Ísland setur innflytjendum meiri skorður en önnur lönd

Inn­flytj­enda­mál eru á dag­skrá sjón­varps­þáttar Kjarnans í kvöld. Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar, er gestur þátt­ar­ins.

Inn­flytj­endur mæta öðrum hindr­unum á Íslandi en í öðrum nágranna­löndum okkar, og þeim eru settar frek­ari skorður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í sjón­varps­þætt Kjarnans á Hring­braut í kvöld.

Umfjöll­un­ar­efni þátt­ar­ins eru inn­flytj­enda­mál, en Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar, er gestur þátt­ar­ins. Hann er annar tveggja þing­manna sem eru af erlendu bergi brotnir, og hann telur það skipta máli fyrir umræð­una.

Pawel segir Ísland setja inn­flytj­endum frek­ari skorður en nágranna­ríkin á nokkrum sviðum. „Það er bara dót sem fólk talar ekki mikið um,“ segir Pawel.

„Þessi krafa til dæmis um það í raun­inni að hjúkr­un­ar­fræð­ingur eigi að vera með íslenskan rík­is­borg­ara­rétt, í fram­kvæmd hefur verið slakað mjög á þessu en þetta er samt ennþá þannig í lög­unum, þannig að það væri mjög auð­velt að fara til baka ef það yrði stefnu­breyt­ing. Það er einn hlutur.“ 

Annað dæmi sem Pawel tekur er um sjálf­stæðan atvinnu­rekstur. „Mjög víða eru útlend­ingar, eða inn­flytj­endur, mjög virkir í sjálf­stæðum atvinnu­rekstri vegna þess að þeir mæta oft for­dómum á hinum almenna vinnu­mark­aði eða hjá hinu opin­bera. Þess vegna spretta upp veit­inga­staðir eða annar rekstur, svona etnískur rekstur, en hér er í raun­inni í lögum að þeim sem hafa tíma­bundið dvalar- eða atvinnu­leyfi er óheim­ilt að greiða sér reiknað end­ur­gjald.“

Þetta sé hindrun. „Þannig að það er ekki fyrr en menn eru búnir að vera á Íslandi í þrjú, fjögur ár og eru komnir með var­an­legt dval­ar­leyfi sem þeir mega opna pít­sa­stað, ef þeir eru frá löndum utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins. Þetta vita ekki margir og þetta er ekki þannig á hinum Norð­ur­lönd­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár