á meg­in­land­inu en stjórn­völd í Taívan hættu að gera til­kall til meg­in­lands­ins fljót­lega eftir lýð­ræð­i­svæð­ingu eyj­unnar, sem átti sér stað í lok níunda og byrjun tíunda ára­tugar síð­ustu aldar.

Í dag er Taívan, sem ennþá heitir form­lega Lýð­veldið Kína, til­tölu­lega frjáls­lynt lýð­ræð­is­ríki og er meðal ann­ars eina landið í Asíu sem leyfir hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra. Íbúar eyj­unnar eru rúm­lega 23 millj­ónir í dag sem líta í auknu mæli á sig sem Taí­van­búa en ekki Kínverja. Árið 2020 skil­greindu 67 pró­sent íbúa Taívan sig ein­ungis sem Taí­van­búa, tæp­lega þriðj­ungur sem bæði Taí­van­búa og Kínverja en ein­ungis 2,4 pró­sent sem Kínverja, að því er kemur fram í árlegri könnun á vegum Kosn­inga­mið­stöðvar Chengchi Háskóla í Taívan.

Xi Jinping er forseti Kína.
Xi Jinping er for­seti Kína.

Á síð­ustu ára­tugum hafa kín­versk stjórn­völd iður­lega talað um frið­sam­legar aðferðir til þess að ná yfir­ráðum yfir eyj­unni. Hins vegar eftir að Xi Jinping tók við sem for­seti Kína hefur hann sett aukna pressu á sam­ein­ing­una yfir Taívan sundið og hefur tekið það skýrt fram að Kína og Taívan þurfi og muni sam­ein­ast, með valdi ef til þarf. Sam­ein­ingin er hluti af fram­tíð­ar­sýn Xi Jinping um að hefja Kína aftur til fyrri dýrðar, sem mun ekki ger­ast fyrr en kín­verska þjóðin er sam­einuð á ný.

Frá viðskiptum til stjórnmála

Eftir flótta kín­verska þjóð­ern­is­flokks­ins (Koumingtang) til Taívans voru engin sam­skipti, við­skipti eða ferða­lög milli Taívans og Kína. Það breytt­ist árið 1992 þegar báðir aðilar við­ur­kenndu hin svo­kall­aða „92 sam­hljóðan”. Þar sam­þykktu bæði ríkin að aðeins væri til eitt Kína en þau leggðu þó ólíkan skiln­ing í hvort það vitn­aði í Alþýðu­lýð­veldið Kína eða Lýð­veldið Kína.

Sátt­mál­inn gerði yfir­völdum á meg­in­landi Kína og Taívan kleift að auka sam­skipti, ferðir og við­skipti, án þess að ráða úr deil­unni um full­veldi Taívans og Kína. Stjórn­völdin í Peking von­uð­ust til þess að aukin sam­skipti og verslun myndi leiða til frið­sam­legrar sam­ein­ingar yfir sundið. Við­skipti hafa vissu­lega stór­auk­ist yfir Taívan sundið og er meg­in­land Kína í dag stærsti við­skipta­fé­lagi Taívans. Aukin við­skipta­tengsl hafa hins vegar ekki leitt til póli­tískrar sam­ein­ingar. Í dag þykir það nán­ast ómögu­legt að frið­sam­leg sam­ein­ing muni eiga sér stað í bráð. Í mars árið 2020, sögð­ust aðeins 0,8% íbúa vilja sam­ein­ast meg­in­land­inu í náinni fram­tíð í könnun sem var fram­kvæmt af meg­in­lands­ráð­inu í Taívan.

Sigur Tsai Ing-Wen í forsetakosningunum í Taívan og refsiaðgerðir kínverskra stjórnvalda

Samband Kína og Taívans versn­aði til muna í kjöl­far sigur Tsai Ing-Wen, for­seta­fram­bjóð­enda Lýð­ræð­is­lega fram­fara­flokks­ins, í for­seta­kosn­ing­unum í Taívan árið 2016. Eftir sigur hennar þrýstu stjórn­völd í Peking á hana til þess að stað­festa “92 sam­stöð­una”, sem hún neit­aði að gera. Tvö af hennar helstu stefnu­málum voru að gera taí­vanskan efna­hag minna háðan Kína og að standa vörð um „de-facto” sjálf­stæði Taívans.

Kína brást við neitun Tsai á „92 sam­hljómnum” með því að hrinda í fram­kvæmt marg­þættum aðferðum til þess að refsa og þvinga Taívan til und­ir­gefni. Peking hefur til dæmis dregið úr fjár­fest­ingu og túrisma í Taívan, ásamt því að tak­markað getu þeirra til að taka þátt í ýmsum alþjóð­legum stofn­unum. Að mati kín­verskra stjórn­valda má rekja spenn­una milli Taívans og Kína til höfn­unar Tsai og flokks hennar á “92 sam­stöð­unni” og sam­særi þeirra við erlend öfl.

Stuðningur Bandaríkjanna við Taívan

Þegar kín­versk stjórn­völd tala um sam­særi Taívans við erlend öfl er átt við sam­band Banda­ríkj­anna og Taívans. Banda­ríkin eru mik­il­væg­asti banda­maður Taívans þrátt fyrir að við­ur­kenna eyj­una ekki sem sjálf­stætt ríki. Stefna Banda­ríkj­anna í mál­efnum tengd Taívan deil­unni í gegnum tíð­ina hefur ein­kennst að stefnu­mið­aðri tví­ræðni. Banda­ríkin hafa aldrei skuld­bundið sig að koma Taívan til varnar ef kín­verski her­inn ræðst inn en hafa aldrei tekið það af borð­inu. Þau hafi stutt eyj­a­ríkið með veg­legri vopna­sölu í gegnum árin og komu þeim m.a. til varnar þegar Kína ögraði Taívan með eld­flauga­til­raunum árið 1996. Þá sendi stjórn Bill Clintons stærsta her­flot­ann sem Banda­ríkin höfðu sent til Asíu síðan í Víetnam stríð­inu.

Þrátt fyrir að Banda­ríkin við­ur­kenni ekki Taívan sem sjálf­stætt ríki, þá var eyj­a­ríkið í ell­efta sæti yfir stærstu við­skipta­fé­laga Banda­ríkj­anna árið 2019. Land­fræði­leg stað­setn­ing Taívans skiptir einnig miklu máli fyrir hags­muni Banda­ríkj­anna á Kyrra­hafs- og Asíu­svæð­inu. Ef Kína myndi ná yfir­ráðum yfir Taívan myndi það hafa miklar afleið­ingar fyrir valda­jafn­vægið á svæð­inu og veikja stöðu Banda­ríkj­anna þar. Það myndi veita Kína leið til Kyrra­hafs­ins og þar gætu her­flug­vélar þeirra, skip og eld­flaugar ógnað banda­rískum svæðum á borð við Gvam og mögu­lega Hawaii. Kína gæti einnig ógnað Japan frá Taívan, þar sem Banda­ríkja­menn eru með tugi þús­unda her­mann.

Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, hefur sýnt Taívan mikinn stuðning.
Donald Trump, frá­far­andi for­seti Banda­ríkj­anna, hefur sýnt Taívan mik­inn stuðn­ing.

Eins og stjórn­mála­skýrendur hafa bent á, kemur lítið á óvart að stuðn­ingur við Taívan er eitt af fáum mál­efnum sem báðir stóru flokk­arnir í Banda­ríkj­unum eru í meg­in­at­riðum sam­mála um. Í stjórn­ar­tíð Trumps hefur þingið reglu­lega sam­þykkt lög­gjöf til að bæta varnir Taívans og auka alþjóð­leg áhrif þeirra sem bæði Demókratar og Repúblikanar hafa sam­þykkt sam­hljóma.

Fáir for­setar Banda­ríkj­anna hafa sýnt Taívan jafn mik­inn stuðn­ing eins og Donald Trump. Banda­ríkin hafa sent tvo hátt­setta emb­ætt­is­menn í opin­bera heim­sókn til Taívans síðan í ágúst á þessu ári, Kína til mik­illar óánægju. Einnig hefur Banda­ríkja­stjórn í valda­tíð Trumps sent her­skip um Taívan sundið, opnað nýja skrif­stofu í Taívan og selt Taívan vopn fyrir millj­arða Banda­ríkja­doll­ara. Til dæmis seldu Banda­ríkin Taívan nýjar F-16 orr­ustu­þotur fyrir 8 millj­arða Banda­ríkja­doll­ara árið 2019.

Vopna­sala Banda­ríkj­anna til Taívans er engin nýlunda í Banda­rískum stjórn­málum, þó Trump hafi vissu­lega verið ófæln­ari en fyr­ir­renn­arar sínir Barack Obama, George W. Bush og Bill Clinton, að sam­þykkja veg­legri vopna­sölur til Taívans. Vopna­sala til Taívans hefur yfir­leitt verið rök­studd með vitnun í Taívan lögin sem voru sam­þykkt árið 1979, fljót­lega eftir að Banda­ríkja­stjórn rauf stjórn­mála­sam­band sitt við Taívan í þágu Kína. Lögin hafa lagt grunn­inn að óform­legu stjórn­mála­sam­bandi Banda­ríkj­anna og Taívan allt til dags­ins í dag. Þau fela meðal ann­ars í sér að fram­tíð Taívans verði leyst með frið­sam­legum hætti og aðeins með sam­þykki taí­vönsku þjóð­ar­innar. Í lög­unum kemur einnig fram að öll atlaga Kína til þess að ráð­ast á Taívan sé alvar­legt áhyggju­efni Banda­ríkj­anna.

Kínversk stjórnvöld hafa harðlega gagnrýnt samskipti Bandaríkjanna og Taívan

Kínversk stjórn­völd hafa harð­lega gagn­rýnt sam­skipti Banda­ríkj­anna og Taívans, einkum og sér í lagi vopna­söl­una. Zhao Lijian, tals­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í Kína sagði að vopna­salan „skaði full­veldi og örygg­is­hags­muni Kína veru­lega, sendir röng merki til sjálf­stæð­is­sinna í Taívan og stór­skaði sam­band Kína og Banda­ríkj­anna og frið og stöð­ug­leika í Taívan sund­inu.”

Hann bætti við að Kína muni bregð­ast við á lög­mætan og nauð­syn­legan hátt. Einnig gagn­rýndi tals­maður kín­verska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, Wang Wenbin, heim­sóknir banda­rískra emb­ætt­is­manna harð­lega. Hann benti á að Taívan deilan væri mik­il­væg­asta og við­kvæm­asta vanda­málið í sam­skiptum Banda­ríkj­anna og Kína og bað Washington um að stöðva hvers konar opin­ber sam­skipti til þess að koma í veg fyrir alvar­legan skaða á sam­bandi Banda­ríkj­anna og Kína.

Þrátt fyrir að nán­ara sam­band Taívans og Banda­ríkj­anna er ljóst að Taívan gerir sér grein fyrir hætt­unni sem gæti fylgt of nánum sam­skiptum ríkj­anna. Utan­rík­is­ráð­herra Taívans, Joseph Wu, sagði í við­tali við frétta­stofu NPR síð­ast­lið­inn sept­em­ber að Taívan myndi ekki sækj­ast eftir því að koma á fót form­legu stjórn­mála­sam­bandi við Banda­ríkin. Það myndi tví­mæla­laust gefa Taívan aukna við­ur­kenn­ingu á alþjóða­vísu en væri of ögrandi skref í augum kín­verskra stjórn­valda.

Mun Kína að ráðast inn í Taívan?

Það eru skiptar skoð­anir á til­gangi her­æf­inga kín­verskra hers­ins í nærum­hverfi Taívans og hvort þær séu raun­veru­lega merki þess að Kína sé að und­ir­búa sig fyrir inn­rás. Það þykir hins vegar ólík­legt að Kína muni ráð­ast til atlögu á næst­unni. Kharis Templeman, lektor í Austur-Asíu­fræðum við Stanford Háskól­ann, færði rök fyrir því í grein sinni fyrir The Diplomat að her­æf­ingar kín­verska hers­ins væri ekki merki um að Kína ætl­aði að ráð­ast inn í Taívan. Heldur væri það merki um veik­leika kín­verskra stjórn­valda til þess að leysa úr Taívan deil­unni með öðrum leiðum. Eins og kom fram fyrr í frétta­skýr­ing­unni hefur við­leitni kín­verskra stjórn­valda til að sam­ein­ast Taívan ekki skilað til­settum árangri. Templeman bendir á að stjórn Xi Jinping sé búin að mála sig út í horn þegar kemur að Taívan og eina leiðin þeirra til þess að sýna óánægju sína með sam­skipti Banda­ríkj­anna og Taívans sé að ógna þeim með auknum her­æf­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár