Forsetakosningar í Keníu dæmdar ógildar

Hæsti­réttur Keníu úrskurð­aði þann 1. sept­em­ber nýaf­staðnar for­seta­kosn­ingar í land­inu ógildar. Skiptar skoð­anir eru um for­sendur og afleið­ingar úrskurð­ar­ins en er hann tal­inn ummerki um styrk­ingu lýð­ræðis og sjálf­stæði dóm­stóla í land­inu.

Uhuru Kenyatta, sitjandi forseti, hefur hafið kosningabaráttu sína að nýju.
Uhuru Kenyatta, sitj­andi for­seti, hefur hafið kosn­inga­bar­áttu sína að nýju. Mynd: EPA

Ofbeldi og átök ein­kenndu eft­ir­mála for­seta­kosn­inga í land­inu árið 2007-2008 og var búist við því að það sama gæti orðið uppi á ten­ingnum í ár eftir að fyrstu tölur gáfu til kynna að hinn sitj­andi for­seti, Uhuru Kenyatta, hefði borið sigur úr býtum. Kenyatta, sem var end­an­lega sýkn­aður í Alþjóða saka­mála­dóm­stólnum (ICC) í Haag árið 2015 af ákæru um að hafa átt hlut í að kynda undir ofbeldi í kjöl­far kosn­ing­anna árið 2007, virt­ist hafa unnið þægi­legan sigur í for­seta­kosn­ing­unum og tjáðu bæði inn­lendir og erlendir kosn­inga­eft­ir­lits­menn að kosn­ing­arnar hefðu verið frjálsar og rétt­mætar. Engu var til sparað í skipu­lagi kosn­ing­anna en þær kost­uðu um einn millj­arð banda­ríkja­dala og eru því meðal dýr­ustu kosn­ingum sem fram­kvæmdar hafa verið, ekki bara í Afríku heldur í heim­inum öllum þegar miðað er við höfða­tölu.

For­seta­fram­bjóð­end­urnir tveir koma báðir úr póli­tískri elítu lands­ins en flokkar þeirra tveggja, Jubilee-flokkur Kenyatta og Nasa-flokkur Odinga, eru oft kenndir við þjóð­flokka. Kosn­inga­mynstur í land­inu fer oft á tíðum eftir þjóð­flokkslínum og hefur Luo-þjóð­flokkur Odinga stundum upp­lifað að vera jað­ar­settur af Kikuyu-þjóð­flokki Kenyatta sem hefur verið við völd lengi.

Sjálfstæði dómstóla

Þó svo að það hafi ekki komið á óvart að for­seta­fram­bjóð­and­inn Raila Odinga, sem laut einnig í lægri hlut bæði í kosn­ing­unum 2007 og 2013, hafði áfrýjað nið­ur­stöður kosn­ing­anna til hæsta­réttar kom það sem þruma úr heið­skíru lofti að hæsti­réttur hefði, með fjórum atkvæðum gegn tveimur, ákveðið að dæma nið­ur­stöð­urnar ógildar og boða til nýrra kosn­inga innan sex­tíu daga.

Í úrskurði hæsta­réttar sagði að kosn­inga­eft­ir­lits­nefnd Keníu hefði mis­tek­ist að fram­kvæma for­seta­kosn­ing­arnar sam­kvæmt ákvæðum stjórn­ar­skrár lands­ins. Hæsti­réttur kenndi hins vegar ekki Kenyatta um að hafa haft áhrif á fram­kvæmd kosn­ing­ar­innar né sam­þykkti hann gagn­rýni Odinga um að hið raf­ræna kosn­inga­kerfi í land­inu hefði verið „hakkað“. Þó svo að eft­ir­lits­menn til­kynntu að kosn­ing­arnar hefðu verið frjálsar og rétt­mætar voru ýmsir van­kantar við fram­kvæmd þeirra; einna helst olli það áhyggjum þegar Chris Msando, yfir­maður upp­lýs­inga­deildar kosn­inga­eft­ir­lits­nefnd­ar­innar, fannst myrtur í útjaðri Naíróbí í lok júlí.

Boðað hefur verið til nýrra kosn­inga þann 17. októ­ber en Odinga hefur kraf­ist þess að sex hátt­settir starfs­menn kosn­inga­eft­ir­lits­nefnd­ar­innar verði reknir áður en nýjar kosn­ingar geti átt sér stað. Aðilar úr rík­is­stjórn Kenyatta hafa sagst muna koma í veg fyrir að starfs­mönnum nefnd­ar­innar verði vikið úr emb­ætti enda hefur Kenyatta sjálfur gefið sterkt til kynna að hann sé ósam­mála úrskurð­inum þrátt fyrir að hann muni virða ákvörð­un­ina.

Ummerki um sterkara lýðræði

Ákvörðun hæsta­réttar Keníu hefur verið túlkuð sem merki um það að stofn­ana­kerfi lands­ins sé að efl­ast og megi líta á hana sem sögu­lega stund í lýð­ræð­is­sögu lands­ins. Þetta er í fyrsta sinn í Afríku að hæsti­réttur dæmi ógilt end­ur­kjör sitj­andi for­seta og má setja ákvörð­un­ina í sam­hengi við lýð­ræð­is­lega þróun fjöl­margra landa í álf­unni. Stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa sigrað í kosn­ingum á síð­ustu fimm árum í Nígeríu, Gana, Gambíu og Senegal, en það gæti verið til marks um auknar vænt­ingar til póli­tískra breyt­inga.

Forsetar Keníu hafa frá því að landið fékk sjálf­stæði, eins og víðs­vegar ann­ars staðar í álf­unni, átt það sam­eig­in­legt að sitja lengi í emb­ætti, þar á meðal var faðir Uhuru Kenyatta, Jomo Kenyatta, sem varð fyrsti for­seti lands­ins árið 1964 og gegndi því emb­ætti þar til árs­ins 1978. Þó svo að úrskurður hæsta­réttar lands­ins leiði ekki endi­lega til þess að valda­tíð Kenyatta hins yngri líði undir lok – búist er við því að hann beri sigur af hólmi í kosn­ing­unum í októ­ber – og þrátt fyrir þann umtals­verða kostnað sem felst í því að halda nýjar kosn­ingar ásamt þeim efna­hags­lega ófyr­ir­sjá­an­leika sem fylgir skorti á póli­tískri for­ystu, þá gæti úrskurð­ur­inn leitt til auk­ins traust almenn­ings á kerf­inu til lengri tíma litið og styrkt þá við­leitni að kosn­ingar í land­inu séu almennt frjálsar. Sjálf­stæði dóm­stóla er lyk­il­at­riði í skil­virkni lýð­ræð­is­legs stofn­ana­kerfis og þá sér­stak­lega í löndum þar sem fram­kvæmd­ar­valdið er öfl­ugt. Þróun mála í Keníu á síð­ustu vikum og vel heppn­aðar kosn­ingar í októ­ber gæti orðið mikil efl­ing fyrir lýð­ræði í land­inu og eflt enn frekar vænt­ingar kjós­enda til póli­tískra leið­toga víðs vegar í álf­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár