Fiskeldisfyrirtæki ganga til liðs við SFS

Lands­sam­band fisk­eld­is­stöðva hefur lagt niður dag­lega starf­semi og eru aðild­ar­fyr­ir­tæki sam­bands­ins nú orðin hluti af Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Einar K. Guð­finns­son, for­maður stjórnar Lands­sam­bands­ins, verður hluti af teymi SFS.

Lands­sam­band fisk­eld­is­stöðva hefur lagt niður dag­lega starf­semi og eru aðild­ar­fyr­ir­tæki sam­bands­ins nú orðin hluti af Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Sam­eig­in­leg ákvörðun aðild­ar­fyr­ir­tækj­anna var tekin um að óska eftir aðild að SFS á auka aðal­fundi Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva þann 14. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Í til­kynn­ingu frá Lands­sam­band­inu segir að fisk­eldi hér á landi hafi auk­ist á und­an­förnum árum og því hafi verk­efni sam­bands­ins orðið fleiri og fjöl­þætt­ari og því sé það mat stjórnar Lands­sam­bands­ins að þeim verk­efnum verði betur sinnt innan vébanda Sambanda í sjáv­ar­út­vegi. 

Laxeldi hefur alla burði til þess að verða undirstöðuatvinnugrein á Íslandi

Einar K. Guðfinnsson, formaður stjórnar Landssambands fiskeldisstöðva og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, telur þetta vera rökrétt skref í þróun samtakanna og fisledis Íslands. „Það hefur verið mikil uppbygging í fiskeldi á undanförnum árum og verkefnin sem þarf að leysa úr eru orðin umfangsmeiri og kannski að sumu leyti flóknari en áður. Ég tel þetta því rökrétt skref í þróun samtakanna og fiskeldis á Íslandi, að verða hluti af samtökum sem byggjast á gömlum grunni. Laxeldi hefur alla burði til þess að verða undirstöðuatvinnugrein á Íslandi á sama hátt og sjávarútvegurinn hefur verið um langt skeið og verða þar með enn ein stoðin undir efnahagslegri hagsæld Íslendinga. Að því munum við vinna.“ segir Einar.

Í tilkynningunni segir að ákveðið hafi verið að Einar verði hluti af teymi SFS og sinni þar verkefnum er snúa að fiskeldismálum.[adspot]

Jens Garðar Helgason formaður stjórnar SFS segist fagna komu fiskeldis í samtökin. Í tilkynningunni segir Jens að nokkur fyrirtæki í fiskeldi hafi um alllangt skeið verið félagsmenn í SFS og því sé styrkur í því að fjölga þeim. „Ég hlakka til samstarfsins og hlýt að fagna komu þeirra. Það mun bæði styrkja SFS og ekki síður það góða starf sem unnið hefur verið á vegum Landssambandsins á undanförnum árum. Næstu vikur og mánuðir fara í að samþætta starfsemina undir hatti SFS og ég vonast til þess að þeirri vinnu verði lokið fyrir sumarið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár