Fjölskyldurnar koma í heimsókn á slökkviliðsstöðina
Oft er mikið að gera um jólin þó ekki logi eldar um borg og bí. Flytja þarf marga sjúklinga sem fá leyfi til að halda jólin heima hjá sér.
Jólin vekja stórar tilfinningarÞorsteinn segir að í sjúkraflutningum verði menn vel varir við að hátíðarnar geti verið erfiður tími fyrir þá sem standi höllum fæti.Mynd: Heiða Helgadóttir
Jólahátíðirnar eru oft býsna erilsamur tími fyrir slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu, ekki vegna þess að þá logi eldar um alla borg þó, heldur vegna þess að þá er oftar en ekki mikið að gera við sjúkraflutninga. Sjúkraflutningar eru sem kunnugt er á hendi slökkviliðsins og á aðfangadag er gjarnan talsvert um að sjúklingar fái leyfi frá sjúkrastofnunum til að fara heim og halda jólin hátíðleg með fjölskyldum sínum. Því er ekki hægt að koma því við að vaktir slökkviliðsins séu fámennari en vanalegt er þó að hátíð ein að höndum beri, heldur miklu fremur þvert á móti.
Erilsamur tímiÞað er yfirleitt mikið að gera í sjúkraflutningum á aðfangadag, þegar verið er að keyra sjúklinga til síns heima til að halda jól með fjölskyldum sínum, og svo til baka á sjúkrastofnanir að jólahaldi loknu.
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir