Ekki tímabært að fella niður ívilnun á tengiltvinnbíla

Efnahags- og við­skipta­nefnd telur ekki til­efni til þess að skattaí­viln­unin á tengilt­vinn­bílum falli niður með öllu í lok árs 2020. Nefndin leggur í stað­inn til að fjár­hæð­ar­mark íviln­un­ar­innar lækki í nokkrum áföngum.

Efnahags- og við­skipta­nefnd Alþingis telur að fram­lengja eigi virð­is­auka­skatt­sí­vilnun fyrir tengilt­vinn­bíla. Nefndin tekur þar undir sjón­ar­mið bíla­inn­flytj­enda og Grænnar orku um að ekki sé tíma­bært að fella niður íviln­un­ina en sam­kvæmt nefnd­inni hafa tengilt­vinn­bíla enn mikið vægi þegar kemur að því að minnka heild­ar­út­blástur í sam­göngum.

Þetta kemur fram áliti nefnd­ar­innar um frum­varp fjár­mála­ráð­herra um breyt­ingar á skatta­lög­um ­vegna vist­vænna far­ar­tækja.

Allt að nærri milljón króna lækkun

[links]Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram frum­varpið í októ­ber síð­ast­liðnum til að greiða áfram fyrir orku­skiptum í samgöngum í sam­ræmi við stefnu stjórnvalda í þeim efn­um. Í frum­varp­inu er meðal ann­ars lagt til að heim­ild til virð­is­auka­skatt­sí­viln­ana fyrir raf­magns- og vetn­is­bíla verði fram­lengd til og með 31. des­em­ber 2023. Hins vegar er lagt til að virð­is­auka­skatt­sí­vilnun fyrir tengilt­vinn­bíla falli niður í lok næsta árs.

Tengilt­vinn­bílar not­ast við tvo mis­mun­andi orku­gjafa, bensín og raf­magn. Slíkir bílar hafa notið auk­inna vin­sælda á síð­ustu árum og eru þeir stærstur hluti þeirra nýorku­bíla sem finna má hér á landi. Í júlí síð­ast­liðnum taldi íslenski fólks­bíla­flot­inn alls 220 þús­und bíla, þar af eru 3.155 hreinir raf­magns­bíl­ar, um 7000 tengilt­vinn­bílar og 1551 met­an­bílar hér á landi. [adspot]

Núver­andi virð­is­auka­skattí­vilnun fyrir tengilt­vinn­bíla virkar þannig að ekki er lagður 24 pró­sent virð­is­auka­skattur á fyrstu fjórar millj­ón­irnar af verði bíls­ins. Ívilnun á hvern bíl er því mest 960.000 krónur.

Enn henti tengiltvinnbílar betur út á landi

Ýmis sam­tök mót­mælti í kjöl­farið fyr­i­r­á­ætlun stjórn­valda um að fram­lengja ekki ívilnun fyrir tengilt­vinn­bíla. Þar á meðal voru Græn orka, sam­starfs­vett­vangur um orku­skipti, auk Bíl­greina­sam­bands­ins og FÍB.

María Jóna Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóra Bíl­greina­sam­bands­ins, sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í nóv­em­ber síð­ast­liðnum að ekki væri tíma­bært að fella á brot ívilnun fyrir slíka bíla. Hún sagði að þótt sala á nýorku­bílum hafi gengið vel und­an­farið séum við Íslend­ingar ekki komnir mjög langt í orku­skiptum bíla­flot­ans.

Hún sagði að þegar Norðmenn, sem og Bretar, drógu úr íviln­unum vegna tengilt­vinn­bíla þá hefði salan dreg­ist veru­lega saman í lönd­unum í kjöl­farið. „Við teljum að við þurfum að ná hærra hlut­falli af umhverf­is­vænum bílum á göt­unni, þar með talið tengilt­vinn­bílum. Úti á landi henta tengilt­vinn­bílar betur en t.d. bílar sem eru alfarið raf­knúnir enn sem komið er,“ sagði María.

Svipuð sjón­ar­mið komu fram við með­ferð máls­ins hjá efna­hags- og við­skipta­nefnd, þar að segja að afnám íviln­ana á tengilt­vinn­bílum muni hægja á raf­bíla­væð­ingu þjóð­ar­innar.

Hámarkið lækki í staðinn

Í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um gerð frum­varpið er tekið fram að meðal ann­ars hafi verið litið til þess að tengilt­vinn­bílar ættu að vera orðnar sam­keppn­is­hæfar á þessum tíma sem og þess að mikil upp­bygg­ing hefði átt sér stað og væri fyr­ir­huguð í tengslum við hleðslu­stöðvar. Samkvæmt mati ráðu­neyt­is­ins er ekki þörf á íviln­un­unum fyrir tengilt­vinn­bíla til lengri tíma en til loka árs 2020.

Efnahags- og við­skipta­nefnd seg­ist hafa skiln­ing á þessu sjón­ar­miði ráðu­neyt­is­ins en nefndin telur þó ekki til­efni til þess að íviln­unin falli niður með öllu í lok árs 2020.

Nefndin leggur í stað­inn til að fjár­hæð­ar­mark íviln­un­ar­innar lækki í nokkrum áföngum og að gild­is­tími hennar verði fram­lengdur til 31. des­em­ber 2022. Hámark fjár­hæð­ar­innar lækki þannig úr 960.000 krónum í 600.000 í lok árs 2020 og í 480.000 í lok árs 2021.

Að auki leggur nefndin til að hámarks­fjöldi þeirra bíla sem notið geta íviln­un­ar­innar verði hækk­aður í 15.000 til sam­ræmis við hámarks­fjölda hrein­orku­bif­reiða. Nefndin áréttar þó að hún telji nauð­syn­legt að ráðu­neytið taki þetta atriði til end­ur­skoð­unar á árinu 2021 og kanni hvort ástæða sé til að fram­lengja íviln­un­ina frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár