„Karlaveldi“ til staðar í kringum æðstu stjórnunarstöður á Íslandi

Samkvæmt nið­ur­stöðum nýlegrar rann­sóknar sem birt­ist í Stjórn­mál & stjórn­sýsla í lok síð­asta árs eru mögu­leikar kvenna tak­mark­aðir þegar kemur að æðstu stjórn­un­ar­stöðum í fyr­ir­tækjum.

Karlar ráða lögum og lofum þegar kemur að æðstu stjórn­und­ar­stöðum hér á landi og ákveðið „karla­veldi“ er þar til staðar. Þetta kemur fram í svör­unum þátt­tak­enda í nýrri rann­sókn sem birt­ist í síð­asta tölu­blaði tíma­rits­ins Stjórn­mál & stjórn­sýsla.

Þá segir í rann­sókn­inni að ástæða þess að engin kona sé for­stjóri í skráðu félagi á Íslandi sé ekki sú að skortur sé á hæfi­leik­a­ríkum konum til að sinna starfi æðstu stjórn­enda, en þar sem karlar séu í meiri­hluta þeirra sem taka ákvarð­anir um ráðn­ingu for­stjóra þá séu mögu­leikar kvenna tak­mark­aðir.

„Það kom skýrt fram hjá þátt­tak­endum að öfl­ugt tengsla­net karla getur skýrt þetta að hluta þar sem tengsla­net karla horfir síður til kvenna og þekk­ingar þeirra. Karlar fái því fleiri tæki­færi, meiri reynslu og þjálfun yfir starfsæv­ina sem veitir þeim ákveðið for­skot,“ segir í grein­inni.

„Vinir karlanna“ verða oft fyrir valinu

Konur á hinn bóg­inn hafi „ósam­felld­ari starfs­feril“ og fæð­ing­ar­or­lof hjálpi ekki til og geri fyr­ir­tækjum erf­ið­ara að fjár­festa í þjálfun kvenna. Annað sem kom fram og teng­ist tengsla­neti karl­manna er aðgengi að fjár­magni en stór hluti fjár­magns­ins er í höndum þeirra, sam­kvæmt svörum þátt­tak­enda.

Í stjórnum fyr­ir­tækja sem ráða yfir stórum hluta fjár­magns­ins hér á landi sitji karlar og hafi setið. Þessar stjórnir velji og vilji ein­stak­ling sem þær þekki og geti haft áhrif á. „Því verða „vinir karl­anna“ sem þeir séu í nánum tengslum við oft fyrir val­inu. Þessu tengt sé sterk staða karla í atvinnu­líf­inu „þar sem þeir hafa tögl og hagldir þegar kemur að stjórnun og eign­ar­haldi fyr­ir­tækja“,“ segir í grein­inni.

Bæta þarf fæðingarorlofskerfið

Þá kemur fram að mark­mið grein­ar­innar sé að skoða hvað valdi því að engin kona gegni stöðu for­stjóra í skráðu félagi á Íslandi og til hvaða ráð­staf­ana sé hægt að grípa til þess að auka hlut­deild þeirra í æðstu stjórn­un­ar­stöðum að mati kvenna sem eru í áhrifa­stöðum í íslensku sam­fé­lagi.

Margir þátt­tak­endur nefndu að breyta þyrfti vinnu­skipu­lagi og vinnu­menn­ingu og bæta þyrfti fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið. Þá megi langur vinnu­dagur ekki þykja sjálf­sagt mál meðal æðstu stjórn­enda og þar spili margir aðilar inn í, til að mynda hlut­hafar, stjórnir, stjórn­völd og verka­lýðs­hreyf­ingin. Þá þurfi konur að fjár­festa meira í fyr­ir­tækjum og konur sem eru í áhrifa­stöðum í íslensku við­skipta­lífi þurfi að láta meira til sín taka og hafa áhrif á að konur séu ráðnar sem æðstu stjórn­endur. Þær hafi margar hverjar van­nýtt tæki­færi til þess í gegnum stjórn­ar­setu sína.

Karlmenn þurfa að taka meiri þátt og axla aukna ábyrgð í fjölskyldulífi

Enn fremur kemur fram að efla þurfi konur og hvetja til þess að sækj­ast eftir æðstu stöðum í íslenskum fyr­ir­tækjum og karl­menn þurfi að taka meiri þátt og axla aukna ábyrgð í fjöl­skyldu­lífi. Það myndi gera konum kleift að vera í störfum sem krefj­ast mik­illar fjar­veru frá fjöl­skyldu.

Önnur atriði sem nefnd voru eru að skylda ætti fyr­ir­tæki til að aug­lýsa stjórn­enda­stöður, líkt og gert er í opin­bera geir­anum og að ráðn­inga­ferlið yrði að vera fag­legt og gagn­sætt.

„Karlar og konur þurfa að standa saman að þess­ari breyt­ingu. Nýnæmi rann­sókn­ar­innar felst í því að í fyrsta sinn kemur fram í rann­sókn sem þess­ari að stór hópur kvenna vill láta setja kynja­kvóta­lög á fram­kvæmda­stjórnir fyr­ir­tækja á Íslandi. Ástæðan er sú að þær telja að smitá­hrif kynja­kvót­ans sem settur var á stjórnir félaga hafi ekki orðið og því þurfi að grípa inn í með þessum hætti. Hér er um að ræða konur sem nú þegar eru í stjórn­unar- og leið­toga­stöðum, konur sem sitja í stjórnum félaga og konur sem eiga fyr­ir­tæki á Íslandi,“ segir í grein­inni.

Breyt­inga sé þörf, rót­tækra breyt­inga sem kalla meðal ann­ars á kynja­kvóta á fram­kvæmda­stjórnir.

Þá segir í grein­inni að tak­mark­anir rann­sókn­ar­innar séu meðal ann­ars lágt svar­hlut­fall en fjöldi svara gefi þó ákveðnar vís­bend­ingar um afstöðu þeirra kvenna sem eru í æðstu stjórn­enda­stöðum hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár