Kennarasamband Íslands stefnir íslenska ríkinu

Stjórn Kenn­ara­sam­bands Íslands hefur sam­þykkt að stefna Íslenska rík­inu vegna breyt­inga á lögum um líf­eyr­is­sjóði opin­berra starfs­manna. Í yfir­lýs­ingu frá sam­band­inu segir að frum­varp um breyt­ing­arnar, sem var sam­þykkt á Alþingi í gær, sé ekki í sam­ræmi við það sam­komu­lag sem gert var við for­ystu opin­beru stétt­ar­fé­lag­anna og því hafði það sam­komu­lag ekk­ert gildi þegar Alþingi fjall­aði um málið. „Þeir þing­menn sem full­yrtu að málið hefði verið unnið í sam­komu­lagi við for­ystu opin­berra starfs­manna töl­uðu því gegn betri vit­und[...]Sá for­sendu­brestur sem félags­menn KÍ og aðrir opin­berir starfs­menn standa nú frammi fyrir gengur gegn stjórn­ar­skrá að mati for­ystu KÍ og mun félagið ganga alla leið til þess að verja hags­muni félags­manna.,“ segir enn fremur í yfir­lýs­ing­unni.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Fram­sókn­ar­flokk­ur, Björt fram­tíð og Við­reisn mynd­uðu áfram meiri­hluta í atkvæða­greiðslu um frum­varp um breyt­ingar á líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins í gær­kvöldi. Þing­menn þess­ara fjög­urra flokka greiddu atkvæði með frum­varp­inu, 38 þing­menn sam­tals. 

Málið varðar jöfnun á líf­eyr­is­rétt­indum opin­berra starfs­manna og almenna vinnu­mark­að­ar­ins, og byggir á sam­komu­lagi sem gert var fyrr á árinu. Aðilar að sam­komu­lag­inu, BSRB, BHM og KÍ, hafa mót­mælt afgreiðslu máls­ins því sam­tökin segja það ekki í sam­ræmi við sam­komu­lag­ið. 

Þing­menn Pírata og Vinstri grænna greiddu ýmist atkvæði á móti eða sátu hjá við afgreiðslu frum­varps­ins, en þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar sátu allir hjá, vegna þess að vinnu­brögðin við málið voru flokknum von­brigði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár