Kallar eftir upplýsingum um hvað ríkustu Íslendingarnir eiga mikið

Logi Ein­ars­son hefur lagt fram fyr­ir­spurn á Alþingi og vill fá að vita hvað allra rík­ustu fjöl­skyldur lands­ins eiga mikið eigið fé. Hann vill líka fá upp­lýs­ingar um hvernig sú eign hefur þró­ast á und­an­förnum árum.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vill fá upp­lýs­ingar um hvert eigið fé rík­ustu fimm pró­sent, eitt pró­sent og 0,1 pró­sent lands­manna í árs­lok árs­ins 2016. Hann hefur lagt fram fyr­ir­spurn á Alþingi þess efnis.

Fyr­ir­spurnin er efn­is­lega sam­hljóma fyr­ir­spurn sem Árni Páll Árnason, þáver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði fram í des­em­ber 2014. Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi og núver­andi fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, svar­aði fyr­ir­spurn­inni í febr­úar 2015.

[links]Í svari ráð­herra kom fram að þau fimm pró­sent lands­manna sem mest áttu í lok árs 2013 hafi átt 1.052 millj­arðar króna. Þessi hóp­ur, sem taldi þá um tíu þús­und fjöl­skyld­ur, átti tæp­lega helm­ing alls eigin fjár á Íslandi í lok þess árs.

Rík­asta eitt pró­sent lands­manna átti um 483 millj­arða króna í eigið fé (22 pró­sent af eigið fé lands­manna) og rík­asta 0,1 pró­sent­ið, um 200 fjöl­skyld­ur, áttu 169 millj­arða króna (7,7 pró­sent alls eigin fjár). 20 árum áður átti sama hlut­fall íslensku þjóð­ar­innar 2,6 pró­sent af heild­ar­eignum henn­ar, en þá voru fjöl­skyld­urnar 144. Hluta­bréfa­eign er metin á nafn­virði í töl­unum, ekki mark­aðsvirði, og því er afar lík­legt að eignir þeirra rík­ustu séu tals­vert meiri en kemur fram hér að ofan. Hinir rík­ustu eru enda lík­legri en aðrir til að vera umsvifa­miklir eig­endur hluta­bréfa.

Misskipting auðs eykst áfram á Íslandi

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 12. októ­ber síð­ast­lið­inn að þær rúm­lega 20 þús­und fjöl­skyldur sem til­heyra þeim tíu pró­sentum þjóð­ar­innar sem eiga mest eigið fé – eignir þegar skuldir hafa verið dregnar frá – hafi átt 2.062 millj­arða króna í hreinni eign um síð­ustu ára­mót. Alls á þessi hópur 62 pró­sent af öllu eigin fé í land­inu. Eigið fé hans jókst um 185 millj­arða króna á síð­asta ári.

[adspot]Eigið fé hinna 90 pró­sent lands­manna jókst á sama tíma um 209 millj­arða króna. Það þýðir að tæp­lega helm­ingur þeirrar hreinu eignar sem varð til á síð­asta ári fór til tíu pró­sent efna­mestu fram­telj­end­anna.Þegar eigið fé 20 pró­sent efna­mestu fjöl­skyldna þjóð­ar­innar er skoðað kemur í ljós að sá hópur á 85 pró­sent af öllu eigið fé í land­inu. Sá helm­ingur þjóð­ar­innar sem á minnst er sam­an­lagt með nei­kvætt eigið fé upp á 175,3 millj­arða króna. Þetta kom fram í tölum um eig­in­fjár­stöðu Íslend­inga í lok árs 2016 sem birtar voru í byrjun októ­ber.

Ekki er boðið upp á frek­ari skipt­ingu í tölum Hag­stof­unnar um eig­in­fjár­stöðu en á milli tíunda. Því eru ekki, sem stendur, aðgengi­legar um hversu mikið eigið fé rík­asta eitt pró­sent lands­manna átti um síð­ustu ára­mót. Þær upp­lýs­ingar munu hins vegar liggja fyrir þegar fyr­ir­spurn Loga verður svarað á kom­andi vor­þingi.

Ríkasta prósentið þénaði helming fjármagnstekna

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber að alls hafi Íslend­ingar þénað 117 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2016. Það er umtals­vert meira en árið áður, þegar heild­ar­fjár­magnstekjur Íslend­inga voru 95,3 millj­arðar króna.

Tekj­urnar dreifð­ust ekki jafnt á milli hópa. Þvert á móti. Tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna tók til sín 55 millj­arða króna af þeim tekjum sem urðu til vegna fjár­magns í fyrra, eða 47 pró­sent þeirra. Það er bæði hærri krónu­tala og hærra hlut­fall en þessi hópur, sem sam­anstendur af 1.966 fram­telj­endum (1.331 ein­hleypum og 635 sam­skött­uðum), hafði í fjár­magnstekjur á árinu 2015.

Þessi staða þýðir að hin 99 pró­sent íslenskra skatt­greið­enda skipti á milli sín 53 pró­sent fjár­magnstekna sem urðu til á árinu 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár