Þegar Pútín hélt hann gæti þagað

Að morgni 12. ágúst árið 2000 sýndu skjálfta­mælar, í Noregi og víðar, að eitt­hvað hafði gerst á botni Barents­hafs. Fljót­lega kom í ljós að þarna hafði orðið slys sem kost­aði 118 manns lífið.

Kafbáturinn Kursk á siglingu
Kaf­bát­ur­inn Kursk á sigl­ingu Mynd: Wikimedia Commons

Klukkan var rétt að verða hálf tíu (að norskum tíma) að morgni 12. ágúst árið 2000 þegar mæl­arnir í NORSAR rann­sókna­stöð­inni í Kjeller, norð­vestan við Ósló tóku kipp. Á meðan starfs­fólkið, tveimur mín­útum síðar, var að rýna í töl­urnar, hrukku nál­arnar við og nú mun kröft­ug­legar en í fyrra skiptið. Nú sýndi mælir­inn 4,5 á Richter, en fyrri kipp­ur­inn var 1,5 á Richter. Upptökin virt­ust vera í Barents­hafi, skammt frá Murmansk. Þótt aldrei sé hægt að full­yrða um slíkt þótti starfs­fólk­inu í NORSAR ólík­legt að um jarð­skjálfta væri að ræða enda kom síðar í ljós að kipp­irnir á mæl­unum áttu sér aðra skýr­ingu.

Æfingin Sumar-X

Í ágúst­mán­uði árið 2000 fóru fram miklar her­æf­ingar rúss­neska flot­ans. Þetta voru umfangs­mestu æfingar flot­ans í meira en ára­tug og reyndar fyrstu stóru her­æf­ingar sjó­hers­ins eftir fall Sov­ét­ríkj­anna. 30 her­skip og þrír kaf­bátar tóku þátt í æfing­unum, sem fóru fram á Barents­hafi. Einn þeirra þriggja kaf­báta sem þarna voru við æfingar var Kursk, krúnu­djásn kaf­báta­deildar rúss­neska flot­ans.

Kursk

Kursk, sem var knú­inn kjarn­orku og bar kjarna­vopn, var tek­inn í notkun árið 1994. Hann var 154 metra langur (álíka og tvær Boeing jumbo þotur), 18,2 metrar á breidd og hæðin var 9 metrar. Fullyrt hafði verið að Kursk gæti ekki sokkið (frekar en Titanic!). Ytra byrði báts­ins var úr 8 senti­metra þykku sér­stak­lega hertu stáli og í innra byrð­inu (hylk­inu) var 5 senti­metra þykkt stál. Innra hylk­inu var skipt upp í níu aðskilin hólf, það átti að tryggja að þótt gat, eða leki, kæmi að einu hólfi færi sjór ekki um allan bát. Kursk var búinn full­komn­ustu vopnum rúss­neska flot­ans og full­hlað­inn vó hann 16.400 tonn. Til sam­an­burðar má nefna að full­hlaðin Boeing Jumbo þota vegur í mesta lagi 440 tonn. 

Í áhöfn Kursk voru 118 menn. Áhöfnin hafði skömmu fyrir slysið hlotið við­ur­kenn­ingu sem sú hæf­asta í Norð­ur­deild rúss­neska flot­ans.

12. ágúst

Skömmu fyrir klukkan níu (að norskum tíma) óskaði kafteinn­inn á Kursk eftir heim­ild til að skjóta æfinga­tund­ur­skeyti að her­skip­inu Pétri Mikla sem var eitt þeirra skipa sem tóku þátt í æfing­unni. Heim­ildin var veitt og áhöfn Kursk hóf und­ir­bún­ing. Tund­ur­skeyti af þess­ari til­teknu gerð köll­uðu Rússar Tolstus­hka (þá digru) vegna stærð­ar­innar. Nokkuð dróst að senda þá digru af stað og það var ekki fyrr en hálf­tíma síðar að til­kynnt var að nú yrði tund­ur­skeytið sent.

Tund­ur­skeytið fór ekki af stað en það var á þessu augna­bliki sem skjálfta­mæl­arnir í Noregi kippt­ust við og sýndu 1,5 á Richter. Rúmum tveimur mín­útum síðar tóku skjálfta­mæl­arnir annan og stærri kipp og sýndu 4,5 á Richter. Margfalt sterk­ari en sá fyrri.

Ljóst var að óró­inn á skjálfta­mæl­unum tengd­ist kaf­bátnum Kursk, stað­ar­á­kvörðun hans pass­aði nákvæm­lega við þann stað sem norsku mæl­arnir sýndu að „skjálft­inn“ átti upp­tök sín. Þar hafði eitt­hvað gerst en eng­inn vissi nákvæm­lega hvað. Ein­hvers­konar spreng­ing og að lík­indum mjög öflug.

Ringulreið og ráðaleysi

Mikil ringul­reið greip um sig meðal yfir­manna rúss­neska flot­ans. Það sem þeir vissu var að kaf­bát­ur­inn Kursk lá á Botni Barents­hafs­ins, á 109 metra dýpi, um borð var 118 manna áhöfn. Enginn vissi á þess­ari stundu um afdrif hennar, og yfir­stjórn flot­ans vissi ekki sitt rjúk­andi ráð. Bretar og Norðmenn buðu strax fram aðstoð, sem Rússar afþökk­uðu í fyrstu. Vladimir Putin, sem hafði tekið við for­seta­emb­ætt­inu nokkrum mán­uðum fyrr (1.1. 2000) var í sum­ar­fríi í borg­inni Sochi við Svarta hafið. Hann var síðar gagn­rýndur fyrir að bregð­ast bæði seint og illa við. Pútín hafði ekki áttað sig á því að víða um heim var fólk að fylgj­ast með og ekki þýddi að upp­lýsa um hlut­ina, með eigin skýr­ingum, seint og síðar meir. 

Hvað gerðist?

Yfir­stjórn rúss­neska flot­ans Vladimir Kurojedov greindi frá því síð­degis 12. ágúst að mikil spreng­ing hefði orðið um borð í Kursk og full­víst mætti telja að áhöfnin hefði öll farist. Yfir­stjórn flot­ans kom með ýmsar til­gátur um orsakir spreng­ing­ar­innar. Ein var sú að Kursk hefði rek­ist á gam­alt tund­ur­dufl, önnur var sú að kaf­bát­ur­inn hefði lent í árekstri við kaf­bát frá NATO ríki. Fleiri mögu­leika á orsökum slyss­ins nefndu yfir­menn flot­ans. Sérstök rann­sókn­ar­nefnd, sem skipuð var vegna slyss­ins komst síðar að þeirri nið­ur­stöðu að mjög eld­fimt efni hefði lekið úr tund­ur­skeyt­inu þegar verið var að flytja það til áður en því skyldi skotið, og eldur orðið laus. Síðan hefði eitt leitt af öðru. Einn nefnd­ar­manna skil­aði sér­á­liti. Hann taldi kunn­áttu- og æfing­ar­leysi áhafn­ar­innar, ásamt röngum leið­bein­ingum, um að kenna. Í flak­inu fannst hálf­brunn­inn leið­bein­inga­bæk­lingur um með­ferð tund­ur­skeyta og und­ir­bún­ing vegna notk­unar þeirra. Sá bæk­lingur var hins vegar um aðra gerð tund­ur­skeyta. Enn fremur benti þessi nefnd­ar­maður, Valery Ryazantsev, á að vegna fjár­skorts hefði áhöfn Kursk fengið afar tak­mark­aða þjálfun, það gilti reyndar um flesta innan flot­ans.

Áhöfnin

Eins og áður var getið greindi yfir­maður flot­ans frá því að full­víst mætti telja að öll áhöfn Kursk, 118 menn, hefði lát­ist í spreng­ing­unni. Síðar kom í ljós að það reynd­ist ekki rétt. Við spreng­ing­una tætt­ist fremsti hluti kaf­báts­ins í sundur en í lok­uðu rými í skut báts­ins voru 23 menn, þeir lifðu allir af spreng­ing­una. Þeir von­uðu, í fyrstu, að þeim yrði bjargað en sú von dofn­aði smám saman og þeim varð ljóst að þeir myndu ekki lifa af. Í fórum sumra fund­ust bréf þar sem þeir lýsa því hvernig dauð­inn nálg­ast og þeir kveðja sína nán­ustu. 21. ágúst komust kaf­arar úr norska flot­anum að flaki Kursk og komust að því að eng­inn úr áhöfn­inni var þá á lífi. Það var hins vegar ekki ljóst fyrr en 25. októ­ber, tveimur og hálfum mán­uði eftir slysið, þegar rúss­neskir kaf­arar fóru inn í flakið að ljóst var að 23 menn höfðu lifað af og síðar lát­ist vegna skorts á súr­efni.

Hefði verið hægt að bjarga þeim sem lifðu sprenginguna af ?

Þessi spurn­ing brann á margra vörum eftir slysið og ljóst varð að 23 úr áhöfn­inni höfðu lifað af spreng­ing­una. Yfir­stjórn rúss­neska flot­ans hefur aldrei svarað þess­ari spurn­ingu. Það hafa hins vegar ýmsir aðrir gert og til dæmis lýstu breskir sér­fræð­ingar því yfir að breski flot­inn hefði á þessum tíma ráðið yfir bún­aði sem gerði kleift að kom­ast niður að bátnum og bjarga mönn­unum. Búnaður og kaf­arar hefðu verið komnir á stað­inn innan sól­ar­hrings, jafn­vel fyrr, ef leyfi hefði feng­ist.

Eins og áður var nefnt afþökk­uðu Rússar alla utan­að­kom­andi aðstoð fyrstu dag­ana eftir slysið.

Af hverju, hafa margir spurt. Breskur hern­að­ar­sér­fræð­ingur sem breskt dag­blað ræddi við fyrir skömmu sagði að hann teldi einkum þrjár ástæður fyrir þess­ari ákvörðun Rússa. Í fyrsta lagi hefðu Rússar þá við­ur­kennt að þeir gætu ekki á eigin spýtur leyst þetta flókna verk­efni, í öðru lagi ótti við að „óvina­þjóðir“ kæmust að ein­hverjum hern­að­ar­upp­lýs­ingum, eins og það var orðað, og í þriðja lagi hefði Pútín verið óreyndur sem leið­togi, og ekki almenni­lega áttað sig á alvöru máls­ins. Hann hafi ekki vitað hvað gera skyldi og yfir­menn flot­ans ekki þorað að taka af skarið. „Hann myndi bregð­ast öðru­vísi við í dag“ sagði breski hern­að­ar­sér­fræð­ing­ur­inn.

Eftirmál

Fjöl­margir frétta­menn hafa und­an­farið lagt leið sína til Murmansk, þar sem rúss­neski flot­inn hefur höf­uð­stöðvar sínar og flestir í áhöfn Kursk bjuggu. Þótt liðin séu 20 ár frá slys­inu hafa borg­ar­búar ekki gleymt því sem gerð­ist og telja sig aldrei hafa fengið full­nægj­andi skýr­ingar frá rúss­neskum stjórn­völdum. Af hverju var ekki brugð­ist strax við, af hverju var boði Breta og Norð­manna hafnað og af hverju laug yfir­stjórn flot­ans að okkur. Þessar spurn­ingar, og fleiri, brenna enn á vörum íbúa Murmansk. Einn við­mæl­andi danska rík­is­út­varps­ins, DR, sagði „við höfum ekki fengið, og fáum örugg­lega aldrei, svör við spurn­ingum okkar“.

Putin hélt að hann gæti þagað

Eins og áður var Vladimir Putin for­seti í sum­ar­leyfi við Svarta hafið þegar Kursk fórst. 18. ágúst, sex dögum eftir slysið kom hann til baka til Moskvu úr frí­inu. Hann tjáði sig lítt við fjöl­miðla, kom að vísu með yfir­lýs­ingu um að flot­inn hefði gert allt sem hægt var til að bjarga áhöfn Kursk, það var allt og sumt. 22. ágúst, tíu dögum eftir slysið, kom hann til Murmansk og hitti ætt­ingja áhafn­ar­innar á Kursk. Þar lof­aði for­set­inn bótum til ætt­ingja hinna látnu. Einungis rúss­neska rík­is­út­varps- og sjón­varps­stöðin RTR fékk að fylgj­ast með fundi for­set­ans og ætt­ingj­anna. Á fund­inum gagn­rýndi Putin fjöl­miðla sem hann sagði hafa flutt rangar og mis­vísandi fréttir af slys­inu. Eigendur þess­ara miðla væru spilltir lygarar sem ynnu gegn hernum og rík­inu. Í við­tali við danska útvarpið, DR, sagði Jelena Mila­sjina, blaða­maður á Novaja Gazeta (óháður mið­ill) að Putin hafi áttað sig á því að til að geta stjórnað að vild, yrði hann að geta ráðið yfir miðl­unum og hvað þeir segðu. „Á und­an­förnum árum hefur mjög verið þrengt að tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla, það gagn­ast for­set­anum.“

Það má bæta því hér við að Putin kom í við­tal hjá Larry King á banda­rísku sjón­varps­stöð­inni CNN tæpum mán­uði eftir slysið. Larry King spurði hvað hefði komið fyrir Kursk svar­aði rúss­neski for­set­inn með tveimur orðum „hann sökk“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

putin

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár