Félögum í Siðmennt fjölgað um fjórðung

Skrán­ingum í Siðmennt hefur fjölgað um tæp­lega 25 pró­sent frá því í des­em­ber 2017 og eru nú yfir 3000 manns skráð í félagið. Um 13 pró­sent þeirra sem fermd­ust í ár fermd­umst borg­ar­lega á vegum Sið­menntar.

Siðmennt er í sjö­unda sæti yfir stærstu trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög lands­ins, með 3055 skráða félaga í júlí 2019. Skrán­ingum í Siðmennt hefur fjölgað um 23,5 pró­sent frá því í des­em­ber 2017 eða um 776 manns. Frá 1. des­em­ber á síð­asta ári hefur þeim fjölgað um alls 240 manns eða um 8,5 pró­sent. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Þjóð­skrár.

Tvöfalt fleiri Íslendingar biðja athafnastjóra Siðmenntar að gifta sig

[links]Siðmennt var stofnað árið 1990. Félagið er málsvari mann­gild­is­stefnu (húman­isma) og frjálsrar hugs­unar, óháð trú­ar­setn­ingum, sam­kvæmt heima­síðu félags­ins. Siðmennt stendur meðal ann­ars fyrir ver­ald­legum athöfnum á borð við gift­ingar, nafn­giftir, borg­ar­legar ferm­ingar og útfarir.

Athöfnum félags­ins hefur farið fjölg­andi á síð­ustu árum en á vegum félags­ins starfa á fjórða tug athafn­ar­stjóra. Fjöldi Íslend­inga sem kjósa að láta athafna­stjóra á vegum Sið­menntar gefa sig saman hefur tvö­fald­ast síð­ustu fimm árum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Siðmennt í ágúst 2018. Árið 2017 voru fram­kvæmdar 213 hjóna­vígslur en sam­kvæmt Sigurði Hólm Gunn­ars­syni, for­manni Sið­mennta, eru gift­ing­arnar vin­sælar á meðal erlendra ferða­manna. [adspot]

„Óskum eftir athöfnum hefur farið fjölg­andi á hverju ári síðan við fórum að bjóða upp á þessa þjón­ustu. Ég held það verði ekk­ert lát á þess­ari fjölgun á næstu árum. Gift­ingar eru mjög algengar meðal erlendra ferða­manna en líka meðal Íslend­inga,“ sagði Sigurður Hólm í sam­tali við Frétta­blaðið í ágúst í fyrra.

545 börn fermdust borgarlega í fyrra 13

Enn fremur hafa sífellt fleiri börn kosið að ferm­ast borg­ar­lega hjá Siðmennt. Á þessu ári voru þrjá­tíu ár frá því að fyrsta borg­ar­lega ferm­ingin fór fram en í fyrstu athöfn­inni fermd­ust 16 börn. Þeim hefur hins vegar fjölgað svo um munar á und­an­förnum þremur ára­tugum en 545 börn fermd­ust borg­ar­lega í ár eða um 13 pró­sent ferm­ing­ar­ár­gangs­ins. Það er tals­vert fleiri börn en í fyrra þegar 470 börn fermd­ust borg­ar­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár