Atvinnuleysi dróst verulega saman í maí og mældist þrettán prósent

Atvinnu­lausum fækk­aði umtals­vert í síð­asta mán­uði, aðal­lega vegna þess að þeim sem nýttu hluta­bóta­leið­ina fækk­aði gíf­ur­lega. Búist er við því að atvinnu­leysið lækki enn frekar í júní en auk­ist aftur í ágúst.

Atvinnu­leysi lækk­aði mikið í maí og fór úr 17,8 pró­sent í apríl í þrettán pró­sent í maí. Þar munar mest um að atvinnu­leysi sem teng­ist hluta­bóta­leið­inni lækk­aði úr 10,3 pró­sent í 5,6 pró­sent. Almenna atvinnu­leysið lækk­aði einnig lít­il­lega, eða úr 7,5 í 7,4 pró­sent. Gert er ráð fyrir að atvinnu­leysi lækki enn í júní og fari þá í 11,2 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýbirtri skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi fyrir maí­mánuð.

Þar segir að í almenna bóta­kerf­inu hafi verið 16.134 ein­stak­lingar atvinnu­lausir í lok maí­mán­aðar og 17.213 í minnk­aða starfs­hlut­fall­inu, eða sam­tals 33.347. Með­al­bóta­hlut­fall þeirra sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli í maí var um 60 pró­sent. „Alls voru um 21.500 ein­stak­lingar sem eitt­hvað voru á hluta­bóta­leið­inni í maí, flestir þeirra í byrjun mán­að­ar­ins en fækk­aði yfir mán­uð­inn sem fyrr segir í um 17.200 í lok mán­að­ar­ins. Um 5.200 fyr­ir­tæki voru að baki þessum ein­stak­lingum. Atvinnu­leysi þeirra sem eru í minnk­uðu starfs­hlut­falli er í mun meira mæli bundið við ferða­þjón­ustu heldur en þeirra sem eru í almenna bóta­kerf­inu.“

Mun aukast aftur í ágúst

Í skýrsl­unni kemur fram að gert sé ráð fyrir að atvinnu­leysi lækki nokkuð í júní þar sem fólk haldi áfram að afskrá sig jafnt og þétt úr hluta­bóta­leið­inni nú í júní. „Gert er ráð fyrir að tæpur helm­ingur þeirra sem eftir voru í hluta­bóta­leið­inni afskrái sig í júní og atvinnu­leysi sem teng­ist því úrræði lækki því í um 3,8 pró­sent. Fjöldi nýskrán­inga í almenna bóta­kerf­inu það sem af er júní bendir til að almennt atvinnu­leysi í júní minnki lítið eitt enda er tölu­vert um afskrán­ingar úr hópi þeirra sem verið hafa á bótum.“

[adspot]Heilt yfir sé því gert ráð fyrir að atvinnu­leysi í júní lækki úr þrettán pró­sent í maí í um 11,2 pró­sent í júní­mán­uði. „Hluti þeirrar lækk­unar er þó tengt því að fólki hefur verið sagt upp og fer af hluta­bóta­leið­inni á upp­sagn­ar­frest. Því má gera ráð fyrir að all­margir úr þeim hópi muni koma á atvinnu­leys­is­bætur þegar líður á sum­arið. Gera má ráð fyrir að enn fækki í hópi þeirra sem nýta sér hluta­bóta­leið­ina jafnt og þétt til ágúst­loka þegar það úrræði rennur sitt skeið. Hins vegar mun almennt atvinnu­leysi trú­lega aukast nokkuð fram í sept­em­ber enda mikið af hóp­upp­sögnum að koma til fram­kvæmda síð­sum­ars, einkum í ágúst. Líklegt er að almennt atvinnu­leysi fari yfir átta pró­sent í júlí til sept­em­ber, en atvinnu­leysi tengt hluta­bóta­leið­inni verði þá hverf­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár