Meirihluti landsmanna andvígur kvótakerfinu

Rúm 60 pró­sent lands­manna segj­ast í nýrri könnun vera frekar eða mjög and­víg núver­andi kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi. „Fólki mis­býður sér­hags­muna­gæslan,“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins greiddu sér 21,5 millj­arða króna í arð árið 2020.
Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins greiddu sér 21,5 millj­arða króna í arð árið 2020. Mynd: Ríkisendurskoðun

Rúmlega 60 pró­sent lands­manna eru and­víg núver­andi kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi, sam­kvæmt nið­ur­stöðum skoð­ana­könn­unar Prósents sem birt er í Frétta­blað­inu í dag. Tuttugu pró­sent þeirra sem tóku afstöðu í könn­un­inni seg­ist vera mjög eða frekar hlynnt kerf­inu en 61 pró­sent frekar eða mjög and­víg því.

Konur eru tölu­vert and­víg­ari kerf­inu en karlar og íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru einnig and­víg­ari því en íbúar á lands­byggð­inni.

Mestur stuðn­ingur við kerfið er hjá þeim sem eru 65 ára eða eldri og þeim tekju­hæstu. And­staðan við kvóta­kerfið er mest í ald­urs­hópnum 35 til 44 ára. 71 pró­sent fólks á þeim aldri er and­vígt kerf­inu en þrettán pró­sent styðja það.

[adspot]

Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins, sam­tala arð­greiðslna og auk­ins eigin fjár þeirra, hefur vænkast um meira en 500 millj­arða króna frá banka­hruni. Geirinn greiddi sér meira út í arð árið 2020 en hann greiddi í öll opin­ber gjöld. Í frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið sem birt var í sept­em­ber á síð­asta ári kom m.a. fram að heild­ararð­greiðslur út úr sjáv­ar­út­vegi frá byrjun árs 2016 og út árið 2020 námu 70,5 millj­örðum króna. Á sama tíma­bili hefði geir­inn greitt 35,9 millj­arða króna í veiði­gjöld, eða rétt rúm­lega 50 pró­sent af þeirri upp­hæð sem eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja höfðu fengið í arð.

[links]Haft er eftir Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, í Frétta­blað­inu í dag að nið­ur­stöður könn­un­ar­innar komi henni ekki á óvart en að erfitt sé að draga skýrar álykt­anir af þeim enda kunni fólk að hafa margar og mis­jafnar skoð­anir á því hvernig megi breyta því kerfi sem er við lýði. „Markmið fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins var að koma á sjálf­bærum veiðum. Of mörg skip voru að elt­ast við of fáa fiska. Þorsk­stofn­inn hrundi, afkoman var afleit og hið opin­bera þurfti ítrekað að veita fyr­ir­tækjum fjár­hags­legt lið­sinni. Verk­efnið var því að tryggja umhverf­is­lega, efna­hags­lega og sam­fé­lags­lega sjálf­bærni,“ segir hún við Frétta­blaðið.

Misbýður sérhagsmunagæslan

Mikil sam­þjöppun hefur orðið innan kvóta­kerf­is­ins á und­an­förnum árum sem leitt hefur til þess að eig­endur örfárra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa efn­ast veru­lega, líkt og rakið var í frétta­skýr­ingu Kjarnans síð­asta haust. Ítök þeirra í ótengdum geirum hér­lendis hafa sam­hliða vaxið hratt.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, segir við Frétta­blaðið að órétt­læti sé helsta skýr­ingin á and­stöðu við kvóta­kerfið. „Fólki mis­býður sér­hags­muna­gæslan,“ segir hún. „Það er ein­fald­lega ekki rétt gefið og rík­is­stjórnin vill hafa þetta svona. Þegar upp er staðið er varð­staðan um sjáv­ar­út­veg­inn meg­in­á­stæða þess að rík­is­stjórnin ákvað að halda áfram sam­starf­inu. Til þess voru ref­irnir skornir.“

Könnunin var gerð á net­inu dag­ana 14. til 26. jan­úar. Úrtakið var 2.300 ein­stak­lingar og svar­hlut­fall var 50 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár