„Brestir í smáflokkakerfinu“ felldu ríkisstjórnina

For­sæt­is­ráð­herra segir fall rík­is­stjórn­ar­innar hafa orðið með þeim hætti að hann réð ekki við þær. Hann vill ekki starfa í rík­is­stjórn þriggja flokka aftur.

Bjarni Benediktsson ræddi við fjölmiðlamenn á Bessastöðum í dag.
Bjarni Bene­dikts­son ræddi við fjöl­miðla­menn á Bessa­stöðum í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Þá liggur það fyrir. Við munum rjúfa þing 28. októ­ber og senda bolt­ann til kjós­enda,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar hann ávarp­aði full­trúa fjöl­miðla á Bessa­stöðum eftir fund sinn með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, í dag.

Bjarni hafði komið til Bessa­staða til þess að fá sam­þykkta til­lögu um að þing yrði rofið og að gengið yrði til kosn­inga 28. októ­ber næst­kom­andi. Guðni varð við þeirri til­lögu, eins og kom fram á Kjarn­anum.

Bjarni sagð­ist hafa lagt áherslu á að brugð­ist yrði hratt við þeim aðstæðum sem urðu eftir að Björt fram­tíð sagði sig frá stjórn­ar­sam­starf­inu aðfara­nótt föstu­dags­ins 15. sept­em­ber. Það hafi verið mik­il­vægt til þess að koma aftur á skipu­lagi.

Hann tók undir orð for­seta Íslanda um að það væri mik­il­vægt að end­ur­nýja traust og festu í íslenskum stjórn­málum. Sú staða sem upp væri komin væri „bein­línis fram­hald af þeirri stöðu sem við vorum í eftir kosn­ing­arnar í fyrra“. Eins og kunn­ugt er gekk mjög erf­ið­lega að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar í októ­ber 2016. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar tók þess vegna ekki við fyrr en 11. jan­úar 2017.

Brestir í smáflokkakerfinu

Spurður um það hvort hann hafi borið ábyrgð á því að svona fór, ver­andi for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn, sagði Bjarni að upp hafi komið aðstæður sem hann réð ekki við. „Brestir í smá­flokka­kerf­inu“ hafi valdið því að Björt fram­tíð sagði sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.

„Veik­leiki stjórn­ar­innar var kannski með [rík­is­stjórn­inni] frá upp­hafi á vissan hátt. Það voru erf­ið­leikar frá upp­hafi frá síð­ustu kosn­ingum.“

„Með því að segja sig frá stjórn­ar­sam­starf­inu verður ákveðið upp­lausn­ar­á­stand sem ég réð ekki við,“ sagði Bjarni. Björt fram­tíð hafi litið þetta mál öðrum augum en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Viðreisn. Það hafi hins vegar ekki orðið til þess að Bjarni hafi ekki faðmað ráð­herra Bjartar fram­tíðar, þau Óttarr Proppé og Björtu Ólafs­dóttur, að skiln­aði. „Lífið heldur áfram,“ sagði Bjarni um það.

Vill bara tveggja flokka stjórn

Bjarni ræddi svo hvaða stjórn­ar­mynstur hann myndi vilja sjá eftir kosn­ing­arnar, sem hann vonar að muni veita stjórn­mála­flokkum sterkara umboð til þess að mynda rík­is­stjórnir.

[links]„Ég sagði það opin­ber­lega að þriggja flokka stjórnir hafi aldrei haldið út heilt kjör­tíma­bil,“ sagði Bjarni og rifj­aði upp orð sín eftir kosn­ing­arnar í fyrra. Hann hafi hins vegar litið á það sem skyldu sína að reyna að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn í erf­iðu ástandi.

„Ég held að eng­inn for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefði látið sér detta það í hug að láta Vinstri græna fá lyklana að fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Það gerði ég,“ sagði Bjarni til þess að útskýra hversu alvar­lega hann hafi sinnt skyldu sinni.

Bjarna hugn­ast ekki að taka þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi þriggja flokka á ný. Rík­is­stjórn­ar­sam­starf tveggja sterkra flokka sé mun væn­legra til far­sældar en annað. Hann seg­ist þess vegna ætla að kapp­kosta við að mynda slíka stjórn ef það verður hægt eftir kosn­ingar.

Landsfundur eftir kosningar

Áætlað er að halda lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrstu helg­ina í nóv­em­ber, þe. eftir kosn­ingar. Mið­stjórn flokks­ins á hins vegar eftir að koma saman og leggj­ast yfir hvort hægt verði að halda lands­fund fyrir kosn­ingar.

Bjarni telur það ólík­legt að hægt verði að breyta dag­setn­ingu lands­fund­ar­ins með svo skömmum fyr­ir­vara. Hann við­ur­kennir þó að sú ákvörðun sé ekki hans.

Á land­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins er for­ysta flokks­ins valin. Bjarni hefur verið for­maður flokks­ins síðan árið 2009. Sem stendur er eng­inn vara­for­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum, en Ólöf Nordal gengdi því emb­ætti. Hún lést í febr­úar á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár