Íslendingar eyddu minna á ferðalögum innanlands í fyrra heldur en árið 2019

Heild­ar­út­gjöld íslenskra ferða­manna inn­an­lands námu 122 millj­örðum króna í fyrra og dróg­ust saman um 14 pró­sent frá 2019. Hlutfall ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu dróst saman um rúm­lega helm­ing á tíma­bil­inu, fór úr átta pró­sentum niður í 3,9 pró­sent.

Komum erlendra ferðamanna til landsins fækkaði um 81 prósent milli 2019 og 2020.
Komum erlendra ferða­manna til lands­ins fækk­aði um 81 pró­sent milli 2019 og 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Í fyrra námu heild­ar­út­gjöld íslenskra ferða­manna á ferða­lögum inn­an­lands 122 millj­örðum króna og dróg­ust þau saman um 14 pró­sent frá árinu 2019, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Þrátt fyrir sam­drátt hefur hlut­fall útgjalda Íslend­inga af heild­ar­út­gjöldum ferða­manna ekki mælst svo hátt síðan Hag­stofan hóf að taka saman þessa töl­fræði. Útgjöld íslenskra ferða­manna námu 56 pró­sentum af heild­ar­út­gjöldum ferða­manna árið 2020 en þau námu 27 pró­sentum af heild­ar­út­gjöldum ferða­manna árið áður.

Heild­ar­út­gjöld erlendra ferða­manna náum aftur á móti 98 millj­örðum króna árið 2020 og dróg­ust þau saman um 75 pró­sent milli ára. Stærstur hluti útgjalda erlendra ferða­manna var vegna gisti­þjón­ustu eða um fimmt­ungur. Útgjöld erlendra ferða­manna í þeim flokki dróg­ust engu að síður saman um 76 pró­sent milli ára.

Alls námu útgjöld erlendra ferða­manna 98 millj­örðum króna árið 2020 og er það sam­dráttur um 75 pró­sent milli ára. Stærstur hluti útgjalda erlendra ferða­manna var vegna gisti­þjón­ustu eða um fimmt­ungur. Útgjöld erlendra ferða­manna vegna gisti­þjón­ustu dróg­ust engu að síður saman um 76 pró­sent milli ára.

Starfsfólki í ferðaþjónustu fækkaði um 31 prósent

Hlutur ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu rúm­lega helm­ing­að­ist á milli áranna 2019 og 2020. Hlut­fallið fór úr því að vera átta pró­sent árið 2019 niður í 3,9 pró­sent árið 2020. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands en í þeim er bæði tekið til­lit til útgjalda inn­lendra sem og erlendra ferða­manna á Íslandi. Útgjöld ferða­manna, bæði íslenskra og erlendra, námu 220 millj­örðum króna árið 2020 sam­an­borið við um 520 millj­arða árið áður og dróg­ust því saman um 58 pró­sent milli ára.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar tald­ist ferða­þjón­ustan þriðja stærsta atvinnu­greinin á Íslandi, sem hlut­fall lands­fram­leiðslu, á eftir heil­brigðis- og félags­þjón­ustu og heild- og smá­sölu­verslun. Á árinu 2020 hrapar ferða­þjón­ustan hins vegar niður list­ann. Tölurnar eru þó birtar með ákveðnum fyr­ir­vara á vef Hag­stof­unnar: „Þegar hlut­deild ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu er borin saman við aðrar atvinnu­greinar þarf að hafa í huga að ferða­þjón­usta er ekki skil­greind sem atvinnu­grein í hefð­bund­inni atvinnu­greina­flokkun heldur er hún sam­sett grein þar sem lagt er saman til­tekið hlut­fall af starf­semi ann­arra atvinnu­greina.“

Þá fækk­aði starf­andi ein­stak­lingum í ferða­þjónstu um 31 pró­sent árið 2020 sam­an­borið við árið 2019, úr 30.800 í 21.000. Enn meiri sam­dráttur varð í vinnu­stundum í ferða­þjón­ustu. Þær dróg­ust saman um 39 pró­sent milli ára, úr 41,2 millj­ónum vinnu­stunda árið 2019 niður í 25,3 millj­ónir árið 2020.

Spár bankanna gera ráð fyrir fleiri erlendum ferðamönnum

Samkvæmt til­kynn­ingu Hag­stof­unnar fækk­aði komum erlendra ferða­manna til lands­ins um 81 pró­sent á tíma­bil­inu sem um ræðir en alls komu tæp­lega 490 þús­und ferða­menn til lands­ins árið 2020.

Vonir standa til að með auknum bólu­setn­ingum víða um heim muni fleiri ferða­menn leggja leið sína til lands­ins í ár en í fyrra. Í nýjasta hefti Pen­inga­mála sem Seðla­banki Íslands gefur út er því spáð að á árinu muni hingað koma 660 þús­und ferða­menn. Sú spá er að vísu ögn svart­sýnni en fyrri spá bank­ans frá í febr­úar sem hljóð­aði upp á 700 þús­und ferða­menn. Ástæðan fyrir lækk­aðri spá er sú að far­ald­ur­inn reynd­ist þrá­lát­ari í helstu við­skipta­löndum Íslands heldur en útlit var fyrir þegar fyrri spá var gerð.

Lands­bank­inn sendi einni frá sér upp­færða hag­spá í maí. Í henni er gert ráð fyrir að væntur fjöldi ferða­manna á árinu 2021 verði 800 þús­und, það er nokkur hækkun frá fyrri spá bank­ans sem gerði ráð fyrir 650 þús­und ferða­mönnum.

Spá Íslands­banka er stað­sett á milli hinna spánna tveggja. Í þjóð­hags­spá bank­ans frá því í maí er gert ráð fyrir að 700 þús­und erlendir ferða­menn muni heim­sækja Ísland á árinu 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár