Hjónavígslur hjá sýslumanni nær tvöfaldast

Fjöldi þeirra sem ganga í hjóna­band hjá sýslu­manni hefur nær tvö­fald­ast frá árinu 2013. Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata um fjölda hjóna­vígslna.

Fjöldi þeirra sem ganga í hjóna­band hjá sýslu­manni hefur nær tvö­fald­ast frá árinu 2013. Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata um fjölda hjóna­vígslna.

Þannig giftu tæp­lega 640 sig hjá sýslu­manni árið 2013 og stóð sá fjöldi nokkurn veg­inn í stað næstu tvö árin eða til árins 2016 þegar tæp­lega þús­und hjóna­vígslur fóru fram með þessum hætti og árið 2017 var fjöld­inn kom­inn upp í 1.179.

Fjöldi hjóna­vígslna hjá þeim sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una hélst nokkurn veg­inn sá hinn sami frá árinu 2013 til árs­ins 2016, eða um 1.800. Árið 2017 fóru þær hins vegar upp í 2.051.

Alls sögðu 2.477 sig úr þjóð­kirkj­unni á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2017. Á sama tíma­bili gengu 231 í hana. Því gengu 2.246 fleiri lands­menn úr þjóð­kirkj­unni en í hana á tíma­bil­inu. Þegar allt árið 2017 er skoðað kemur í ljós að 3.738 sögðu sig úr þjóð­kirkj­unni, þar af 60 pró­sent á síð­ustu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili gengu 719 manns í kirkj­una. Þegnum hennar fækk­aði því um 3.019 á síð­asta ári.

[links]Frá árinu 2009 hefur fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­­kirkj­unni dreg­ist saman á hverju ein­asta ári. Í byrjun árs 2017 voru þeir 236.481 tals­ins, sem þýddi að undir 70 pró­­sent þjóð­­ar­innar væri í kirkj­unni. Þeim íslensku rík­­­­­is­­­­­borg­­­­­urum sem kusu að standa utan þjóð­­­­­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­­­­­­­­­ustu ald­­­­­ar­­­­­mót. Þeir eru nú yfir eitt hund­rað þús­und. Fjöldi þeirra hefur því rúm­­lega þre­fald­­ast.

Í svari dóms­mála­ráð­herra kemur fram að upp­lýs­ing­arnar komi frá Þjóðskrá Íslands en þar er ekki skráð eftir trú­fé­lögum og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum í breyt­inga­skrá Þjóð­skrár Íslands. Hægt er að keyra ein­stak­linga­skrá og breyt­inga­skrá og fá þannig upp­lýs­ingar um fjölda ein­stak­linga sem gekk í hjú­skap eftir skrán­ingu við­kom­andi ein­stak­lings í trú­fé­lag eða lífs­skoð­un­ar­fé­lag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hjónaband

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár