Losun frá vegasamgöngum þarf að dragast saman um hundruð þúsunda tonna

Losun frá vega­sam­göngum hefur auk­ist hratt á síð­ustu árum og var hún 975.000 tonn árið 2017. Eftir tíu ár vilja stjórn­völd að los­unin verði ekki meiri en 500.000 tonn til að Ísland nái mark­miðum sínum sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Losun frá vega­sam­göngum hefur auk­ist gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Til að draga úr þeirri losun hafa stjórn­völd lagt mikla áherslu á að hraða orku­skiptum í sam­göngum frá jarð­efna­elds­neyti til umhverf­is­vænni sam­gangna. Í fyrra var hlut­fall vist­vænna öku­tækja af fjölda öku­tækja í umferð 6,7 pró­sent sem er tölu­verð aukn­ing frá fyrra ári.

Losun frá vegasamgöngum stærsti þátturinn

Íslensk stjórn­völd hafa til­kynnt, í sam­bandi við Par­ís­ar­sam­komu­lagið, að Ísland ætli að taka þátt í sam­eig­in­legu mark­miði með ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins og Noregi um 40 pró­sent sam­drátt í losun til árs­ins 2030 miðað við 1990 .

Í svari umhverf­is-og auð­linda­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá­ Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manns Pírata, segir að til þess að Ísland geti staðið við þær skuld­bind­ingar sínar sé ljóst að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá öku­tækjum hér á landi þurfi að drag­ast veru­lega saman. Enda sé sú losun stærsti ein­staki þátt­ur­inn í losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda.

Hlut­deild vega­sam­ganga í losun sem telst á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda, án land­notk­unar og utan evr­ópsks við­skipta­kerfis um los­un­ar­heim­ildir var 26 pró­sent árið 2005. Þetta hlut­fall var komið upp í 34 pró­sent árið 2017 eða alls 975.000 tonn.

Sjö prósent bílaflotans vistvæn

[links]Til að draga úr losun frá öku­tækjum hafa stjórn­völd lagt mikla áherslu á að hraða orku­skiptum í sam­göngum frá jarð­efna­elds­neyti til umhverf­is­vænni sam­gangna og veittar hafa verið íviln­anir við kaup á umhverf­is­vænum far­ar­tækjum.

Í svari sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra við annarri fyr­ir­spurn frá Birni Leví kemur fram að hlut­fall vist­vænna öku­tækja af fjölda öku­tækja í umferð hefur farið úr 2,7 pró­sentum árið 2016 í 6,7 pró­sent 2018. Samkvæmt mark­miði um orku­skipti í sam­göngu­á­ætlun er stefnt á að 10 pró­sent bif­reiða verði knúnar með vist­vænum orku­gjöfum árið 2020.

Enn fremur stendur end­ur­skoðun aðgerða­á­ætl­unar stjórn­valda í lofts­lags­málum nú yfir. Í fyrr­nefndu svari umhverf­is­ráð­herra kemur fram að aðgerð­irnar varð­andi orku­skipti í sam­göngum og breyttar ferða­venjur miða að því að losun frá vega­sam­göngum verði ekki meiri en um 500.000 tonn árið 2030 til að Ísland nái mark­miðum sínum sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Ef losun Íslands verður ekki innan þeirra marka sem til­kynnt hafa verið til Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins þarf Ísland að kaupa los­un­ar­heim­ildir til að standa við skuld­bind­ingar sínar.

Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn tók við að Kyotot-bók­un­inni en flest bendir til þess að losun Íslands á árunum 2013 til 2020 verði meiri en skuld­bind­ingar Kyoto-­bók­un­ar­innar kveða á um. Ísland þarf því að gera upp skuld­bind­ingar sínar með kaupum á svoköll­uðum los­un­ar­heim­ild­um. Áætl­aður kostn­aður vegna þessa eru nokkur hund­ruð millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár