Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni var velt úr valdastóli í siðlausri árás sósíalista á Íslandi og Panamaskjölin eru runnin undan rifjum „hins kaldrifjaða sósíalista George Soros“. Þetta fullyrðir Hallur Hallsson, blaðamaður, rithöfundur og höfundur skáldsögunnar Váfugl, í pistli sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Segir Hallur að Soros stefni að afnámi þjóðríkisins fyrir gamlan draum kommúnista um alheimsstjórn. Ísland sé í skotlínu þeirra afla sem vilji grafa undan vestrænni siðmenningu, lýðræði, frelsi og jafnrétti.
„Öfl guðleysis á Íslandi; íslenskir sósíalistar í VG og Samfylkingu ásamt Pírötum, veifa þessu tré. Líkt og alþjóðahyggja kommúnista freistaði þess að leggja undir sig heiminn á 20. öld, þá freista guðlausir sósíalistar 21. aldar þess að feta í sama fótspor,“ skrifar Hallur.

Hann segir Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð hafa haldið á málstað Íslands gagnvart erlendum hrægömmum sem komu sér fyrir í þrotabúum hinna föllnu íslensku banka.
„Þeir standa vörð um íslenska lýðveldið. Sósíalistar í VG, Samfylkingu með stuðningi Pírata hins vegar þjónuðu hinum útlendu öflum; freistuðu að hlekkja þjóð sína í Icesave-skuldir og færðu bankahrægömmum í hendur. Þeir stefna að því að færa auðlindir þjóðar sinnar í útlendar hendur. Þeir settu 110 ára leyndarlög á gjörninga sína og saka svo aðra um leyndarhyggju! Lygin ríður aldrei við einteyming. Nokkrir vegvilltir sjálfstæðismenn, blindaðir af hásölum Brussel í von um vegtyllur og brauðmola, studdu siðlausa gjörningana.“
Telur Hallur að sósíalistar geri atlögu gegn íslenska lýðveldinu, gegn vestrænni siðmenningu, lýðræði og jafnrétti. „Fólk þarf að átta sig á þessari atlögu úr reykfylltum myrkvuðum bakherbergjum. Sósíalismi sem gerir út á fátæktarvitund er í eðli sínu – alltaf, alltaf, alltaf – andlýðræðislegur.“ skrifar hann. „Ísland er í hættu, Vesturlönd og vestræn siðmenning eru í hættu að falla í guðlaust miðaldamyrkur helsis og fátæktar í kompaníi við Kína og islam þar sem andstaða er miskunnarlaust barin niður.“
Skáldsaga Halls Hallssonar, Váfugl, kom út árið 2008 og gerist í martraðarkenndum heimi framtíðar þar sem Ísland hefur gengið í Evrópusambandið og misst yfirráð yfir auðlindum landsins. Evrópuþingmaðurinn Daniel Hannan hefur fullyrt að bókin sé „besta bók frá Íslandi síðan Sjálfstætt fólk“ og árið 2012 var haldin sérstök kynning á bókinni í Westminster-höll. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi forsætisráðherra, fór til Bretlands og hélt fyrirlestur um gildi bókarinnar og stöðu Íslands utan Evrópusambandsins sem sjá má hér til hliðar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir