Gamla góða samstaðan flytur fjöll - Áfram Ísland

Ísland mætir Nígeríu í dag, og getur með sigri kom­ist í kjör­stöðu fyrir loka­leik­inn í riðl­inum gegn Króötum.

Afleit byrjun hjá stjörnumprýddu liði Argent­ínu í D-riðli, hefur leitt til þess að Ísland hefur jafn­vel enn meiri tæki­færi til að kom­ast upp úr riðl­inum í 16 liða úrslit heldur en hægt var að ímynda sér - við fyrstu sýn - þegar dregið var í riðla fyrir keppn­ina.

Ísland og Nígería mæt­ast í Vol­gograd í dag og spennan er raf­mögnuð. Óhætt er að segja um ólíkar þjóðir sé að ræða.

Nígería er fjöl­menn­asta ríki Afríku með 190 millj­ónir íbúa, en íbúar á Íslandi eru 350 þús­und. Það er óþarfi að nefna það ekki -þrátt fyrir að það sé end­ur­tekn­ing númer svona þús­und - en Ísland er fámenn­asta landið í sög­unni sem náð hefur lands­liði í úrslita­keppni HM, og er nú þegar búið að stimpla sig með sínu fyrsta stigi og marki, sem Alfreð Finn­boga­son skor­aði gegn Argent­ínu.

Ísland spilar í bláu í dag, en var í hvítum bún­ingum gegn Argent­ínu.

Ef fyrstu tveir leikir Argent­ínu í riðl­inum hafa kennt okkur eitt­hvað - fyrst 1-1 jafn­teflið gegn okkur Íslend­ingum og síðan 0-3 tapið gegn Króötum - þá er það þetta: góð sam­stillt lið geta flutt fjöll en góðir ein­stak­lingar, sem ekki ná saman sem lið, eru heillum horfnir.

Lionel Messi, einn allra besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, hefur ekki fundið sig í liði Aregent­ínu frekar en aðrir leik­menn liðs­ins. Þá má svo sann­ar­lega deila um liðsval Sampioli þjálf­ara.

Í ofaná­lag sáust fáséð ein­stak­lings­mi­s­tök hjá Caballero mark­verði Argent­ínu, þegar hann gaf Rebic fyrsta markið sem kom Króötum á lagið.

Fram að því hafði verið jafn­ræði með lið­unum. Eftir það opn­að­ist leik­ur­inn meira og Króatar voru þá í þægi­legri stöðu. Gátu leyft sér að falla aðeins til baka og sækja svo hratt þegar færi gafst. Tvö mörk frá miðju­mönn­unum frá­bæru frá Barcelona og Real Madrid, Modric og Rakitic, söktu svo Argent­ínu end­an­lega.

Allt annar leikur

Vandamál Argent­ínu koma þeim ekki á óvart sem hafa fylgst með gengi liðs­ins á und­an­förnum árum. Liðið hefur virkað ósam­stillt og nær sjaldan að létta press­unni af Messi, með fram­taki ann­arra leik­manna.

Leik­ur­inn er fyr­ir­sjá­an­legur. En ekki má þó úti­loka að Argent­ína komi til baka, og nái að knýja fram sigur gegn Nígeríu og berj­ast þannig til hins ítrasta fyrir 2. sæt­inu í riðl­inum. Þegar öll sund virt­ust lokuð í und­ankeppn­inni tókst Argent­ínu að kom­ast áfram, með snilld­ar­fram­taki Messi.

Allt er því opið ennþá.

Leik­ur­inn á eftir, milli Íslands og Nígeríu, hefur gríð­ar­lega mikla þýð­ingu eins og gefur að skilja. Ísland getur með sigri pressað stíft á 2. sætið í riðl­inum fyrir síð­asta leik­inn í riðl­inum við Króata. Þá þekkjum við vel, eftir margar viður­eignir á und­an­förnum árum. Ísland vann 1-0 sigur gegn Króötum á Laug­ar­dals­velli, eins og frægt er, með marki Harðar Björg­vins Magn­ús­sonar á síð­ustu mín­útu.

Það segir okkur eitt: Ísland getur unnið Króatíu og hefur gert það! Einfalt og áhrifa­mikið. Þetta segir okkur líka þá sögu, að eins og leik­irnir í riðl­inum hafa spil­ast, þá á Ísland nokkuð góða mögu­leika á því að kom­ast áfram. Það yrði stór­kost­legt afrek sem myndi aldrei gleym­ast.

Níger­íu­menn spila hraðan leik og eru lík­am­lega sterkir. Þeir eru líka með leik­menn sem eru góðir einn á móti einum, og geta þannig klárað leik­ina með ein­stak­lings­fram­taki.

Erfitt er að draga út leik­menn sem má telja til lyk­il­manna, þar sem Nígería leggur upp með að virkja liðs­heild­ina í sóknar- og varn­ar­leiknum. En Victor Moses, leik­maður Chelsea, hefur spilað vel fyrir Nígeríu og er ávallt hættu­legur í sókn­ar­leiknum. Hann þurfum við að passa.

Gylfi Þór, sýndu hvað í þér býr!

Þetta þekkjum við ágæt­lega frá því í leiknum gegn Argent­ínu. En Nígería er samt allt annar and­stæð­ingur. Ísland mun fá meiri tæki­færi til að sækja gegn Nígeríu og mun þurfa að sýna meira sjálfs­traust með bolt­ann en það gerði gegn Argent­ínu. Ef það má gagn­rýna Ísland fyrir eitt­hvað þá er það ekki nægi­lega mikið sjálfs­traust þegar kemur að því að halda bolt­anum.

Án þess gera upp á milli manna í okkar frá­bæra og sam­stillta liði, þá er Gylfi Þór Sig­urðs­son lyk­il­maður gegn Nígeríu. Hann þarf að sýna hvað í honum býr, ekki síst í sókn­ar­leiknum. Treysta sér til að halda bolt­anum og virkja aðra leik­menn með sér. Og láta vaða á markið þegar færi gefst.

Eins og hann hefur svo oft gert með lands­lið­inu, þegar mest á reynir. Hann er pott­ur­inn og pannan í sókn­ar­leiknum, þegar Ísland nær sér á strik í honum.

Engan afslátt má þó gefa í aðals­merki íslenska liðs­ins; sam­stilltum varn­ar­leik og vel útfærðum föstum leikatriðum. Allir þurfa að standa saman sem einn maður. Tæki­færið er fyrir framan okkur. Við gætum kom­ist í 16 liða úrslit á HM! Áfram Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár