Mynd: Jordan Mansfield / Getty Images

Sagan um Fönix-liðið, Skepnuna og sturluðu stuðningsmennina

Árið 1988 vann Wimbledon F.C. FA-bik­ar­inn. Fjórtán árum síðar var ákveðið að flytja félagið til Milton Keynes. Nýtt félag, AFC Wimbledon, var stofnað og fjórtán árum síðar komst það í þriðju efstu deild.

Frá rit­stjórn Kjarnans: AFC Wimbledon lagði MK Dons í leik lið­anna í fyrstu deild ensku knatt­spyrn­unnar, 2-0. Stuðn­ings­menn lið­anna sungu „Hvar voruð þið þegar þið voruð við,“ þegar sig­ur­inn var vís.

Athugasemd bætt við 18. mars 2017.

Þann 30. maí 2002 var stofnað nýtt knatt­spyrnu­lið í Kingston upon Thames borg­ar­hlut­anum í London. Það fékk nafnið AFC Wimbledon. Aðstæður voru afar óvenju­legar og stofnun félags­ins var sprottin upp úr mót­mælum gegn ákvörðun eig­enda ann­ars félags, Wimbledon F.C., að flytja það úr hverf­inu og til Milton Keynes, í 90 kíló­metra fjar­lægð.

Félagið var stofnað af fyrrum stuðn­ings­mönnum Wimbledon F.C. sem gátu ekki sætt sig við flutn­ing liðs­ins sem þeir studdu, og hafði sterkar rætur í nær­sam­fé­lag­inu, til ann­arrar borgar. Þegar gamla Wimbledon breytti svo nafn­inu sínu í Milton Keynes Dons árið 2004 hurfu öll tengsl.

Þann 30. maí 2016, fjórtán árum eftir stofnun AFC Wimbledon upp á dag, vann liðið fræk­inn 2-0 sigur á Plymouth í úrslitum umspils í League 2, fjórðu efstu deild ensku deild­ar­keppn­innar. Með sigrinum komst liðið upp um deild í sjötta sinn á þessum fjórtán árum og mun á næstu leik­tíð leika í sömu deild og liðið sem stal lið­inu þeirra, Milton Keynes Dons.

Hinir klikkuðu

Wimbledon F.C. var stór­merki­legt knatt­spyrnu­fé­lag. Það var stofnað 1889 og lék í ensku deild­ar­keppn­inni frá árinu 1977. Undir lok níunda ára­tugar síð­ustu aldar var Wimbledon orðið ráð­sett lið í efstu deild og náði sínum merkasta áfanga þegar það sigr­aði í ensku FA-bik­ar­keppn­inni árið 1988 í ótrú­legum 1-0 sigri á einu besta Liverpool-liði allra tíma með marki frá Lawrie Sanchez. Hetja liðs­ins var mark­vörð­ur­inn og fyr­ir­lið­inn Dave Beasant sem varð í leiknum fyrstur til að verja víta­spyrnu í úrslita­leik bik­ar­keppn­inar og auk þess fyrsti mark­vörð­ur­inn til að leiða lið til sig­urs í henni sem fyr­ir­liði.

Lið Wimbledon á þessum árum var á þessum árum sam­an­sett af ansi lit­ríkum karakt­erum og fékk við­ur­nefnið „Crazy Gang“, eða hinir klikk­uðu. Á meðal leik­manna liðs­ins var hinn alræmdi Vinnie Jones, Dennis Wise, Eric Young og John Fashanu. Liðið þótti leika afskap­lega hart og beita öllum til­tækum brögðum til að vinna. Atferli þeirra jaðr­aði oft við að vera hreint ofbeldi.

Bein­skeyttur stíll og villt við­horf stóð lið­inu þó ekki fyrir þrifum. Þvert á móti gekk því vel á þessum árum og þótt and­stæð­ingar þess höt­uðu það þá fjölg­aði sífellt þeim sem höfðu taugar til litla, grófa liðs­ins sem gat.

Hinir klikkuðu unnu sér það til frægðar að vera fanta grófir og gera engar málamiðlanir í leikstíl sínum. Af öðrum ólöstuðum voru frægustu ruddar liðsins á þessum tíma þeir Vinnie Jones og John Fashanu.
Hinir klikk­uðu unnu sér það til frægðar að vera fanta grófir og gera engar mála­miðl­anir í leikstíl sínum. Af öðrum ólöst­uðum voru fræg­ustu ruddar liðs­ins á þessum tíma þeir Vinnie Jones og John Fashanu.

Liðið var þó í aðstöðu­vand­ræðum. Þótt það hafi risið í gegnum deildir Englands á ljós­hraða þá lék það enn heima­leiki sína á Plough Lane, líkt og það hafði gert frá árinu 1912. Völl­ur­inn var í öllum meg­in­at­riðum eins árið 1991 og hann hafði verið þegar Wimbledon lék í utandeild­inni. Á þessum árum voru kröfur til leik­valla auknar mikið, sér­stak­lega í kjöl­far hins hörmu­lega Hillsborough-slyss sem átti sér stað 1989 og dró 96 til dauða. Í kjöl­farið þurftu leik­vangar liða í efstu deild að bjóða ein­ungis upp á sæti. Bannað var að standa, líkt og flestir áhorf­endur gerðu á Plough Lane.

Til stóð að byggja nýjan völl, með ein­ungis sætum, í Merton en af því varð ekki. Til að mæta þeim kröfum sem nýr veru­leiki gerði hóf liðið að leika leiki sína á heima­velli Crystal Palace, Selhurst Park, haustið 1991. Þessi flutn­ingur reynd­ist upp­hafið að enda­lok­unum.

Wimbledon F.C. verður MK Dons

Á tíunda ára­tugnum var félagið í eigu Sam Hammam, lit­ríks fjár­festis frá Líbanon. Hann þótti ekki síður klikk­aðri en leik­menn liðs­ins. Á þessum tíma var því stýrt af Íranum Joe Kinnear og náði prýði­legum árangri. Árið 1994 lék meira að segja í fyrsta og eina skiptið í Evr­ópu­keppni þegar það tók þátt í hinni van­hugs­uðu Inter­toto keppni.

Árið 1997 keyptu norsku kaup­sýslu­menn­irnir Bjørn Rune Gjelsten og Kjell Inge Røkke 80 pró­sent hlut í Wimbledon og þremur árum síðar eign­uð­ust þeir það sem upp á vant­aði. Í milli­tíð­inni hafði Joe Kinnear hætt sem knatt­spyrnu­stjóri vegna veik­inda og þeir ákveðið að ráða Egil „Drillo“ Olsen, fyrrum lands­liðs­þjálf­ara norska lands­liðs­ins, í hans stað. Það reynd­ist afleit ákvörðun og þegar „Drillo“ var rek­inn, nokkrum dögum fyrir lok fyrsta og eina tíma­bils­ins sem hann stýrði lið­inu, sat það í fall­sæti. Wimbledon féll nokkrum dögum síðar, þann 14. maí 2000, nákvæm­lega tólf árum eftir að liðið lyfti eina titli sínum á Wembley árið 1988.

Ljóst var að skortur á eigin heima­velli háði Wimbledon mjög. Hammam hafði reynt að flytja liðið til Írlands við litlar vin­sældir stuðn­ings­manna, en sú áætlun gekk ekki upp. Norsku eig­end­urnir seldu gamla heima­völl liðs­ins Plough Lane til Safeway stór­mark­aðskeðj­unnar sem lét rífa hann. Síðar voru byggðar íbúðir á reitnum. Wimbledon var þar með form­lega orðið heim­il­is­laust félag.

Eftir fall úr efstu deild var liðið komið í tölu­vert alvar­leg fjár­hags­vand­ræði. Á þeim tíma hafði hópur fjár­festa sem leiddur var af tón­leika­hald­ar­anum Pete Winkleman, og inni­hélt meðal ann­ars Asda-keðj­una og IKEA, leitað til ýmissa liða í ensku deild­ar­keppn­inni með þá hug­mynd um að þau myndu flytja sig á nýjan völl sem hóp­ur­inn ætl­aði sér að byggja sem hluta af fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni í borg­inni Milton Keynes. Þeir höfðu þegar rætt við Luton, Wimbledon, Crystal Palace, Barnet og Queens Park Rangers um hug­mynd­ina en án árang­urs.

Það breytt­ist árið 2001 eftir að norsku eig­endur Wimbledon skip­uðu nýjan stjórn­ar­for­mann, mann sem heitir Charles Koppel. Sá var hrif­inn af hug­mynd Winkleman og félaga og taldi hana einu lausn­ina til að koma í veg fyrir að Wimbledon færi hrein­lega í þrot. 2. ágúst 2001 til­kynnti hann um að félagið myndi flytja til Milton Keynes og tæpu ári síðar, 28. maí 2002, sam­þykkti þriggja manna nefnd á vegum enska knatt­spyrnu­sam­bands­ins að heim­ila flutn­ing­inn. Atkvæði féllu tvö á móti einu.

Flutn­ing­ur­inn tafð­ist þó og fjár­hags­erf­ið­leikar Wimbledon héldu áfram að áger­ast. Í júní 2003 fór félagið í greiðslu­stöðvun, í sept­em­ber það sama ár lék það fyrsta heima­leik sinn í Milton Keynes og á árinu 2004 keypti Winkleman það af skipta­búi þess. Hann breytti merki félags­ins, lið­slit­unum og síð­ast en ekki síst nafn­inu. Nú hét liðið Milton Keynes Dons. Wimbledon F.C. var ekki lengur til.

Egil „Drillo“ Olsen, fyrrum landsliðsþjálfari norska landsliðsins, fer yfir myndbönd af leikjum Wimbledon þegar hann var knattspyrnustjóri liðsins. Undir stjórn hans féll liðið úr efstu deild. Það reyndist upphafið að endalokum Wimbledon F.C.
Egil „Drillo“ Olsen, fyrrum lands­liðs­þjálf­ari norska lands­liðs­ins, fer yfir mynd­bönd af leikjum Wimbledon þegar hann var knatt­spyrnu­stjóri liðs­ins. Undir stjórn hans féll liðið úr efstu deild. Það reynd­ist upp­hafið að enda­lokum Wimbledon F.C.

Stuðn­ings­menn liðs­ins voru brjál­aðir og nær eng­inn þeirra fylgdi lið­inu lengur. Raunar voru þeir byrj­aðir að skipu­leggja andóf í verki ári áður en liðið þeirra flutti til Milton Keynes. Tveimur dögum eftir að þriggja manna nefndin hafði heim­ilað flutn­ing­inn, 30. maí 2002, stofn­uðu þeir nýtt félag. Hug­myndin hafði fæðst eftir of margar ölkrúsir á krá nærri Plough Lane og byggði á því að liðið þyrfti alltaf að vera í að minnsta kosti 75 pró­sent eigu stuðn­ings­manna. Merki nýja félags­ins var nær eins og merki Wimbledon F.C., lið­slit­irnir voru þeir sömu og liðið hlaut nafnið AFC Wimbledon. Á fót­bolta­máli er svona lið kall­ast „Fönix-lið“, lið sem rís úr ösku­tóni ann­ars eins og fugl­inn Fönix. Og þum­al­putt­ar­reglan er sú að stofnun slíkra liða sé afleit hug­mynd.

Mánuði síðar hélt hið nýstofn­aða félag prufur í almenn­ings­garði þar sem allir samn­ings­lausir leik­menn voru vel­komnir til að reyna að kom­ast í liðið. Alls mættu 230 leik­menn í pruf­urnar og þeir sem hlutu náð fyrir augum aðstand­enda mynd­uðu kjarn­ann að fyrsta liðs­hópi AFC Wimbledon. Á þeim tíma átti liðið engan heima­völl, var ekki með neina fasta æfinga­að­stöðu og átti ekki bún­inga.

Heima­völlur liðs­ins varð síðar Kingsmeadow völl­ur­inn sem tekur tæp­lega fimm þús­und manns, þar af tæpan helm­ing í sæti. Fyrrum Wimbledon F.C. leik­mað­ur­inn Terry Eames var ráð­inn sem knatt­spyrnu­stjóri og liðið hóf leik i níundu efstu deild á Englandi síð­sum­ars 2002.

Næstu ár voru stans­laust ævin­týri. Liðið náði að klífa upp úr hverri utandeild­inni á fætur annarri og setti meðal ann­ars met þegar það tap­aði ekki í 78 leikjum í röð frá febr­úar 2003 til des­em­ber 2004. Alls náði liðið að fara fimm sinnum upp um deildir á níu árum og 2011 náði það þeim merka áfanga að kom­ast upp úr utandeild­inni inn í hina eig­in­legu ensku deild­ar­keppni, þegar AFC Wimbledon vann sér rétt til þess að leika í League 2, D-deild­inni. Sá réttur var tryggður með marki úr víta­spyrnu frá Danny Kedwell (sjá hér að neðan frá sjón­ar­horni stuðn­ings­manna). Með því varð liðið það fyrsta sem stofnað var á 21. öld­inni til að öðl­ast keppn­is­rétt í deild­ar­keppn­inni.

Það er ekki bara AFC Wimbledon liðið sjálft sem er nær ein­stakt. Helstu stuðn­ings­að­ilar liðs­ins eru ekki beint hefð­bundnir. Frá stofnun hefur tölvu­leikja­fyr­ir­tækið Sports Interactive, sem bjó til hina feiki­vin­sælu Championship Manager og síðar Football Manager tölvu­leiki, sem eyði­lagt hafa fjöl­mörg hjóna­böndin, verið helsti styrkt­ar­að­ili liðs­ins og vöru­merki helstu vöru fyr­ir­tæk­is­ins, Football Manager, verið framan á bún­ingum þess. Með því vildu Sports Interactive sýna í verki stuðn­ing sinn við gras­rót­ar­knatt­spyrnu.

Annar ein­kenni­legur stuðn­ings­að­ili er banda­ríski rit­höf­und­ur­inn og YouTube-stjarnan John Green. Sá er marg­verð­laun­aður rit­höf­undur sem skrif­aði meðal ann­ars bók­ina The Fault in Our Stars, sem feyki­vin­sæl kvik­mynd var gerð eftir árið 2014. Raunar virð­ast flest öll kvik­mynda­tengd verk­efni sem Green kemur nálægt verða að gulli.

Green hefur á und­an­förnum árum einnig ein­beitt sér að því að stofna YouTube-rásir með bróður sínum Hank, sem hafa gengið afburða­vel og skilað þeim miklum aug­lýs­inga­tekjum. Sumt efnið sem þeir hafa borið á borð þar hefur alvar­legan und­ir­tón, t.d. Crash Course, þar sem þeir héldu nokk­urs konar hrað­nám­skeið í mik­il­vægum mál­efnum á borð við sögu heims­ins, sögu Banda­ríkj­anna, bók­menntum, efna­fræði, líf­ræði, vist­fræði, sál­fræði, heim­speki, stjörnu­fræði, hag­fræði og eðl­is­fræði.

Annað efni er ekki jafn alvar­legt. John Green hefur til að mynda hlaðið upp leikjum sem hann spil­aði í tölvu­leiknum FIFA 14 upp á eina af YouTube-rásum bræðr­anna. Hann lýsir þar leikj­unum sjálfur og er alltaf sama liðið, AFC Wimbledon. Það sem er athygl­is­vert við þessa skrýtnu iðju er að John Green er hræði­lega slakur FIFA-spil­ari. Geta hans í leiknum hefur verið borin saman við getu Hillary Clinton til að breik-dansa. Hann skapar hins vegar mjög skemmti­legan heim í kringum liðið sitt, sem hann lýsir síðan fyrir áhorf­endum. Til dæmis heita báðir aðal­fram­herjar liðs­ins John Green og þeir eru, að sögn John Green, giftir hvor öðrum. „Engir aðrir leik­menn hafa sömu tengsl sín á milli og sköll­ótti John Green og hinn John Green,“ segir hann í einni lýs­ing­unni.

Þetta hljómar allt frekar skringi­lega, en varð alveg fár­an­lega vin­sælt. Og líkt og ger­ist þegar YouTube-efni verður vin­sælt, þá fóru aug­lýs­inga­tekjur að streyma inn.

John Green ákvað að það þyrfti að nýta þetta fé á almenni­legan máta, setti sig í sam­band við AFC Wimbledon í nóv­em­ber 2013 og bauðst til að styrkja félagið. Í fyrra­sumar jók hann við þann stuðn­ing og síð­ast­liðið ár hefur norð­ur­stúkan á Kingsmeadow-vell­inum verið þekkt sem John Green-stúkan. Í lok mars síð­ast­liðnum til­kynnti Green svo að hann ætl­aði sér, í sam­vinnu við Fox 2000, að fram­leiða Hollywood-kvik­mynd um AFC Wimbledon.

Áhugaverðasti leikmaður AFC Wimbledon á undanförnum árum er án nokkurs vafa „Skepnan", Adebayo Akinfenwa. Hann er yfir 100 kíló og tekur tæplega tvöfalda líkamsþyngd sína í bekk.
Áhuga­verð­asti leik­maður AFC Wimbledon á und­an­förnum árum er án nokk­urs vafa „Skepnan", Adebayo Akinfenwa. Hann er yfir 100 kíló og tekur tæp­lega tvö­falda lík­ams­þyngd sína í bekk.

Eftir að hafa eytt fimm árum í ensku D-deild­inni náði AFC Wimbledon þeim árangri á liðnu tíma­bili að kom­ast í umspil um sæti í næstu deild fyrir ofan, þriðju efstu deild í Englandi. Það gerði liðið undir stjórn Neil Ardley, sem lék árum saman með Wimbledon F.C. eftir að hafa komið upp í gegnum ung­linga­starf þess. Liðið komst í gegnum und­an­úr­slit umspils­ins með hádramat­ískum sigri á Accrington Stanley þar sem stjörnu­fram­herji liðs­ins, Lyle Taylor, skor­aði í fram­leng­ingu til að tryggja lið­inu sæti í úrslita­leik gegn Plymouth Argyle á Wembley. Já, AFC Wimbledon var að fara að spila á Wembley.

Og það merki­lega var að úrslita­leik­ur­inn fór fram fjórtán árum upp á dag eftir að AFC Wimbledon var stofnað.

Auðvitað gat úrslita­leik­ur­inn ein­ungis farið á einn veg. Sögur eins og þessar verða að vera með góðum endi, og AFC Wimbledon vann 2-0. Til að gera þetta allt saman enn Hollywood-legra skor­aði Adebayo Akinfenwa, tæp­lega 110 kíló vöðva­buffið sem tekur 180 kíló í bekk og kallar sjálfan sig „Skepnuna“ (e. Beast), síð­asta mark leiks­ins á níundu mín­útu upp­bót­ar­tíma úr víti eftir að hafa rif­ist við létt­ari liðs­fé­laga sína um hver ætti að taka það.

Akinfenwa er gríð­ar­lega vin­sæll á meðal stuðn­ings­manna, enda einn sér­kenni­leg­asti knatt­spyrnu­maður sem fyrir finnst. Þrátt fyrir það mun hann lík­lega ekki fá nýjan samn­ing í sumar, þegar sá gild­andi rennur út. Hann not­aði tæki­færið í við­tali við breska sjón­varps­menn eftir úrslita­leik­inn til að fara aðeins yfir þá stöðu. Sjón er sögu rík­ari.

Það sem gerir næsta tíma­bil enn áhuga­verð­ara og dramat­ískara fyrir AFC Wimbledon er að þá mun liðið leika í sömu deild og liðið sem stal kenni­tölu þess, hið sál­ar­lausa MK Dons. Liðin hafa áður mæst í bik­ar­leikjum en ljóst er að fátt er sæt­ara í augum stuðn­ings­manna AFC Wimbledon en að lið þeirra standi nú jafn­fætis MK Dons. Þeir bera þá gleði þó ekki á torg og segj­ast raunar ekk­ert hlakka neitt sér­stak­lega til leikja sinna við MK Dons eða ætla að gera neitt stór­mál úr þeim. Ástæðan er sú að AFC Wimbledon stuðn­ings­menn við­ur­kenna ekki til­veru­rétt MK Dons og vilja því ekki gefa lið­inu það vægi að vera erki­fj­endur sínir. Þannig er það þó auð­vitað í raun­veru­leik­anum.

Lík­leg­ast verða næstu ár tölu­vert basl hjá lið­inu. Umfang rekst­urs þess er fjarri því að vera á pari við það sem er hjá flestum öðrum liðum í þriðju efstu deild. Til að takast á við þennan veru­leika hafa stjórn­endur liðs­ins m.a. barist fyrir því að fá að byggja nýjan leik­vang, stein­snar frá því sem gamli heima­völl­ur­inn Plough Lane var. Nýi völl­ur­inn, sem nýr borg­ar­stjóri í London mun taka ákvörðun um hvort verði að veru­leika á allra næstu miss­erum, á að taka ell­efu þús­und manns í sæti en mögu­leiki verður á því að stækka hann upp í að taka 20 þús­und í sæti, haldi ævin­týrið áfram. Völl­ur­inn, verði hann byggður, verður auð­vitað kenndur við Plough Lane.

Í gegnum allt þetta fjórtán ára ævin­týri hafa sauð­tryggir áhan­gendur AFC Wimbledon sungið stans­laust til stuðn­ings sínu liði. Einn söngvanna sem fylgt hefur þeim í gegnum allt það tíma­bil er: „Show Me the Way to Plough Lane. I’m tired and I want to go home. / I had a football ground twenty years ago / And I want one of my own.”

Allir með hjarta hljóta að vona að þessum þol­in­móðu, dass sturluðu en dásam­legu knatt­spyrnu­á­han­gendum verði að ósk sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár