Mynd: EPA

Ástríðan ólgar enn í blóði Biles

Hún er mætt aftur. Full af ein­stökum krafti og per­sónu­töfrum. Full ákafa, metn­aðar og mann­gæsku. Simone Biles, fremsta fim­leika­mann­eskja allra tíma, er enn að gera stór­kost­legar æfingar sem kalla fram gæsa­húð hjá áhorf­endum.

Simone Biles er enn að koma öllum á óvart. Hreyf­ingar hennar í gól­f­æf­ingum og á jafn­væg­iss­lánni eru svo óvenju­legar að áhorf­endur sitja oft orð­lausir af undrun og aðdáun. Biles er lík­lega vin­sæl­asti íþrótta­maður heims í augna­blik­inu – nýbúin að tryggja sér rétt á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó síðar í sumar – leikum sem gætu orðið hennar síð­ustu.

Og þó.

Nú þegar hún er orðin 24 ára telja sumir að hún eigi enn eftir að ná toppi fer­ils­ins. Ólymp­íu­leik­anna í Tókýó er því beðið með gríð­ar­legri eft­ir­vænt­ingu.

Hún hefur unnið tugi titla, er dýrkuð og dáð um heims­byggð­ina alla, en hún man vel þá daga þegar hún vissi ekki hvenær hún fengi næst að borða. Lífið hefur oft reynst henni erfitt en seigla hennar og dugn­aður er það sem kom henni þangað sem hún er í dag.

Þegar Biles var lítil stúlka bjó hún ásamt þremur systk­inum sínum hjá móður sem glímdi við bæði alvar­legan áfengis- og fíkni­efna­vanda. Biles rifj­aði nýverið upp að á þessum tíma hafi hún verið meira upp­tekin af því að leita matar en full­komn­unar í fim­leika­æf­ing­unum.

„Við systk­inin vorum mjög upp­tekin af mat því að við höfðum ekki mikið af honum,“ segir Biles. „Ég man að það var flæk­ingsköttur fyrir framan húsið. Og ég man að þessi köttur fékk að borða og þá hugs­aði ég: „Hvar er eig­in­lega mat­ur­inn minn?““

Barna­vernd­ar­yf­ir­völd gripu svo inn í eftir ábend­ingar frá nágrönnum sem höfðu áhyggjur af vel­ferð Biles og systk­ina hennar. Þau voru öll send á fóst­ur­heim­ili og Biles seg­ist þakk­lát­ust fyrir að þeim hafi verið leyft að halda hóp­inn.

Hún seg­ist þó enn glíma við erf­iðar til­finn­ingar sem vökn­uðu sífellt hjá henni sem barni. Að systk­inin yrðu einn dag­inn aðskilin. Eitt sinn seg­ist hún hafa hlaupið inn í her­bergi eldri bróður síns um miðja nótt því hún ótt­að­ist að hann yrði horf­inn úr lífi hennar dag­inn eftir.

Biles á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016. Á þeim fangaði hún algjörlega hjarta heimsbyggðarinnar.
Biles á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó árið 2016. Á þeim fang­aði hún algjör­lega hjarta heims­byggð­ar­innar.

Minn­ing­arnar um dvöl­ina á fóst­ur­heim­il­inu eru þó að öðru leyti ekki skýrar. Biles var ung en seg­ist þó hafa vitað að hún hafi verið tekin frá móður sinni. „Þannig að ég hugs­aði stöðugt hvenær ég færi aftur til hennar.“

Að lokum var það móð­ur­afi hennar, Ron Biles, og síð­ari eig­in­kona hans, Nellie, sem ætt­leiddu Biles og yngri systur hennar. Syst­urnar fóru fljótt að kalla þau „mömmu og pabba“.

Bræður Biles fluttu til Ohio og bjuggu þar hjá frænku þeirra. „Í sumum aðstæðum þá er eins og þú hafi rimla­búr í kringum hjarta þitt,“ segir Biles. „Það eru hlutir sem að þú geymir þar til að tryggja öryggi þitt.“

Nellie Biles, sem gekk systr­unum Simone og Adriu í móð­ur­stað, segir hlut­verkið hafa reynst sér erfitt í fyrstu. Hún hafi ekki tengst systr­unum strax en beðið fyrir því að svo myndi verða. Og hún seg­ist sann­ar­lega hafa verið bæn­heyrð. „Að segja þeim að þú elskir þau – það eru bara orð,“ segir Nellie, „en að vakna einn dag­inn og átta þig á því að þú myndir gera hvað sem er fyrir þær, það er annað. Að þú myndir fórna lífi þínu fyrir þær.“ Þegar þær til­finn­ingar hafi vaknað hafi hún farið að líta á sjálfa sig sem móður þeirra.

Simone Biles fædd­ist í Ohio-ríki 14. mars árið 1997 og er næst yngst fjög­urra systk­ina. Hún kynnt­ist föður sínum lítið. Hann yfir­gaf fjöl­skyld­una á meðan hún var enn á barns­aldri.

Hún var sex ára þegar hún kynnt­ist fim­leikum í fyrsta skipti. Þá var hún flutt í úthverfi Houston í Texas. Hún fylgd­ist með fim­leika­fólk­inu æfa og reyndi að herma eftir því. Þjálf­ar­inn tók eftir þessu og hvatti for­eldra hennar, afa hennar og stjúpömmu sem höfðu ætt­leitt hana, til að skrá hana á fim­leik­a­nám­skeið. Þegar hún var átta ára fékk hún nýjan þjálf­ara, Aimee Boorman og hélt hún áfram að þjálfa Biles til árs­ins 2016.

Það var ekki aftur snúið.

Allan fer­il­inn hefur Biles lagt mikið á sig. Æft lengi, oft um 35 klukku­stundir á viku. Árið 2015 stofn­uðu for­eldrar hennar æfinga­stöð í Spring í Texas og þar eyddi hún mest öllum sínum stundum næstu árin. Sú stöð er þegar orðin þekkt fyrir að hlúa sér­stak­lega að and­legri líðan iðk­enda. Eitthvað sem oft hefur orðið útundan í íþrótt­inni vest­an­hafs.

Biles tók þátt á sínum fyrstu stór­mótum í Banda­ríkj­unum árið 2011 og var árangur hennar ágætur. Á þessum tíma var hún orðin stað­ráðin í að setja fim­leik­ana í for­gang. Hún hætti í form­legum skóla og fékk kennslu heima. Árið 2012 tryggði hún sér þátt­töku­rétt á banda­ríska meist­ara­mót­inu og náði þar stór­kost­legum árangri sem eftir var tekið. Í kjöl­farið var hún tekin inn í fim­leika­lands­lið ung­linga.

Síðan þá hefur leiðin legið upp – hátt upp – með hennar ein­kenn­andi stökkum; tvö­földu helj­ar­stökki með tvö­faldri skrúfu af slá og tvö­földu helj­ar­stökki með þre­faldri skrúfu í gól­f­æf­ingum.

Það er eng­inn eins og hún.

Einbeitt á stórmóti í Þýskalandi haustið 2019. Í hönd fór erfitt ár.
Einbeitt á stór­móti í Þýska­landi haustið 2019. Í hönd fór erfitt ár.

En það tekur á að ná þessum árangri. Og þegar Simone Biles neydd­ist til að slaka aðeins á í heims­far­aldri kór­ónu­veirunnar reynd­ist það henni, eftir á að hyggja, blessun. Hún seg­ist hafa fundið jafn­vægi í líf­inu – lífi sem hingað til hefur ein­kennst af fim­leikum númer eitt, tvö og þrjú. Hún sagði í ítar­legu við­tali við Glamour á dög­unum að hún hafi notið lífs­ins án hinnar stöð­ugu keppni. Hún hafi því hafið und­ir­bún­ing fyrir Ólymp­íu­leik­ana í Tókýó með nýrri sýn á til­ver­una og meiri gleði en áður.

Hún þurfti þennan tíma. Heims­far­ald­ur­inn hafði orðið til þess að fresta varð Ólymp­íu­leik­unum um eitt ár eftir allan þann und­ir­bún­ing sem íþrótta­fólk heims­ins hafði lagt á sig. En það var ekki aðeins það áfall sem kvaldi Biles. Nokkru áður hafði verið afhjúpað hvernig ofbeldi og mis­notkun hafði þrif­ist innan heims­ins sem hún ólst upp í. Fim­leika­heims­ins. Hvernig þjálf­urum og öðrum stjórn­endum hafði mis­tek­ist að vernda iðk­endur en þess í stað átt sinn þátt í að þagga óhugn­að­inn niður. Talað hefur verið um ofbeld­is­menn­ingu í þessu sam­bandi – sem var leyft að við­gang­ast í ára­tugi.

Banda­ríska fim­leika­sam­bandið hefur af þessum sökum verið harð­lega gagn­rýnt, m.a. af Biles sjálfri. Hún þekkir það sem á gekk af eigin raun, var sjálf beitt kyn­ferð­is­of­beldi en keppir enn og minnir þannig alla stöðugt á að vanda­mál sem þessi hverfa ekki. Þau þarf að takast á við. Sjálf seg­ist hún vita að ef hún fari djúpt inn í málið núna gæti það kostað hana ein­beit­ing­una. Hún seg­ist geta „hólfað“ það sem gerð­ist af og hún reyni að hugsa ekki mikið um það í augna­blik­inu. „Ef ég læt þá stjórna mér, þá vinna þeir,“ segir hún við Glamour.

Und­an­farið ár hefur Biles notað óvæntan frí­tíma sinn til að búa sér heim­ili í húsi sem hún festi kaup á í Texas. Koma sér þar fyrir ásamt hund­unum sínum tveimur. Og stundum er kærast­inn hjá henni. Á meðan sam­komu­tak­mark­anir voru í gildi eyddi Biles flestum stundum í þessu húsi. Þar tókst hún á við allar þessar erf­iðu hugs­anir, ekki aðeins þann mögu­leika að kannski myndi hún aldrei aftur keppa á ólymp­íu­leikum því þeir sem halda átti 2020 hefðu lík­lega átt að vera hennar síð­ustu.

Í útgöngu­banni sem sett var á í Texas komst hún ekki í æfinga­sal­inn. Það tók á, and­lega og lík­am­lega. Hún seg­ist hafa farið í gegnum allt til­finn­ing­arófið; orðið reið, pirruð og sorg­mædd. Hún varð döpur og íhug­aði að hætta. En leyfði sér aldrei að fara langt inn í þá hugsun. Eftir allt sem hún hafði lagt á sig var það, eftir á að hyggja, fjar­stæðu­kennt.

En það þýddi að hún varð að halda sér í formi. Og ekki bara ein­hverju ágætis formi heldur hörku keppn­is­formi – að reyna að gæta þess að halda lík­am­anum á þeim stað að stutt sé í toppaf­köst – ef vera skyldi að allt félli í ljúfa löð og stór­mótin færu að hlað­ast inn í stunda­skrána á ný. „Ég gerði þetta og ég gerði þetta fyrir sjálfa mig af því að ég hef enn svo mikla ástríðu fyrir íþrótt­inni.“

Engu að síður, þrátt fyrir miklar æfingar á hinu for­dæma­lausa ári heims­far­ald­urs­ins, seg­ist Biles hafa fundið nýtt jafn­vægi. Áður hafi allir dagar snú­ist um fim­leika­sal­inn. Hún hafi nú kom­ist að því að hún getur einnig verið glöð og ham­ingju­söm utan hans. „Mér finnst eins og allt sé að verða eins og það á að vera.“

Einstakur íþróttamaður á fljúgandi siglingu.
Ein­stakur íþrótta­maður á fljúg­andi sigl­ingu.

Síðustu mán­uði hafi hún ein­beitt sér að því að finna áhuga­mál, njóta þess að gera hluti sem jafn­aldrar hennar taka sem sjálf­sögðum hlut, „bara virki­lega reyna að finna hver ég er“. Þá seg­ist hún hafa kom­ist að því að það sé í góðu lagi að biðja um hjálp þegar á reyni. Það hafi hún lært í sál­fræði­með­ferð sem hún hafi í fyrstu verið hik­andi við að fara í en hafi reynst henni gríð­ar­lega vel.

Móðir hennar, Nellie Biles, seg­ist finna mik­inn mun á dóttur sinni núna og þegar hún var að und­ir­búa sig fyrir Ólymp­íu­leik­ana í Ríó árið 2016. Hún sé orðin kona í heimi sem til­biður æsku eins og guð. Sjálf seg­ist Biles ekki lengur vera lítil stelpa. Enginn geti neytt sig til að gera eitt­hvað sem hún vilji ekki gera. Hún láti ekki lengur ýta sér út í eitt­hvað í fim­leika­salnum gegn vilja sínum.

Biles er 24 ára og á enn mikið inni í íþrótt sinni.
Biles er 24 ára og á enn mikið inni í íþrótt sinni.

Jákvæðni Biles og vina­legt fas er ein­stakt og hefur alltaf verið. Þeir sem til þekkja segja það sjást á henni að hún virki­lega njóti sín í æfing­unum. Það sé meðal þess sem greini hana frá flestum öðrum kepp­endum. Þetta sé ekki það sem börn og ung­lingar sem skari framúr í grein­inni hafi alist upp við í Banda­ríkj­unum hingað til. Harkan og sam­keppnin sé gríð­ar­leg. Að virki­lega njóta var ekki talið neinum til fram­dráttar.

„Þegar allt kemur til alls þá æfum við svo mikið til að keppa í tvær til þrjár mín­útur. Og ein­hver gæti spurt, hvað er skemmti­legt við það?“ segir Biles. „En ef það er ekki gaman þá er þetta ekki þess virði.“

Biles er stað­ráðin í að breyta íþrótt­inni. Eitt af því sem hún mun gera er að fara fyrir ólymp­íuliði kvenna á ferða­lagi um Banda­ríkin að leikum loknum. Banda­ríska fim­leika­sam­bandið hefur hingað til skipu­lagt svip­aða sig­ur­för en nú er komið að Biles. Og hún verður allt öðru vísi en hingað til. „Það verður dansað og leikin tón­list,“ segir hún. Lögð verður áhersla á það að hafa gaman í stað þess að fim­leika­kon­urnar aug­lýsi yfir­burði sína. „Þetta verður kraft­mikið,“ segir hún. Ferðin eigi að vald­efla konur. Tæki­færið til þess sé runnið upp.

Sér­fræð­ingar eru sam­mála um að Biles hafi aldrei verið betri en núna. Hún sé sterk, bæði and­lega og lík­am­lega. Sjálf seg­ist hún ætla að reyna að ná lengra – ná nýjum hæðum. „Sjá hvað í mér býr.“

Og næsta stökk mun hún taka á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó þar sem hún mun alveg örugg­lega halda áfram að koma öllum á óvart. Ef ein­hver bjóst við að fer­ill­inn myndi enda að þeim loknum var það mis­skiln­ingur. Hún segir alls ekki úti­lokað að hún reyni að vinna sér keppn­is­rétt á leik­unum í París árið 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynferðisofbeldi

Mest lesið undanfarið ár