Ísland í metasúpunni í Frakklandi

Ragnar Sigurðsson varnarmaður í íslenska landsliðinu.
Ragnar Sig­urðs­son varn­ar­maður í íslenska lands­lið­inu. Mynd: EPA

Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu er nú þegar búið að ná óhemju góðum árangri á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fer í Frakk­landi. Íslend­ingum var ekki spáð góðu gengi á mót­inu og mættu íslensku stuðn­ings­menn­irnir með hóf­legar vænt­ingar til Strák­anna okkar fyrir fyrsta leik­inn í Saint Étienne um miðjan júní.

Jafn­tefli gegn Portú­gölum og ömur­leg við­brögð Cristiano Ronaldo í kjöl­far leiks­ins urðu til þess að það hlakk­aði í áhorf­endum, bæði hér í Frakk­landi og heima á Íslandi. Íslenska liðið var búið að ná góðum úrslitum gegn stærstu stjörnu fót­bolta­heims­ins í Evrópu, og félögum hans í portú­galska lið­inu. „Íslend­ingar eiga ekki eftir að gera neitt á þessu móti,“ var haft eftir fúlum Ronaldo eftir jafn­teflið.

Ísland gerði svo annað jafn­tefli gegn Ung­verjum í Marseil­les og þótti stuðn­ings­mönnum og leik­mönnum Íslands það heldur svekkj­andi. Eitt stig úr þeim leik gerði það hins vegar að verkum að nú var Ísland komið annað stig í riðla­keppn­inni. Sigur gegn Aust­ur­ríki í París gerði þau stig fimm og tryggði Íslend­ingum far­seðil í útslátt­ar­keppni móts­ins.

Metasúpan mikla

Stuðn­ings­menn Íslands mættu enn á ný til Suður-Frakk­lands með hóf­legar vænt­ingar fyrir leik­inn gegn Eng­lend­ingum í Nice. Leikur gegn svona stór­þjóð í knatt­spyrnu í sextán liða úrslitum ætti eftir að verða erf­iður. Sumir höf­uðu hins vegar það á orði að Eng­lend­ingum hefði nú aldrei gengið neitt sér­stak­lega á stór­mótum, eins og rekið var í Kjarn­anum um síð­ustu helgi. Ein­hverjir ósk­uðu sér það heit­ast að Ísland mundi halda jafn­tefli út fulla fram­leng­inu svo úrslitin myndu ráðst í víta­spyrnu­keppni. Það kom auð­vitað ekki til þess því Ísland kláraði leik­inn 2-1 í venju­legum leik­tíma. Ísland mætir þess vegna Frökkum í París annað kvöld.

Í kjöl­far leiks­ins gegn Englandi hefur Ísland hlotið athygli langt útfyrir landa­mæri fót­bolta­heims­ins og orðið umtals­efni í vin­sælum spjall­þáttum vest­an­hafs auk þess að myndum af lið­inu og stuðn­ings­mönnum þess hefur verið slegið upp á for­síðum dag­blaða um alla Evrópu.

Leik­ur­inn gegn Englandi var ekki aðeins merki­legur vegna þess að Ísland valt­aði yfir stór­þjóð heldur einnig vegna þess að Ísland heldur áfram að setja ný met á þessu stór­móti. Leik­ur­inn gegn Englandi setti til­dæmis met sem eng­inn var að bíða eftir að yrði bætt því viður­eignin er sú viður­eign á Evópu­móti sem er umtöl­uðst á sam­fé­lags­miðlum. Það ætti hins vegar ekk­ert að koma á óvart, enda elska Bretar að tala illa um lands­liðið sitt þegar því gengur ekki vel.

Óvæntur sigur Íslands á Englandi varð til þess að meira en 4,8 milljón tvít voru send á Twitter um leik­inn á meðan honum stóð. Það jafn­gildir 135.000 tvítum á mín­útu. Áður hafði metið verið 89.000 tvít á mín­útu eftir að Dimitri Payet skor­aði gegn Rúmenum í opn­un­ar­leik móts­ins. Aðeins þrjár millj­ónir tvíta flugu um netheima á meðan þeim leik stóð.

Metin eru, eins og okkur Íslend­ingum er tamt, lang flest „miðuð við höfða­tölu“. Við erum langt minnsta þjóðin til að keppa í loka­keppni Evr­ópu­móts­ins, við eigum lang­flesta stuðn­ings­menn miðað við höfða­tölu á loka­móti (sú tala er raun­veru­lega orðin 10 pró­sent af öllum íbúum á Íslandi) og í hvert sinn sem við komumst áfram í mót­inu bætum við eigið met um hversu langt minnsta þjóðin hefur kom­ist í mót­inu.

Ísland komið á opinbera metaskrá

Meta­list­inn á Evr­ópu­mót­unum er langur og þar er nær allt talið til sem manni dettur til hugar. Þar eru marka­hæstu þjóðir á hverju móti, yngsti og elsti leik­maður, mesti fjöldi marka­þrenna og þar fram eftir göt­unum. Og svo eru skrítin met eins og lengsti tími frá upp­hafi leiks til fyrsta marks í leik, fjöldi sjálfs­marka, fæst mörk á loka­móti og fæst mörk fengin í einu móti og lið verður meist­ari.

Svona mætti lengi telja en þegar farið er í gegnum list­ann þá má þegar finna Ísland á nokkrum stöðum.

Ísland hefur enn ekki tapað leik á stór­móti, og er um leið minnsta þjóðin til að geta stað­hæft það. Lands­liðið er eitt fimm ann­arra liða sem kom­ist hafa í átta liða úrslit EM206 án þess að tapa leik. Eins og stendur þá er Ísland í öðru sæti á list­anum yfir flest stig fyrir hvern leik. Wales (einnig í fyrsta sinn á EM) hefur fengið að jafn­aði 2,25 stig í sínum fjórum leikjum en Ísland hefur fengið tvö. Í þriðja sæti er sig­ur­sælasta þjóðin í sögu EM; Þjóð­verjar geta aðeins montað sig af 1,89 stigum í leik.

Lars Lagerback, einn þjálf­ara íslenska lands­liðs­ins er að koma sér fyrir í meta­skránni og þar með Íslandi. Lars er sá þjálf­ari sem hefur tekið þátt í flestum loka­keppnum EM eða fjórum sinnum. Hann fór með sænska lands­liðið þrisvar á árunum 2000, 2004 og 2008 og nú það íslenska árið 2016. Um leið raðar hann sér á bekk með mörgum af þekkt­ustu þjálf­urum í heimi því hann er nú að fara með sína aðra þjóð á EM. Hinir þjálf­ar­arnir hafa nær allir þjálfað stór­þjóðir sem með sanni má segja að eigi fast sæti í loka­mót­inu. Vel gert Lars!

Þá er Ísland komið í níunda sæti yfir þær þjóðir sem kom­ist hafa oft­ast í átta liða úrslit loka­keppn­innar. Við deilum því sæti með þremur öðrum þjóðum en ásamt Íslandi eru Pólland og Wales að taka þátt í fyrsta sinn á loka­móti EM.

Svo eru leið­in­legri met sem hægt er að telja upp. Ísland á eitt níu sjálfs­marka sem skoruð hafa verið í sögu loka­móts EM. Þrjú þeirra hafa komið í keppn­inni í ár og Birkir Már Sæv­ars­son er svo óhepp­inn að vera einn þeirra. Þá hefur Ísland aldrei tekið þátt í víta­spyrnu­keppni, en dæmi hver um sig hvort það sé gott eða slæmt.

Nokkuð óraun­hæft er að segja að Ísland eigi séns í önnur met á þess­ari móta­skrá. Ekki strax í það minnsta því sumar þjóð­irnar hafa verið að keppa á loka­móti EM í marga ára­tugi.

Frakkland - Ísland

Eins og áður sagði þá mætir Ísland gest­gjöf­unum frá Frakk­landi í París annað kvöld. Það verður í annað sinn sem þessar þjóðir mæt­ast á Stade de France, síð­ast lék Ísland gegn Frökkum þar í und­ankeppni EM 2000 og tap­aði Ísland þá með tveimur mörkum gegn þremur frá Frökk­unum eftir spenn­andi leik.

Frakkar eiga raunar mjög góðu gengi að fagna á Stade de France, hafa spilað þar 80 sinnum, unnið 49 leiki og tapað 10. Franska lands­liðið hefur heldur aldrei tapað á þessum velli í loka­keppni stór­móts; unnið fjórum sinnum og gert eitt jafn­tefli gegn Ítalíu í úrslit­unum árið 1998 og unnið leik­inn í víta­spyrnu­keppni.

Ísland á yfir höfuð ekki góðu gengi að fagna gegn Frökkum í keppni á vegum evr­ópska knatt­spyrnu­sam­bands­ins. Fimm leikjum hafa Íslend­ingar tapað með marka­töl­una 17-2 fyrir Frökkum. En! Ísland hefur heldur ekki átt góðu gengi að fagna, yfir höfuð, þar til fyrir fáeinum árum.

Áður en Ísland lék sinn fyrsta leik á EM 2016 birti Kjarninn átta lyk­il­at­riði um mótið. Þar var sagt frá þeim stuðlum sem helstu veð­bankar voru að gefa á að Ísland myndi lyfta bik­arnum eftir úrslita­leik­inn 10. júlí. Stuð­ull­inn var þá 125/1 en er nú 40/1. Við erum reyndar með hæstan stuðul af þeim þjóðum sem eftir eru í keppn­inni. Frakkar voru fyrir mót taldir sig­ur­stran­leg­astir í mót­inu og eru það enn með stuð­ul­inn 11/4.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár