Vaðlaheiðargöng lána ríkinu fyrir efni í flughlað

Tafir á upp­bygg­ingu flug­hlaðs á Akur­eyr­ar­flug­velli eru farnar að skapa öryggisógn. Ríkið á ekki fyrir flutn­ingi efnis frá muna Vaðla­heið­ar­ganga og nú grípur fram­kvæmd­ar­að­ili til þess ráðs að lána rík­inu fyrir flutn­ingnum.

Farþegaflugi til landsins er beint til Akureyrar eða Egilsstaða ef ekki er hægt að lenda í Keflavík. Aukna uppbyggingu þarf til á Akureyri til þess að mæta aukinni umferð til landsins.
Far­þega­flugi til lands­ins er beint til Akur­eyrar eða Egils­staða ef ekki er hægt að lenda í Keflavík. Aukna upp­bygg­ingu þarf til á Akureyri til þess að mæta auk­inni umferð til lands­ins. Mynd: Isavia

Stjórn Vaðla­heið­ar­ganga hefur ákveðið að lána rík­inu efnið í flug­hlað á Akur­eyr­ar­flug­velli án þess að vita hvort það fáist greitt fyrir efnið. Efnið sem grafið er úr Vaðla­heið­ar­göngum hefur safn­ast saman fyrir fram munna gang­anna sem fram­kvæmd­araðlili þarf að losna við. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Ríkið á ekki nóg af pen­ingum til að greiða fyrir allan flutn­ing efn­is­ins á nýtt flug­hlað á Akur­eyr­ar­flug­velli. Inn­an­rík­is­ráð­herra veitti 50 millj­ónum króna til verk­efn­is­ins á síð­asta ári en talið er að flutn­ing­ur­inn einn og sér muni kosta um 150 millj­ónir króna. Lítið hefur gerst síðan millj­ón­irnar 50 klár­uð­ust.

Valgeir Bergmann, fram­kvæmda­stjóri Vaðla­heið­ar­ganga, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að ákvörð­unin hafi verið tekin til þess að rýma til á vinnu­svæði við muna gang­anna. Mikið hafi safn­ast saman af efni sem þurfi að flytja burt. Þess vegna hafi fram­kvæmd­ar­að­il­inn við göng­inn gripið til þess ráðs að lána fyrir flutn­ingi efn­is­ins án þess að hafa nokkuð fast í hendi um end­ur­heimtur frá rík­inu.

Tafir á upp­bygg­ingu nýs flug­hlaðs við Akur­eyr­ar­flug­völl eru farnar að skapa öryggisógn að mati for­manns örygg­is­nefndar félags íslenskra atvinn­nu­flug­manna. Hann sagði í sam­tali við RÚV í síð­asta mán­uði að afar brýnt væri að klára verk­efnið til þess að völl­ur­inn geti sinnt auk­inni umferð far­þega­flugs um landið. „Nú þegar hefur umferð til Kefla­vík­ur­flug­vallar stór­auk­ist und­an­farin ár,“ sagði Ingvar Trausta­son, for­maður örygg­is­nefnd­ar­innar. „Það gerð­ist nú síð­ast í mars á síð­asta ári að tvær erlendar vélar þurftu að hverfa til Egils­staða, svo þetta hangir allt saman,“ sagði Ingvar.

Akur­eyr­ar­flug­völlur gegnir hlut­verki vara­flug­vallar ef ekki er hægt að lenda á Mið­nes­heiði vegna slæmra veð­ur­skil­yrða eða hvað eina. Flug­hlaðið á Akur­eyr­ar­flug­velli er lyk­ill að því að hægt sé að beina far­þega­flugi til Akur­eyrar ef Kefla­vík­ur­flug­völlur lok­ast, enda þarf pláss til að leggja far­þega­þot­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár