Líklegt að samdráttur á Íslandi verði meiri en í svörtustu sviðsmynd Seðlabanka

Í fund­ar­gerð pen­inga­stefnu­nefndar kemur fram að lík­lega verði efna­hag­sam­drátt­ur­inn á Íslandi meiri en 4,8 pró­sent á þessu ári.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands. Mynd: Seðlabanki Íslands.

Á auka­fundi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, sem fór fram dag­anna 22. og 23. mars, kom fram að lík­legt sé talið að sam­dráttur í íslensku efna­hags­lífi verði meiri en þær sviðs­myndir sem Seðla­bank­inn hefur kynnt opin­ber­lega gefa til kynna. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð hennar sem birt var í gær, tveimur vikum eftir að fund­ur­inn fór fram.

[links]Sviðs­myndir Seðla­bank­ans voru svo kynntar opin­ber­lega 25. mars, eða tveimur dögum eftir að fundi pen­inga­stefnu­nefndar lauk. Samkvæmt þeim var reiknað með 2,4 til 4,8 pró­sent sam­drætti í lands­fram­leiðslu á árinu 2020.

Mildari sviðs­myndin gerði ráð fyrir 37 pró­sent fækkun ferða­manna á árinu 2020 sem myndi leiða til 14 pró­sent sam­dráttar í heild­ar­út­flutn­ingi í ár. Dekkri sviðs­myndin gerði ráð fyrir 55 pró­sent fækkun ferða­manna sem myndi leiða að sér 21 pró­sent sam­drátt í útflutn­ingi.

Sviðs­mynd­irnar gerðu ráð fyrir miklum breyt­ingum á atvinnu­leysi og að það muni að með­al­tali verða á bil­inu 5,7 til 7,0 pró­sent árið 2020. Þá var búið að taka til­lit til þess að þús­undir launa­manna í einka­fyr­ir­tækjum myndu fara á hluta­bætur úr Atvinnu­trygg­inga­leys­is­sjóði.

[adspot]Verð­bólga mun, sam­kvæmt sviðs­mynd­unum, drag­ast saman. Spá bank­ans í febr­úar gerði ráð fyrir með­al­verð­bólgu á árinu upp á 1,9 pró­sent. Sviðs­mynd­irnar gerðu hins vegar ráð fyrir því að hún verði lægri, eða 1,4 til 1,5 pró­sent. Þar ræður miklu að lægra verð á hrá­vöru alþjóð­lega og sá mikli slaki sem er að skap­ast á Íslandi toga á móti hefð­bundnum verð­bólgu­hvötum eins og geng­is­falli krón­unnar.

Í fund­ar­gerð pen­inga­stefnu­nefndar kemur fram að sviðs­mynd­irnar tvær hafi verið kynntar fyrir nefnd­ar­mönnum. Fram hefði komið að óvissa um stöðu mála væri veru­leg og erfitt væri spá fyrir um lík­leg­ustu þróun efna­hags­mála. Þó væri ljóst að horfur væru á sam­drætti á þessu ári og miðað við þessar tvær sviðs­myndir gæti orðið á bil­inu 2,4 til 4,8 pró­sent. „Fram kom að vinna við þessar sviðs­myndir héldi áfram og talið var lík­legt að sú vinna leiddi í ljós að sam­drátt­ur­inn yrði meiri en þær sviðs­myndir sem voru kynntar gæfu til kynna. Nefndin horfði einnig til þess að verð­bólgu­horfur á árinu breytt­ust til­tölu­lega lítið þrátt fyrir mikið umrót í efna­hags­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár