Notre Dame dómkirkjan í París brennur

Eldur hefur komið upp í Notre Dam kirkj­unni í París, sem millj­ónir manna heim­sækja árlega. Hún geymir ein­stök menn­ing­ar­verð­mæti.

Notre Dame dóm­kirkjan í París, sem millj­ónir manna heim­sækja árlega til að skoða ein­stök menn­ing­ar­verð­mæti, er í ljósum logum. Hún var rýmd snögg­lega eftir að eldur kom upp, og virð­ist hann veru­lega mik­ill af myndum að dæma.

Kirkjan er meðal merk­ustu bygg­ingar Evrópu, og geymir heims­sögu­leg menn­ing­ar­verð­mæti. Millj­ónir manna heim­sækja hana árlega, og er hún sögð meðal djásna got­neskrar listar í Evrópu.

Hún er forn og var byggð á árunum 1163 til 1345. Samkvæmt umfjöllun breska rík­is­út­varps­ins BBC er ekki vitað á þess­ari stundu hvernig eld­ur­inn kom upp, en að meg­in­stofni er bygg­ingin 850 ára gömul.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár