OECD spáir allt að ellefu prósenta samdrætti á Íslandi

Ný skýrsla OECD um horfur í efna­hags­málum kom út í vik­unni. Búist er við mestum sam­drætti í Bret­landi, Frakk­landi, á Ítalíu og Spáni, þar á eftir kemur Ísland.

OECD spáir því að atvinnuleysi á Íslandi verði 9 prósent undir lok ársins.
OECD spáir því að atvinnu­leysi á Íslandi verði 9 pró­sent undir lok árs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Í nýrri skýrslu OECD um horfur í efna­hags­málum er gert ráð fyrir að efna­hags­sam­dráttur í heim­inum verði sá mesti, utan stríðs­tíma, í 100 ár. Í skýrsl­unni eru settar fram tvær sviðs­myndir sem eru taldar vera jafn lík­legar. Önnur gerir ráð fyrir að áfram dragi úr útbreiðslu COVID-19, hin sýnir áhrif mögu­legrar seinni bylgju.

Ef til ann­arrar bylgju kemur mun það hafa í för með sér að aftur þarf að grípa til sam­komu­tak­mark­ana og útgöngu­banna. Í spánni er gert ráð fyrir að efna­hags­legur sam­dráttur á heims­vísu muni þá nema alls 7,6 pró­sentum á árinu. Í þess­ari sviðs­mynd er ekki gert ráð fyrir kröft­ugri við­spyrnu á árinu 2021, en reiknað er með vexti upp á 2,8 pró­sent. Atvinnu­leysi innan OECD ríkj­anna er talið verða 10 pró­sent í ár innan þess­arar sviðs­myndar og að lítið muni draga úr því fyrir lok árs.

Komi ekki til þess að seinni bylgja gangi yfir er gert ráð fyrir að efna­hags­legur sam­dráttur á heims­vísu muni nema 6 pró­sentum í ár og að atvinnu­leysi innan OECD muni nema 9,2 pró­sentum.

Án ann­arrar bylgju er því spáð að mestur sam­dráttur verði í Bret­landi, alls 11,5 pró­sent. Þar á eftir koma Frakk­land, Ítalía og Spánn en reiknað er með að sam­drátt­ur­inn í lönd­unum verði rúm­lega 11 pró­sent. Ísland kemur þar næst á eftir og sam­drátt­ur­inn er tal­inn verða 9,9 pró­sent.

Ef til þess kemur að löndin þurfa að takast á við aðra bylgju af far­aldri kór­ónu­veiru riðl­ast röðun fjög­urra efstu landana eilítið. Þá er reiknað með að sam­drátt­ur­inn verði mestur á Spáni, alls 14,4 pró­sent.

Gera ráð fyrir níu prósenta atvinnuleysi

Í spá OECD hefur mögu­leg seinni bylgja til­tölu­lega lítil við­bót­ar­á­hrif á íslenskan efna­hag sam­an­borið við önnur lönd. Reiknað er með 11,2 pró­senta sam­drætti gangi önnur bylgja COVID-19 yfir, sem setur Ísland í átt­unda sæti innan OECD yfir mestan sam­drátt.

Í báðum sviðs­myndum er gert ráð fyrir að atvinnu­leysi nái hámarki í níu pró­sentum hér á landi í ár og hald­ist þar út árið en fari svo minnk­andi. Almennt atvinnu­leysi mælist nú 7,4 pró­sent en sé hluta­bóta­leiðin tekin með í reikn­ing­inn mælist atvinnu­leysi þrettán pró­sent.

Spá OECD á milli spár Seðlabankans og spár Viðskiptaráðs

Seðla­bank­inn hefur gert ráð fyrir að efna­hags­sam­drátt­ur­inn verði meiri heldur en gert var ráð fyrir í svört­ustu sviðs­mynd Seðla­bank­ans. Sú sviðs­mynd gerði ráð fyrir að sam­drátt­ur­inn gæti orðið 4,8 pró­sent. Tekið skal fram að sviðs­myndir Seðla­bank­ans voru kynntar í mars síð­ast­liðnum.

Spá OECD gerir þó ekki ráð fyrir jafn miklum sam­drætti og spáð var fyrir um í haglík­ani Við­skipta­ráðs Íslands sem birt­ist í lok apríl. Þar var gert ráð fyrir að sam­dráttur í lands­fram­leiðslu árið 2020 verði 12,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár