Guðni: Stöndum saman um samfélag sem hafnar ráðríki hinna freku

Forseti Íslands fjall­aði um þá sem féllu fyrir ann­arra hendi á nýliðnu ári, bar­átt­una gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og áreitni, virkj­un­ar­mál og fátækt í nýársávarpi sínu. Þá vitn­aði hann í tíu ára rapp­ara og Halldór Laxness.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sagði í nýársávarpi sínu í dag að nýlið­ins árs yrði kannski einkum minnst fyrir þau tíma­mót að konur hafi fylkt liði gegn kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi, sögðu hingað og ekki lengra og karlar tóku undir. „Við eigum að standa saman um sam­fé­lag sem hafnar ráð­ríki hinna freku, áfergju þeirra sem þykj­ast geta kom­ist upp með hvað sem er. Í þessum efnum sem öðrum má þó var­ast alhæf­ingar, hvik­sögur og hald­lausar ásak­anir; þær spilla góðum mál­stað.“

Guðni sagði að nú væri uppi mikið hag­vaxt­ar­skeið hér­lendis. Góðæri sem sumir líki við árið 2007. „Laust fyrir jól mátti lesa í einum fjöl­miðli að þessi gósentíð sæist meðal ann­ars í eld­húsum lands­manna „sem virð­ast verða flott­ari og dýr­ari með hverjum deg­inum“. Annars staðar var frá því greint að end­ur­vinnslu­stöðvar hefðu vart undan að taka við varn­ingi fólks, oftar en ekki í góðu lagi en utan tísku­strauma og þyrfti því að farga. Er þetta alveg sjálf­sagt?“

For­set­inn sagði að á sama tíma og sumir lifi við þetta góð­æri berj­ist margir við að ná endum saman og búi jafn­vel við sára fátækt. Efnisleg verð­mæti tryggi þó ekki endi­lega ham­ingju og lífs­gæði og að það væri áhyggju­efni hversu illa Íslandi hefði gengið að safna í sjóð þegar vel áraði. „Er þetta eitt­hvað í þjóð­arsál­inni? Í rapp­lag­inu „Græða pen­ing­inn“ syngur tíu ári snáði, Úlfur Emilio Machado Tinnuson, um þá list sem geri honum kleift að kaupa ís og bland í poka. „Sóaði öllum pen­ing­unum en ég bara græði á morgun,“ segir svo áfram í lag­inu. Bragð er að þá barnið finnur! Hér má horfa öfund­ar­augum til Norð­manna sem báru gæfu til að setja olíu­auð sinn í þjóð­ar­sjóð. Við búum líka yfir sam­eig­in­legum auð­lindum. Þau lofa því góðu, áform stjórn­valda um þjóð­ar­sjóð Íslands sem tryggi að arður auð­lind­anna renni til nýsköp­unar og nauð­syn­legra end­ur­bóta í heil­brigð­is­kerf­inu, auk ann­arra þjóð­þrifa­mála.“

Guðni sagði að Íslend­ingar búi í sam­fé­lagi og eigi að hugsa vel hverjir um aðra. „Ég vona að við getum verið sam­mála um þann grund­völl þjóð­skipu­lags­ins að jafn­rétti ríki á öllum sviðum, að allir fái grunn­menntun og geti reitt sig á öfl­ugt vel­ferðar- og heil­brigð­is­kerfi, óháð efna­hag eða búsetu, að allir megi njóta eigin atorku en greiði sann­gjarna skatta og skyldur til sam­eig­in­legra þarfa, og allir njóti arðs af sam­eig­in­legum auð­lindum okkar.“

Hægt er að lesa ávarp for­set­ans í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár