Ný ríkisstjórnarmynstur í kortunum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í frjálsu falli í könn­unum MMR og hefur aldrei mælst með minna fylgi. Flokk­ur­inn er samt stærstur allra, en mögu­leikar hans í rík­is­stjórn­ar­starfi virð­ast ekki margir.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur áfram að tapa fylgi, sam­kvæmt könn­unum MMR. Þessi stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins, sem lengi gekk að um 40 pró­sent fylgi vísu, mæld­ist í fyrsta sinn með undir 20 pró­sent fylgi í könn­unum MMR í júlí síð­ast­liðnum. Hann var á svip­uðum slóðum í ágúst en í nýj­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var fram­kvæmd dag­anna 9. til 16. sept­em­ber, var fylgi hans komið niður í 18,3 pró­sent. Það er lægsta fylgi sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur mælst með í könn­unum MMR.

Frá síð­ustu kosn­ingum, þegar flokk­ur­inn fékk 25,2 pró­sent atkvæða, hefur hann tapað 6,9 pró­sentu­stigum, eða um 27 pró­sent af fylgi sínu.

Þegar horft er lengra aftur, til kosn­ing­anna 2016, er fylgis­tapið 10,7 pró­sentu­stig. Það þýðir að 37 pró­sent af kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur yfir­gefið hann frá því að talið var upp úr kjör­köss­unum í októ­ber 2016.

Versta nið­ur­staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kosn­ing­unum í sög­unni var í fyrstu þing­kosn­ing­unum sem haldnar voru eftir banka­hrun, vorið 2009. Þá fékk flokk­ur­inn 23,7 pró­sent atkvæða. Ljóst er að ef kosið yrði í dag, og nið­ur­staðan yrði í takt við nýj­ustu könnun MMR, þá myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá sína verstu útreið nokkru sinni, en yrði samt sem áður stærsti flokkur lands­ins. Jafnvel þótt að stuðst sé við efri vik­mörk í könn­un­inni þá er fylgi Sjálf­stæð­is­flokks ein­ungis 21,4 pró­sent. Ef horft er á neðri mörk könn­un­ar­innar mælist fylgið 15,2 pró­sent.

Ef sept­em­berkönnun MMR yrði nið­ur­staða kosn­inga myndu lík­leg­ast 7,6 pró­sent atkvæða falla niður dauð. Þ.e. Flokkur fólks­ins (4,0 pró­sent) myndi falla af þingi og Sós­í­alista­flokkur Íslands (2,0 pró­sent) myndi ekki ná inn. Þá sögð­ust 1,6 pró­sent svar­enda að þeir ætl­uðu að kjósa annað.

Miðað við það yrðu flokk­arnir á þingi sjö, í stað átta eins og nú er. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir, sem standa að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, gætu vænst þess að fá 29 þing­menn. Það myndi ekki duga og stjórnin yrði því fall­inn. Þar af gæti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn búist við að fá 12, í besta falli 13, þing­menn kjörna. Það er átta til níu færri en flokk­ur­inn fékk 2016 og þremur til fjórum færri en hann hefur nú.

Vert er þó að muna að enn er rúmt eitt og hálft ár eftir af kjör­tíma­bil­inu. Og vika er langur tími í póli­tík.

Samfylkingin tapar mestu milli mánaða

Sam­fylk­ingin, sem átti við stofnun að verða ein­hvers­konar mót­vægis­turn við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í íslenskum stjórn­málum, er langt frá þeirri stöðu sem flokk­ur­inn var í þegar hann fékk 31 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2003.

Árið 2016 var flokk­ur­inn nálægt því að þurrkast út af þingi, fékk 5,7 pró­sent atkvæða og einn kjör­dæma­kjör­inn þing­mann, núver­andi for­mann­inn Loga Ein­ars­son.

Síðan þá hefur flokk­ur­inn bragg­ast umtals­vert, fékk rúm­lega tvö­falt meira fylgi í kosn­ing­unum 2017 en árið áður og hefur mælst með meira fylgi en kom upp úr köss­unum þá í nán­ast öllum könn­unum MMR á þessu kjör­tíma­bili. Mest mæld­ist fylgið 19,8 pró­sent fyrir ári síðan en hefur dalað umtals­vert frá þeim tíma. Nú segj­ast 14,8 pró­sent að þeir myndu kjósa flokk­inn, en þeim fækk­aði um tvö pró­sentu­stig milli ágúst og sept­em­ber. Enginn einn flokkur missti meira fylgi milli mán­aða. Þessi staða myndi skila Sam­fylk­ing­unni um tíu þing­mönnum.

Fylgi færist innan blokkar

Hinir flokk­arnir á hinni sjálf­skil­greindu frjáls­lyndu miðju, Píratar og Viðreisn, taka það fylgi sem Sam­fylk­ingin tapar. Alls segj­ast 12,4 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa Pírata nú sem myndi þýða betri útkomu fyrir flokk­inn en í kosn­ing­unum 2017 en verri en þegar talið var upp úr kjör­köss­unum 2016, þegar Píratar fengu 14,5 pró­sent atkvæða. Það myndi lík­lega skila um átta þing­mönnum í hús.

Viðreisn nálg­ast sömu­leiðis það fylgi sem flokk­ur­inn fékk árið 2016 (10,5 pró­sent) en í dag segj­ast 10,2 pró­sent ætla að kjósa flokk­inn. Það er 52 pró­sent fleiri en kusu hann í októ­ber 2017. Fjöldi þing­manna Við­reisnar myndi þá vaxa upp í sjö tals­ins. Það eru jafn­margir þing­menn og flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2016 en þremur fleiri en hann fékk síð­ast þegar kosið var.

Sam­an­lagt er fylgi þess­ara þriggja flokka, Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar, afar stöðugt. Það mælist nú 37,4 pró­sent og hefur hald­ist á þeim slóðum meira og minna allt kjör­tíma­bilið. Allir mæl­ast þeir með meira fylgi en þeir fengu í októ­ber 2017. Saman fengu flokk­arnir þrír 28 pró­sent þá og því um umtals­verða fylg­is­aukn­ingu blokk­ar­innar að ræða.

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði í við­tali við Mannlíf í jan­úar að hann vildi mynda rík­is­stjórn með Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum. Það er sama mynstur og stýrir nú málum í Reykja­vík­ur­borg. Að óbreyttu, miðað við könnun MMR, gæti sá kap­all gengið upp. Flokk­arnir gætu búist við því að fá 25 þing­menn og þyrftu þá að bæta sjö við sig til að geta myndað meiri­hluta­stjórn. Þeir þing­menn eru í boði.

Fjögurra flokka stjórn með Vinstri grænum eða Framsókn

Flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans mælist nefni­lega með 12,8 pró­sent fylgi og bætir ágæt­lega við sig milli mán­aða. Vinstri græn eru þó enn langt frá kjör­fylgi sínu, 16,9 pró­sent. Enn vantar að um fjórð­ungur kjós­enda skili sér aftur til að sá árangur verði jafn­aður. Þing­mönnum flokks­ins myndi lík­ast til fækka um einn og verða níu. Flokk­ur­inn gæti því myndað fjög­urra flokka Reykja­vík­ur­rík­is­stjórn með ofan­greindum þremur flokkum sem hefði fimm þing­manna meiri­hluta.

Það gæti Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lika gert. Hann virð­ist á ágætis flugi og bætir vel við sig á milli mán­aða. Alls segj­ast 11,8 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa þann flokk ef gengið yrði til kosn­inga í dag, sem er 1,1 pró­sentu­stigi meira en hann fékk í kosn­ing­unum 2017. Þing­manna­fjöldin yrði þó sá sami og nú, eða átta tals­ins. Hann gæti dugað til að mynda þriggja þing­manna meiri­hluta með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Viðreisn.

Það virðast ekki margir augljósir kostir í stöðunni fyrir Bjarna Benediktsson að halda völdum miðað við stöðu mála í könnunum. En hann hefur sýnt að Sjálfstæðisflokkurinn getur náð að auka fylgi sitt á ögurstundu og komið sér í oddastöðu.
Það virð­ast ekki margir aug­ljósir kostir í stöð­unni fyrir Bjarna Bene­dikts­son að halda völdum miðað við stöðu mála í könn­unum. En hann hefur sýnt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn getur náð að auka fylgi sitt á ögur­stundu og komið sér í odda­stöðu.

Þá má ekki úti­loka að Sam­fylk­ingin, Píratar, Framsókn og Vinstri græn myndu skoða myndun stjórnar. Saman mæl­ast þessir flokkar með um 35 þing­menn og rúman meiri­hluta.

Ómögulegt að mynda einhvers konar hægri stjórn

Það virð­ist erf­ið­ara að sjá stjórn­ar­mynstur sem gæti virkað í hægra hólfi stjórn­mál­anna.

Mið­flokk­ur­inn, sem var upp­haf­lega klofn­ings­fram­boð úr Fram­sókn­ar­flokknum, hefur bætt nákvæm­lega jafn miklu fylgi við sig og gamli móð­ur­flokk­ur­inn, eða 1,1 pró­sentu­stigi, frá síð­ustu kosn­ingum. Alls segj­ast 12 pró­sent lands­manna að þeir myndu kjósa þann flokk sem gerir hann 0,2 pró­sentu­stigum stærri en Framsókn, en það er ekki mark­tækur munur. Hann er því orð­inn nokkuð umsvifa­mikið afl í íhalds­samasta, og þjóð­ern­is­sinn­að­asta, hólf­inu á hægri ás stjórn­mál­anna og gæti vænst þess að fá átta þing­menn ef kosið yrði í dag, einum færri en flokk­ur­inn er með í dag. Það verður þó að taka með í dæmið að tveimur þing­menn Flokks fólks­ins gengu til liðs við Mið­flokk­inn í byrjun árs eftir að þeir voru reknir úr flokknum sem þeir voru kjörnir á þing fyrir vegna Klaust­ur­máls­ins.

Ef ein­ungis er horft á fylgi flokka sem raða sér upp á þeim anga mætti ætla að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Við­reisnar væri mögu­leg. Slík myndi hafa 35 þing­menn. Miðað við nið­ur­stöðu könn­unar MMR á myndi hann geta orðið fjórða hjólið undir núver­andi rík­is­stjórn og tryggt henni meiri­hluta, en engar líkur eru á því að Vinstri græn eða Framsókn myndu starfa með Mið­flokknum og litlar líkur eru á sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem stendur, sér­stak­lega eftir deil­urnar um þriðja orku­pakk­ann.

Enginn hinna stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hugn­ast sam­starf við Mið­flokk­inn undir nokkrum kring­um­stæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár