Heimsfréttir ársins og það sem er fram undan árið 2020

Hér verður stiklað á stóru um árið sem er að líða en um leið spáð í spilin fyrir kom­andi ár um hvernig stærstu málin munu halda áfram að þró­ast.

Táknmynd alþjóðlegar baráttu
Táknmynd alþjóð­legar bar­áttu Greta Thunberg hefur á undra­skömmum tíma komið því til leiðar að ungt fólk um heim allan krefst aðgerða í lofts­lags­málum. Tíma­ritið Time útnefndi hana af því til­efni Mann­eskju árs­ins 2019. Mynd: Shutterstock

Mótmæli og valdarán í Suður-Ameríku

Árið 2019 var róst­ur­samt ár í stjórn­málum nokk­urra stórra ríkja í rómönsku Ameríku. Nicolas Maduro, for­seti Venes­ú­ela, sór emb­ætt­is­eið á ný í jan­úar eftir að hann var end­ur­kjör­inn í umdeildum kosn­ingum en stjórn­ar­and­stæð­ingar full­yrtu að brögð væru í tafli. Hann situr þó sem fast­ast þrátt fyrir gríð­ar­lega slæmt efna­hags­á­stand og mik­inn þrýst­ing frá bæði inn­lendum og erlendum stjórn­mála­öflum sem vilja steypa honum af stóli. 

Maduro undir þrýst­ingiForseti Venes­ú­ela var end­ur­kjör­inn í jan­úar en situr í skugga ásak­ana um kosn­inga­svindl.

Um haustið brut­ust út mikil mót­mæli í Chile þar sem að minnsta kosti 19 létu lífið og þús­undir særð­ust í átökum við her­sveitir sem voru kall­aðar út af for­seta lands­ins. Mótmælin beindust upp­haf­lega gegn hækk­unum á gjald­skrá jarð­lesta­kerfis í höf­uð­borg­inni Santiago en fóru fljótt að snú­ast um almenn­ari kröfur um efna­hags­um­bætur og upp­stokkun í stjórn­kerf­inu. Mót­mæl­endur löm­uðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár