Mynd: Bára Huld Beck

Fagnað í Hljómskálagarðinum – Rigningin stöðvaði ekki aðdáendur íslenska landsliðsins

Íslenska lands­liðið í fót­bolta gerði jafn­tefli við Argent­ínu fyrr í dag og er ekki ofsögum sagt af því að Íslend­ingar hafi fagnað vel þeim úrslitum út um allt land og á sam­fé­lags­miðlum. Ljós­mynd­ari Kjarnans leit við í Hljóm­skála­garð­inum á meðan leik stóð.

Þrátt fyrir að hellidemba hafi verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag þegar íslenska lands­liðið mætti Argent­ínu í sínum fyrsta leik á Heims­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu í Rúss­landi þá hafði það ekki áhrif á þá fjöl­mörgu sem lögðu leið sína í mið­bæ­inn til að horfa á leik­inn. Gríð­ar­leg stemn­ing var í Hljóm­skála­garð­inum þegar ljós­mynd­ari Kjarnans gekk um svæðið og ekki var að sjá að áhorf­endur létu rign­ing­una á sig fá.

Mikill fjöldi var saman kom­inn í Hljóm­skála­garð­inum en leikir Íslands eru sýndir víða um höf­uð­borg­ar­svæðið og um land allt.

Eins og flestir vita þá gerðu Ísland og Argent­ína 1-1 jafn­tefli. Alfreð Finn­boga­son skor­aði mark Íslands en Sergio Aguero mark Argent­ínu. Hannes Þór Hall­dórs­son varði glæsi­lega víti frá stór­stjörn­unni Lionel Messi, sem íslenska liðið lok­aði nær alveg á með mögn­uðum og vel skipu­lögðum varn­ar­leik.

Þjóðhátíðarstemning í Hljómskálagarðinum
Þjóð­há­tíð­ar­stemn­ing í Hljóm­skála­garð­inum
Töluverða spennu mátti greina hjá áhorfendum.
Tölu­verða spennu mátti greina hjá áhorf­endum.

Búið var að setja upp bása þar sem hægt var að kaupa veit­ingar, sæl­gæti og fleira. Á svæð­inu voru einnig hoppu­kastal­ar og fót­bolta­völl­ur en Reykja­vík­ur­borg hef­ur veitt Prik­inu leyfi fyr­ir sölu áfeng­is í Hljóm­skálag­arð­inum vegna leikja Íslands sem þar verða sýnd­ir.

Sjá mátti á risa­skjá­inn hvar sem fólk stóð og höfðu margir nælt sér í regn­hlífar og slár til að skýla sér fyrir rign­ing­unni.

Fólk var á öllum aldri og af báðum kynjum saman komið. Margir voru mál­aðir í framan við til­efnið og máttu litir íslenska fán­ans njóta sín. Þeir full­orðnu voru ekki síður spenntir en börnin og mátti heyra söng og trommu­leik til skiptis.

Þegar líða fór að leikslokum og staðan enn 1-1 þá mátti finna spenn­una magn­ast meðal áhorf­enda. Skyldi íslenska liðið ná að halda hreinu í þessar mín­útur sem eftir eru?

Spennan magnast.
Spennan magn­ast.

Þegar dóm­ar­inn flaut­aði til leiksloka brut­ust fagn­að­ar­lætin út enda verður ekki annað sagt en að þetta sé glæsi­legur árangur hjá strák­unum – að gera jafn­tefli við eitt sterkasta lið í heimi í fyrsta leiknum á HM.

Til ham­ingju með jafn­teflið ... sig­ur­inn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið undanfarið ár