Sex forstjórar fyrirtækja í meirihlutaeigu hins opinbera með hærri laun en forsætisráðherra

Æðstu stjórn­endur fjög­urra fyr­ir­tækja sem eru að mestu í eigi ríkis eða sveit­ar­fé­laga erum með 3,5 millj­ónir króna á mán­uði í heild­ar­laun eða meira. Sá sem er með hæstu launin fékk 167 pró­sent hærri laun en ráð­herrar lands­ins í fyrra.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, er sá for­stjóri fyr­ir­tækis sem er að meiri­hluta í eigu rík­is­ins sem er með hæstu launin. Alls var hún með 5,7 millj­ónir króna í laun, hlunn­indi og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð í fyrra en ríkið á 65 pró­sent hlut í Íslands­banka. Heild­ar­laun Birnu hækk­uðu um 14 pró­sent milli ára, að mestu vegna sér­stakrar greiðslu fyrir yfir­vinnu sem hún fékk í tengslum við und­ir­bún­ing hluta­fjár­út­boðs og skrán­ingar Íslands­banka á markað í fyrra­sum­ar.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, sem er nán­ast að öllu leyti í eigu rík­is­ins, kom þar á eftir með 4,5 millj­ónir króna í laun, hlunn­indi og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð í fyrra sem er 7,7 pró­sent meira en hún hafði árið 2020.

Þriðji launa­hæsti rík­is­for­stjór­inn var Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, með tæp­lega 3,6 millj­ónir króna á mán­uði en laun hans hækk­uðu um þrjú pró­sent milli ára. Fjórði rík­is­for­stjór­inn sem er með laun, hlunn­indi og mót­fram­lag yfir þremur og hálfri milljón krónum á mán­uði er Svein­björn Ind­riða­son, for­stjóri Isavia. Hann var með 3,5 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra sem er nán­ast sama upp­hæð og hann fékk að með­al­tali á mán­uði árið áður.

Þetta má lesa úr árs­reikn­ingum þeirra rík­is­fyr­ir­tækja sem hafa þegar skilað árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2021.

[adspot]Guð­mundur Ingi Ásmunds­son, for­stjóri Lands­nets, kemur þar skammt á eftir með rúm­lega 2,9 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali en laun hans stóðu nán­ast í stað milli ára. Tryggvi Þór Har­alds­son, for­stjóri RARIK, fékk svo 2,1 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði í laun, hlunn­indi og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóði í fyrra sem er 4,1 pró­sent meira en hann fékk árið áður.

Eitt stórt fyr­ir­tæki í opin­berri eigu ann­arra stjórn­valda en rík­is­ins, Orku­veita Reykja­víkur, hefur líka skilað inn árs­reikn­ingi. Bjarni Bjarna­son, for­stjóri hennar, var með rúm­lega 3,2 millj­ónir króna á mán­uði í heild­ar­greiðslur í fyrra sem er 21,4 pró­sent meira en hann hafði á árinu 2020. Enginn for­stjóri fyr­ir­tækis í opin­berri eigu hækk­aði hlut­falls­lega jafn mikið í launum og Bjarni á síð­asta ári en Reykja­vík­ur­borg er langstærsti eig­andi Orku­veit­unnar. Í árétt­ingu sem birt var á vef fyr­ir­tæk­is­ins fyrr í þessum mán­uði kom fram að Bjarni hefði fengið ein­greiðslu upp á þrjár millj­ónir króna á síð­asta ári. Að frá­dreg­inni þeirri greiðslu hafi laun Bjarna ekki hækkað umfram vísi­tölu­hækk­anir síð­ast­lið­inn tvö ár.

Nokkur fyr­ir­tæki í opin­berri eigu hafa ekki skilað inn árs­reikn­ingi enn sem komið er, enda ekki með skráða fjár­mála­gjörn­inga á mark­aði sem krefst þess af þeim. Má þar nefna RÚV, Íslands­póst, Hörpu og Orkubú Vest­fjarða.

Enginn átti að vera með hærri laun en forsætisráðherra

Lögum um kjara­ráð var breytt í ágúst 2009. Þá ákvað rík­­is­­stjórn­ Jó­hönnu Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, í kjöl­far hruns­ins og þeirra aðhalds­­að­­gerða sem ­rík­­is­­sjóður þurfti að grípa til, að kjara­ráð myndi einnig „ákveða ­laun og starfs­­kjör fram­­kvæmda­­stjóra hluta­­fé­laga og ann­­ars konar félaga, einka­rétt­­ar­eð­l­is, sem eru að meiri hluta í eigu rík­­is­ins og félaga sem eru að ­meiri hluta í eigu félaga sem undir þessa máls­­grein falla.“

Sam­­kvæmt lög­­unum átti kjara­ráð að gæta þess að „ákveða laun og ­starfs­­kjör fram­­kvæmda­­stjóra hluta­­fé­laga og ann­­ars konar félaga, einka­rétt­­ar­eð­l­is, sem eru að meiri hluta í eigu rík­­is­ins og félaga sem eru að ­meiri hluta í eigu félaga sem undir þessa máls­­grein falla.“

Meg­in­reglan var sú að föst laun allra for­stjóra fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins þurfi að vera lægri en laun for­sæt­is­ráð­herra.

Ný lög um kjara­ráð, sem færðu launa­á­kvörð­un­­ar­­vald frá ráð­inu til stjórna opin­beru fyr­ir­tækj­anna, tóku gildi í byrjun júlí 2017. Í kjöl­farið hækk­uðu laun margra rík­is­for­stjóra veru­lega.

Þrátt fyrir miklar hækkanir ráðherra eru þeir langt á eftir forstjórum

Laun þing­­manna lands­ins hækk­uðu í fyrra­sum­ar, um 6,2 pró­­sent, og eru orðin 1.285.411 krónur á mán­uði. Frá miðju ári 2016 hafa laun þeirra hækkað um rúm­lega 80 pró­sent.

[links]Grunn­laun for­­sæt­is­ráð­herra mið af þing­fara­kaupi en ofan á það leggst álags­greiðsla upp á 1.074.642 krón­ur. Sam­tals eru laun Katrínar Jak­obs­dóttur því 2.360.053 krónur á mán­uði. Aðrir ráð­herrar fá lægri álags­greiðslu ofan á þing­fara­kaupið en eru samt sem áður með 2.131.788 krónur í mán­að­ar­laun.

Laun ráð­herra hafa hækkað skarpt, og langt umfram almenna launa­þró­un, á und­an­förnum árum. Snemm­sum­ars 2016 voru almennir ráð­herrar með 1.257.425 krónur í mán­að­ar­laun og hafa því hækkað um 874.363 krónur síðan þá, eða um 70 pró­sent. Hækkun ráð­herra­­laun­anna nemur rúm­­lega 150 pró­­sent af mið­­gildi heild­­ar­­tekna á Íslandi.

Samt eru sex þeirra for­stjóra fyr­ir­tækja sem eru að meiri­hluta í opin­berri eigu sem fjallað er um hér að ofan með umtals­vert hærri laun en for­sæt­is­ráð­herra. Sá sem hæstu launin hefur, banka­stjóri Lands­bank­ans, er með rúm­lega tvö­föld ráð­herra­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár