762 bækur

Útlend­ingar, svert­ingjar, fram­andi, sígaunar. Stela, hóta, svíkja, lemja. Ves­al­ingar og ómerki­legir aum­ingjar. Þetta orð­færi þykir ekki góð lat­ína í dag, en konan sem not­aði þessi orð er einn mest lesni höf­undur sög­unnar. Enid Blyton.

Bækur Enid Blyton hafa hafa selst í rúmlega 600 milljónum eintaka og verið þýddar á meira en 90 tungumál.
Bækur Enid Blyton hafa hafa selst í rúm­lega 600 millj­ónum ein­taka og verið þýddar á meira en 90 tungu­mál. Mynd: EPA

Kjarn­inn end­­­­­­­ur­birtir nú valda pistla Borg­þórs Arn­gríms­­­­­­­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þætt­­­­­­­ir. Frétta­­­­­­­skýr­ingar Borg­þórs njóta mik­illa vin­­­­­­­sælda og sú sem er end­­­­­­­ur­birt hér að neðan var upp­­­­­­­haf­­­­­­­lega birt þann 21. sept­em­ber 2021

Enid Mary Blyton hefur verið lýst sem rit­vél á yfir­snún­ingi. Hún skrif­aði upp undir 10 þús­und orð á dag. Á hverjum ein­asta degi. Afköstin voru slík að ýmsir héldu því fram að hún hefði fjölda manns í vinnu við skrift­irnar en öllu slíku neit­aði Enid Blyton. Eitt árið voru bæk­urnar 50. Til við­bótar bók­unum 762 sem hún sendi frá sér um ævina skrif­aði hún ótelj­andi blaða­greinar um nán­ast allt milli him­ins og jarðar. Um ára­bil var hún rit­stjóri, og jafn­framt aðal­höf­undur barna­tíma­rits­ins Sunny Stories. Afköstin voru með ólík­indum. Bækur Enid Blyton hafa selst í hund­ruðum millj­óna ein­taka og verið gefnar út á að minnsta kosti 90 tungu­málum.

Enid Blyton var fædd í suð­ur­hluta Lundúna 11. ágúst 1897, elst þriggja systk­ina. Faðirinn var sölu­maður, seldi bús­á­höld og föt, móð­irin var heima­vinn­andi. Nokkurra mán­aða gömul veikt­ist Enid alvar­lega af kíg­hósta og vart hugað líf. Í minn­ingum sínum sagði Enid eftir for­eldrum sínum að hún ætti líf­gjöf­ina föð­urnum að þakka. Í æviminn­ing­unum kemur líka fram að fað­ir­inn hafi haft mik­inn áhuga á blómum, fuglum, tón­list og mynd­list. Og iðinn við að upp­fræða dótt­ur­ina og kennt henni að spila á píanó.

Íþróttir og píanó frekar en bækur

Þegar Enid Blyton var tveggja ára flutti fjöl­skyldan til Beckham, sem þá var lítið þorp sunnan við London. Enid lauk prófi frá St. Christopher skól­anum í Beckham átján ára gömul. Hún hafði ekki sér­lega mik­inn áhuga fyrir bók­lega nám­inu en því meiri fyrir íþróttum. Hún varð skóla­meist­ari í tennis og fyr­ir­liði skóla­liðs­ins í háfleik, lacrosse ( lík­ist hokkí og íshokki, leik­inn með priki með poka á end­anum). Enid var einnig efni­legur píanó­leik­ari og íhug­aði að sækja um í Guild­hall tón­list­ar­skól­anum. Sagði síðar að hún hefði ekki haft nægan áhuga fyrir að verða tón­list­ar­maður. Þegar Enid hafði lokið leik­skóla­kenn­ara­námi starf­aði hún sem leik­skóla­kenn­ari. Þar upp­götv­aði hún hve auð­velt hún átti með að segja börnum sögur, sem hún samdi jafn­óðum.

Barnahvísl

Fyrsta bók Enid Blyton kom út árið 1922, ljóða­bókin Child Whispers, Barna­hvísl. Hún hafði þá margoft fengið birt ljóð, og smá­sögur, í tíma­ritum en ekki fram til þessa tek­ist að fá útgef­anda að heilli bók. Phyllis Chase, vin­kona Enid frá skóla­ár­unum mynd­skreytti Barna­hvísl og hún átti síðar eftir að að mynd­skreyta all­margar bækur sem Enid sendi frá sér. Enid hafði þegar þarna var komið ákveðið að helga sig rit­störfum og sendi á næstu árum frá sér all­margar barna­bækur. Flestar stuttar og ríku­lega mynd­skreyttar. Sumar þeirra vöktu tals­verða athygli, enn var þó tals­vert í að henni tæk­ist að festa sig í sessi sem rit­höf­und.

Bókaflóð

Í stuttum pistli sem þessum verður að fara hratt yfir sögu. Fyrsta skáld­saga Enid Blyton í fullri lengd kom út árið 1938. Það var The Secret Island, Ævin­týra­eyjan eins og hún hét á íslensku. Bókin fékk ágæta dóma, einn breskur gagn­rýn­andi sagði hana „eins­konar Robinson Cruso bók sem þó gerð­ist í Englandi“. Ævin­týra­bæk­urnar áttu eftir að njóta mik­illa vin­sælda og á árunum fram til 1950 komu út sam­tals 6 bækur í þessum flokki. Til marks um afköstin má nefna að árið 1940 komu út 11 bækur undir hennar nafni og auk þess tvær undir dul­nefn­inu Mary Pollock (milli­nafn Enid og eft­ir­nafn þáver­andi eig­in­manns). Ugglaust hefur Enid verið skemmt þegar gagn­rýn­andi nokkur sagði að „þessar bækur hennar Mary Pollock væru svo vin­sælar að nú mætti Enid Blyton fara að vara sig“. Síðar voru bæk­urnar sem fyrst voru gefnar út undir nafni Mary Pollock , sam­tals 6 tals­ins end­ur­út­gefnar undir nafni Enid Blyton.

Þrátt fyrir að Enid Blyton væri orðin þekktur rit­höf­undur sló hún ekki slöku við. Bækurnar streymdu frá henni: Fimm bæk­urnar (Famous Five) urðu 21, Dul­ar­fullu bæk­urnar (Five find-Outers and Dog) urðu 15, Leyni­fé­lagið Sjö Saman (Secret Seven) sömu­leiðis 15 bækur. Margar fleiri mætti nefna, t.d Bald­in­tátu­bæk­urnar (The Naughtiest Girl) að ógleymdum Dodda­bók­unum, sem urðu vel á þriðja tug­inn. Sú fyrsta Doddi í Leik­fanga­landi (Noddy goes to Toyland) kom út 1949. Dodda­bæk­urnar voru ríku­lega mynd­skreyttar og Doddi og Eyrna­stór vinur hans urðu góð­kunn­ingjar millj­óna barna um allan heim. Enid Blyton lést 28. nóv­em­ber 1968.

Hugmyndir og vinnuaðferðir

Enid Blyton var ekki mikið fyrir að útskýra hvernig sögur hennar urðu til. Í blaða­við­tali sagði hún ein­hverju sinni „ég loka aug­unum í nokkrar mín­útur, með rit­vél­ina á hnjánum, reyni að tæma hug­ann. Og þá lifna per­són­urnar í huga mér, rétt eins og þær standi fyrir framan mig. Fyrsta setn­ingin kemur upp í hug­ann og þá þarf ég ekki að hugsa neitt, allt kemur af sjálfu sér“.

Vinnu­að­ferðir Enid Blyton breytt­ust lítið gegnum tíð­ina. Hún byrj­aði yfir­leitt fljót­lega eftir morg­un­mat með litlu rit­vél­ina á hnjánum og lit­skrúð­uga sjalið frá Marokkó sér við hlið. Sagði að lit­irnir í sjal­inu gæfu sér inn­blástur. Eftir stutt mat­ar­hlé var haldið áfram við skrifin, iðu­lega til klukkan fimm síð­degis. Þá voru venju­lega komin 6 til 10 þús­und orð á blað.

Hundruð milljóna bóka

Enid Blyton var einn vin­sæl­asti barna­bóka­höf­undur 20. ald­ar­innar. Bækur hennar eru þekktar um allan heim, hafa selst í rúm­lega 600 millj­ónum ein­taka og verið þýddar á meira en 90 tungu­mál. Fjöl­margar bækur hennar hafa verið þýddar og gefnar út á íslensku. Sú fyrsta kom út árið 1945. Hún nefnd­ist Sveitin heillar og er úr bóka­flokknum um Leyni­fé­lagið Sjö Saman. Sumar þeirra bóka sem út hafa komið á íslensku hafa verið prent­aðar margoft og eru enn fáan­legar.

Mismunandi sjónarmið

Á síð­ari árum hafa margir orðið til að gagn­rýna bækur Enid Blyton, fyrir þau við­horf sem þar koma fram. Stétta­skipt­ing, kynja­hlut­verk, kyn­þátta­við­horf, útlend­inga­hatur, skort á bók­mennta­legu gildi og fleira og fleira. Sögu­hetjur bókanna eru yfir­leitt af mið­stétt. Reyndar er þessi gagn­rýni ekki ný af nál­inni, árið 1960 neit­aði útgef­andi Enid Blyton að gefa út eina bóka hennar vegna orða­lags­ins. Annað for­lag gaf hins vegar út bók­ina, sem seld­ist vel og var end­ur­prentuð tvisvar. [adspot]

Aðrir segja að í bókum Enid Blyton sé að finna boð­skap um bjart­sýni og börn og ung­lingar um allan heim hafi lesið bæk­urnar sér til ánægju og afþrey­ingar og að upp­eld­is­hlut­verk bók­lest­urs verði seint ofmetið.

Höfundur þessa pistils, fæddur um miðja síð­ustu öld, gleypti í sig bækur Enid Blyton. Lifði sig inn í þann ævin­týra­heim sem þar var að finna og var ekki að velta fyrir sér bók­mennta- og upp­eld­is­gildi text­ans. Líklega dæmi­gerður les­andi.

Enid Blyton er hluti af sögu Englands og bækur hennar selj­ast enn í stórum stíl. Þess má geta að aðeins verk William Shakespe­are, Agöthu Christie og Jules Verne hafa verið þýdd á fleiri tungu­mál en bækur Enid Blyton.

Skildir og styttur

Víða um heim er að finna styttur og minn­ing­ar­skildi um ein­stak­linga sem á ein­hvern hátt hafa sett mark sitt á sög­una. Stjórn­mála­menn, oft í yfir­stærð, eru fyr­ir­ferð­ar­miklir á fótstöll­unum, þjóð­höfð­ingjar sömu­leiðis. Rit­höf­undar, lista- og vís­inda­menn kom­ast líka oft á stall. Minn­inga­skildir eru af sama meiði, gjarna settir á hús þar sem þekktir ein­stak­lingar fædd­ust, bjuggu ein­hvern­tíma á ævinni eða síð­ustu ævi­árin.

Á allra síð­ustu árum hefur orðið mikil breyt­ing á við­horfi almenn­ings víða um um lönd varð­andi slík minn­is­merki. Þessa við­horfs­breyt­ingu rekja margir til Black Lives Matter hreyf­ing­ar­innar sem stofnuð var í Banda­ríkj­unum árið 2013. Þótt hreyf­ingin hafi fyrst og fremst verið stofnuð til að vekja athygli á ofbeldi lög­regl­unnar gagn­vart þeldökkum og margs konar mis­munun í garð þeirra hafa áhrifin náð langt út fyrir þessar raðir.

Enid Blyton minningarskildirnir

Í London og nágrenni er að finna nokkra minn­ing­ar­skildi með nafni Enid Blyton. Á húsum þar sem hún bjó um lengri eða skemmri tíma. Suma skild­ina hafa við­kom­andi sveit­ar­fé­lög sett upp og gjarna til­tekið hvenær Enid Blyton bjó á þessum stað. Einn slíkur skjöldur er á húsi í Chessington sunnan við London og þar bjó Enid Blyton í upp­hafi rit­höf­und­ar­fer­ils síns. Skild­inum var komið þar fyrir að til­hlutan stofn­unar sem nefn­ist English Heritage. Sú stofnun er hálf­op­in­ber og hefur á sinni könnu menn­ing­arminjar vítt og breitt um England. Í London og nágrenni eru 950 minn­ing­ar­skildir, bláir postu­líns­skildir með hvítri áletrun og merki English Heritage.

Með sér­stöku smá­forriti (app) er hægt að nálg­ast ýmsar upp­lýs­ingar um ein­stak­ling­inn á við­kom­andi skilti. English Heritage hefur und­an­farið í sumum til­vikum breytt upp­lýs­ingum, eða bætt við þær. Meðal ann­ars upp­lýs­ing­unum um Enid Blyton. Í þessum við­bót­ar­upp­lýs­ingum má lesa að höf­und­ur­inn hafi verið gagn­rýndur, meðal ann­ars fyrir ras­isma. Sömu­leiðis er nefnt að Kon­ung­lega mynt­sláttan hafi árið 2016 hafnað því að slá sér­staka 50 pensa mynt til heið­urs Enid Blyton. English Heritage segir enn­fremur: „sumir segja að ekki sé hægt að neita þessum ásök­unum en vilja jafn­framt benda á að bækur hennar hafa glatt kyn­slóðir barna um allan heim og verið þeim hvatn­ing til að lesa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár