Segir eftirlit Fiskistofu veikburða og ómarkvisst

Rík­is­end­ur­skoðun telur að Fiski­stofu sé ómögu­legt að sinna öllu því eft­ir­liti sem henni ber að sinna, meðal ann­ars vegna skorts á úrræðum og við­ur­lögum. Jafn­framt vísar Rík­is­end­ur­skoðun því á bug að brott­kast sé óveru­legt á Íslandi.

Eft­ir­lit Fiski­stofu með brott­kasti er veik­burða og ómark­vis­st, sam­kvæmt stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á eft­ir­liti Fiski­stofu sem kynnt var í gær. Í úttektinni kemur einnig fram að eft­ir­lit með stofn­un­inni með vigtun sjáv­ar­afla sé tak­markað og efast megi um að eft­ir­litið skili til­ætl­uðum árangri. ­Jafn­framt telur Ríkisendurskoðun að sam­þjöppun afla­heim­ilda styðji ekki með við­un­andi hætti við mark­mið laga um stjórn fisk­veiða og umgengi um nytja­stofna sjáv­ar.

Vísa því á bug að brott­kast sé óveru­legt á Íslandi

[links]Stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar var unnin að beiðni Alþing­is. Í úttekt­inni er mati atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins um að brott­kast sé „óveru­legt“ á Íslandi vísað á bug. Rík­is­end­ur­skoðun bendir á á að innan fisk­veiði­kerf­is­ins sé mik­ill hag­rænn hvati til þess að stunda brott­kast. Vegna veik­leika ­eft­ir­lits­ins sé í raun engin for­senda til þess að full­yrða um umfang brott­kasts hér við land. Jafn­framt segir í úttekt­inni að við upp­lýs­inga­öflun vegna úttekt­ar­innar hafi komið fram skýrar áhyggjur af því að brott­kast ætti sér stað í tals­verðum mæli. Rík­is­end­ur­skoðun gagn­rýnir það sér­stak­lega að ­mat ráðu­neyt­is­ins á umfangi brott­kasts bygg­ist meðal ann­ars á lýs­ingum hags­muna­að­ila.

Rík­is­end­ur­skoðun telur að það sé Fiski­stofu í raun ómögu­legt að sinna öllu því eft­ir­lit­i sem henni ber að sinna, meðal ann­ars vegna skorts á úrræðum og við­ur­lög­um. Þá er tekið fram að hvorki liggi fyrir skýr ár­ang­urs­mark­mið né árang­urs­mæl­ingar í eft­ir­liti með brott­kasti og að auka þurfi við­veru eft­ir­lits­manna um borð í fiski­skipum og horfa til­ ­tækninýj­unga við eft­ir­lit. Þá er lag­t til að gerðar verði skýrar kröfur um að­stöðu til vigt­unar og eft­ir­lit hafn­ar­yf­ir­valda.

Auka megi samstarf Fiskistofu og Landhelgisgæslunnar

Í skýrsl­unni mælist Rík­is­end­ur­skoðun til þess að kannað verði hvort auka megi sam­starf Fiski­stofu og Land­helg­is­gæslu Íslands við eft­ir­lit með brott­kasti. Eyþór Björns­son, Fiski­stofu­stjóri, sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag að Fiski­stofu vanti meiri mann­skap líkt og komi fram í skýrsl­unni og að rétt sé að skoða þurfi reglu­verkið. Hann segir jafn­framt að öll atriði skýrsl­unnar verði skoðuð inn­an­dyra hjá Fiski­stofu. Hann segir jafn­framt að nú þegar sé unnið að því að efla starf­semi hafn­anna og fylgir Land­helg­is­gæslan því eftir. „En eins og stendur í skýrsl­unni þá þarf að auka við­veru eft­ir­lits­manna um borð en það ger­ist ekki nema með meiri mann­skap,“ segir Eyþór að lokum.

Formaður Viðreisnar segir ábyrgð útgerðar mikla

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir ábyrgð útgerða­manna mikla í bar­átt­unni gegn brott­kasti, í sam­tali við Frétta­blaðið í dag. „Það þarf að taka þetta mál föstum tökum. Það er margt í húfi, meðal ann­ars orð­spor okkar sem fisk­veiði­þjóðar sem bless­un­ar­lega tók þá ákvörðun að vera með sjálf­bærar veiðar og byggja á vís­inda­legri nálgun,“ segir Þor­gerður Katrín, um nið­ur­stöðu stjórn­sýslu­út­tekt­ar­innar um Fiski­stofu.

Þor­gerður ítrekar að útgerðin verði að standa undir ábyrgð. „Lang­flestir gera það en SFS verður hér að sýna afger­andi for­ystu og taka hressi­lega á þessu þó að ein­hverjir innan þeirra raða verði mis­sáttir. Þetta er ekki einka­mál útgerð­ar­manna og sjó­manna. Langt í frá, þótt rík­is­stjórnin vilji vinna málið þannig,“ segir Þor­gerður að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár