Varðhundar feðraveldisins klóra í bakkann

Eva Sig­urð­ar­dóttir er í skipu­lags­teymi Druslu­göng­unnar í ár. Hún segir mik­il­vægt að halda bar­átt­unni gegn kyn­ferð­is­of­beldi áfram og segir kyn­ferð­is­of­beldi geta gerst alls staðar.

Varð­hundar feðra­veld­is­ins klóra í bakk­ann með því að kæra þolendur fyrir meið­yrði. Þeir reyna að draga úr ofbeldi og upp­lifun fólks sem verður fyrir ofbeldi segir Eva Sig­urð­ar­dóttir í sam­tali við Kjarnann. Eva er í skipu­lags­teymi Druslu­göng­unnar í ár.

Druslu­gangan hefst klukkan 14 á laug­ar­dag­inn en varn­ings­sala byrjar klukkan 13 fyrir framan Hall­gríms­kirkju. Í ár er engin ákveðin yfir­skrift Druslu­göng­unnar en þó eru ákveðnir hlutir sem skipu­leggj­endur vilja leggja áherslu á. „Eins og í fyrra vildum við leggja áherslu á að allir geti orðið fyrir ofbeldi óháð kyni, upp­runa og stétt. Kyn­ferð­is­of­beldi getur gerst allst staðar og geta ger­endur og þolendur verið alls staðar. Við viljum vera meira inklúsív,“ segir Eva.

[adspot]„Það hefur sýnt sig í kjöl­far auk­innar umræðu að það er þörf á Druslu­göng­unni. Við sjáum magnið af ofbeldi í sam­fé­lag­inu,“ segir Eva spurð um mik­il­vægi Druslu­göng­unnar. „Við sjáum varð­hunda feðra­veld­is­ins klóra í bakk­ann með því að kæra þolendur fyrir meið­yrði. Þeir reyna að draga úr ofbeld­inu og upp­lifun fólks sem verður fyrir ofbeldi.“

Eva segir Druslu­göng­una vera mik­il­vægt vopn í bar­átt­unni gegn kyn­ferð­is­of­beldi. „Við þurfum að hlada áfram þangað til að þetta er ekki lengur partur af sam­fé­lag­inu,“ segir hún.

Aldís Schram og Sigrún Bragadóttir munu flytja ávarp

„Aldís Schram og Sigrún Braga­dóttir, hann­yrða­pönk­ari og aktí­visti munu flytja ávarp á göng­unni,“ segir Eva. Auk þess verða ýmsir við­burðir í vik­unni, til að mynda verður „Pepp­kvöld“ Druslu­göng­unnar kl 8 í kvöld í Gamla bíói. „Sá við­burður er und­ir­bún­ingur til að fá druslur til að koma saman og skemmta sér í öruggu rými,“ segir Eva.

Ýmsir tón­list­ar­menn munu spila á kvöld­inu, til að mynda Milkywhale, Countess Malaise, Girl Power hóp­ur­inn og mun kvöldið enda á DJ Völu. „Kvöldið er haldið svo fólk geti komið saman og haft gaman án þess að hafa áhyggjur,“ segir Eva.

Annað kvöld verður skilta­gerð fyrir Druslu­göng­una á Loft hosteli kl 7. „Sigrún Braga­dóttir verður með hann­yrða­tengda vinnu­stofu. Við hvetjum fólk til að mæta til að koma sínum skila­boðum áleiðis,“ segir Eva. „Þú þarft ekki að kaupa druslu­bol. Þú getur skrifað eitt­hvað á bol og verið í honum í göng­unni. Við viljum að þú takir völdin í þínar eigin hendur.“

Eva segir alla vel­komna á Druslu­göng­una. „Hún er ekki bara fyrir brota­þola eða fjöl­skyldur brota­þola heldur alla sem eru á móti ofbeldi,“ segir Eva. „Slag­ur­inn er ekki búinn og það er mik­il­vægt að mæta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

drusluganga

Skýring

Sökuð um löggu­þöggun í Druslu­viku

Á sama tíma og skipu­lagn­ing hinnar árlegu Druslu­göngu stendur sem hæst, lýsir lög­reglan í Vest­manna­eyjum því yfir að ekki verði upp­lýst um mögu­leg kyn­ferð­is­brot sem kærð verða á Þjóð­há­tíð fyrr en lög­regla telji það tíma­bært. Nítján nauðg­anir hafa verið til­kynntar á Þjóð­há­tíð frá árinu 2004. Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir ummæli sín í Frétta­blað­inu og...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár