Yfir 40% ungra höfuðborgarbúa enn heima hjá foreldrum

Meira en fjórir af hverjum tíu íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á aldr­inum 20 til 29 ára búa ýmist enn eða á ný í for­eldra­húsum.

Ungt fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu býr nú í miklu meiri mæli heima hjá for­eldrum sínum en fyrir tíu árum síðan. Í fyrra voru 42 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 20 til 29 ára enn, eða aftur, í for­eldra­húsum. Árið 2005 var þetta hlut­fall ríf­lega 30 pró­sent. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum Félags­vísi Hagstofu Íslands.

Breyt­ingin er minni meðal ungs fólks á lands­byggð­inni, en þó hefur orðið aukn­ing í því að ungt fólk búi hjá for­eldrum sínum. Tæplega 37 pró­sent fólks á aldr­inum 20 til 29 ára á lands­byggð­inni býr í for­eldra­húsum, en fyrir tíu árum síðan var það hlut­fall 35 pró­sent. Hlut­fallið fór lægst í 31,3 pró­sent árið 2009, en hefur hækkað síðan þá.

Fleiri karlar en konur búa hjá for­eldrum sínum alls staðar á land­inu. Hlutfall ungra karla í for­eldra­húsum er tæp­lega 45 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en 43 pró­sent á lands­byggð­inni. Hlutfall ungra kvenna í for­eldra­húsum er miklu lægra á lands­byggð­inni en höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 29,5 pró­sent á móti 38,6 pró­sentum.

Fyrir tíu árum síðan var hlut­fall ungs fólks í for­eldra­húsum lægra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á lands­byggð­inni. Þá voru 30,6 pró­sent fólks á aldr­inum 20 til 29 ára á höf­uð­borg­ar­svæð­inu búsett heima hjá for­eldrum sínum, en 33,7 pró­sent á lands­byggð­inni.

Meira en helmingur enn heima

Þegar hóp­unum er skipt frekar eftir aldri, ann­ars vegar í 20 til 24 ára og hins vegar 25 til 29 ára, kemur í ljós að nú býr meira en helm­ingur fólks á aldr­inum 20 til 24 ára enn heima hjá for­eldrum sínum. Tæplega 57% í þessum hópi búa hjá for­eldrum sínum, en hlut­falið var 48,1% árið 2005.

Helsta breyt­ingin er meðal ungra kvenna á þessum aldri. Árið 2005 var hlut­fall þeirra í for­eldra­húsum 36,7% en er nú 54,7%. Eftir sem áður eru fleiri karlar í for­eldra­húsum en konur, þó dregið hafi mjög saman með kynj­unum. Tæplega 60 pró­sent ungra karla á þessum aldri eru í for­eldra­húsum.

Þrátt fyrir að Ísland sé með sjötta lægsta hlut­fall 20 til 24 ára fólks sem deilir heim­ili með for­eldrum sínum, í sam­an­burði við önnur Evr­ópu­lönd, þá er hlut­fallið hærra en á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum. 24,5 pró­sent þessa hóps í Danmörku býr enn heima og 34,8 pró­sent í Svíþjóð. Hin Norð­ur­löndin eru þar á milli, en svo kemur Ísland með 56,9 pró­sent í heima­húsum.

Í eldri hluta þessa hóps er Ísland líka með hærra hlut­fall en öll hin Norð­ur­löndin, en 21,4 pró­sent fólks á aldr­inum 25 til 29 ára býr enn heima hjá for­eldrum sínum á Íslandi. Árið 2009 var þetta hlut­fall 15,5%, og hefur því hækkað um 5,9 pró­sentu­stig á þessum árum. Þróunin er ekki eins skýr og í yngri hópnum, en karlar í þessum hópi eru líka miklu lík­legri til að búa hjá for­eldrum sínum en konur. 27,4 pró­sent karla á þessum aldri eru heima en aðeins 15 pró­sent kvenna.

Seinkum sambúðum og barneignum

Á und­an­förnum árum hafa sést vís­bend­ingar um að vax­andi fjöldi fólks seinki skrefum eins og að hefja sam­búð og eign­ast börn, segir Hag­stofan í Félags­vís­inum. Í töflum á vef Hag­stof­unnar sé hægt að sjá að með­al­aldur ógiftra karla og kvenna við stofnun sam­búðar hefur hækkað um nokkur ár og barn­eignum hefur almennt seinkað. Með­al­aldur kvenna við fæð­ingu fyrsta barns var 24,4 ár árið 1991, en árið 2015 var með­al­ald­ur­inn orð­inn 27,4 ár. Svipuð þróun hefur átt sér stað víða í sam­an­burð­ar­löndum Íslands, og eru uppi ýmsar kenn­ingar um að það hafi orðið grund­vall­ar­breyt­ing á því hvernig og hvenær fólk full­orðn­ast.

Líkt og Kjarninn hefur greint frá hefur frjó­semi aldrei verið minni á Íslandi en hún var í fyrra. Þá fæddur 4,129 börn hér á landi, 246 færri en árið á undan. Helsti mæli­kvarð­inn á frjó­semi,sam­­kvæmt alþjóð­­legum stöð­l­um, er fjöldi lif­andi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfir­­­leitt er miðað við að frjó­­semi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að við­halda mann­­fjöld­­anum til lengri tíma lit­ið.

Sam­kvæmt frétt frá Hag­stofu Íslands í maí var frjó­semi íslenskra kvenna árið 2015 1,81 barn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mæl­ingar hófust árið 1853. Árin 2013 og 2014 var frjó­­semi 1,93 en það er næst lægsta frjó­­semi sem hefur mælst hér á landi. Und­an­far­inn ára­tug hefur frjó­­semi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu.

Hafa dregist aftur úr öðrum

Líkt og Hag­stofan bendir á, þá má ætla að aðgengi að tryggum og nægi­lega vel laun­uðum störfum og íbúð­ar­hús­næði á við­ráð­an­legu verði skipti miklu máli þegar kemur að því hvenær ungt fólk getur flutt að heiman. Hús­næð­is­verð og leigu­verð hefur hækkað veru­lega, sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á und­an­förnum árum, og bent hefur verið á að störfum fyrir menntað fólk hafi ekki fjölgað með sama hætti og störfum sem krefj­ast ekki fram­halds­mennt­unar. Þannig hefur mesta fjölgun starfa hér á landi verið í ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði, en hlut­fall háskóla­mennt­aðra á atvinnu­leys­is­skrá er nú tæp­lega þriðj­ungur.

Í sumar birti Hag­stofan aðrar tölur úr lífs­kjara­rann­sókn sinni, um dreif­ingu ráð­stöf­un­ar­tekna. Helstu tíð­indi hennar eru þau að ungt fólk, á aldr­inum 25-34 ára, hefur dreg­ist aftur úr öðrum hópum á und­an­förnum ára­tug og hlut­fall tekna þeirra af mið­gildi ráð­stöf­un­ar­tekna er nú 95,3 pró­sent. Það þýðir á ein­földu máli að ungt fólk hefur lægri laun en það hafði áður.

Þetta var enn ein fréttin um hag­tölur eða rann­sóknir sem bendir til verri stöðu ungs fólks á Íslandi. Á und­an­förnum árum hafa verið lagðar fram tölur um færri atvinnu­tæki­færi, minni eign­ar­myndun, lægri laun, skerta þjón­ustu og síð­ast en ekki síst stór­tækan hús­næð­is­vanda þessa hóps.

Þá greindi Kjarninn einnig frá því nýverið að 380 fleiri Íslend­ingar á aldr­inum 20 til 29 ára hafa flutt úr landi en aftur til Íslands það sem af er ári. Frá árinu 2010 hafa tæp­lega þrjú þús­und fleiri Íslend­ingar á þessum aldri flutt burt en heim. 7.770 hafa flutt burt á meðan 4.840 hafa komið heim. Öll árin frá 2010 er þessi hópur stærstur bæði meðal brott­fluttra og aðfluttra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár