Margþættir efnahagsskellir framundan og samdráttur allt að 4,8 prósent í ár

Sviðs­myndir Seðla­banka Íslands gera ráð fyrir að mik­ill sam­dráttur verði í íslensku efna­hags­kerfi í ár. Atvinnu­leysi mun aukast veru­lega, einka­neysla drag­ast saman og fækkun ferða­manna gæti orðið allt að 55 pró­sent í ár.

Seðla­bank­inn reiknar með, í sviðs­myndum sínum, að 2,4 til 4,8 sam­dráttur verði á lands­fram­leiðslu í ár. Fyrri spá bank­ans, sem birt var í febr­úar, gerði ráð fyrir 0,8 pró­sent hag­vexti. Því gæti breyt­ingin frá síð­ustu spá, verði dekkri sviðs­mynd Seðla­bank­ans að veru­leika, verið 5,6 pró­sentu­stig.

Þetta kom fram í máli Þórarins G. Pét­urs­sonar, aðal­hag­fræð­ings Seðla­banka Íslands, á kynn­ing­ar­fundi á sviðs­myndum bank­ans vegna áhrifa af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. „Það er óhætt að segja að staða og horfur í efna­hags­málum hafi breyst hratt á undra­skömmum tíma,“ sagði Þórarinn áður en hann hóf kynn­ingu sína.

Sviðs­mynd­irnar sem kynntar voru mið­uðu ann­ars vegar við mild­ari áhrif og hins vegar við dekkri áhrif. Þær inni­halda grein­ingu á væntri þróun útflutn­ings álaf­urða, hver áhrifin verða á útflutn­ing sjáv­ar­af­urða, áhrif á einka­neyslu og vinnu­markað og tíma­bundin áhrif ein­angr­unar og sam­komu­banns. En helstu áhrifin sem metin eru koma til vegna skells í ferða­þjón­ustu.

Allt að 55 prósent fækkun ferðamanna

Mildari sviðs­myndin gerði ráð fyrir 37 pró­sent fækkun ferða­manna á árinu 2020 sem myndi leiða til 14 pró­sent sam­dráttar í heild­ar­út­flutn­ingi í ár. Dekkri sviðs­myndin gerði ráð fyrir 55 pró­sent fækkun ferða­manna sem myndi leiða að sér 21 pró­sent sam­drátt í útflutn­ingi.

Sviðs­mynd­irnar gera ráð fyrir miklum breyt­ingum á atvinnu­leysi og að það muni að með­al­tali verða á bil­inu 5,7 til 7,0 pró­sent árið 2020. Þá er búið að taka til­lit til þess að þús­undir launa­manna í einka­fyr­ir­tækjum munu fara á hluta­bætur úr Atvinnu­trygg­inga­leys­is­sjóði. Það mun líka hægja veru­lega á fjölgun fólks á vinnu­aldri, sér­stak­lega vegna þess að inn­flutn­ingur á vinnu­afli mun drag­ast veru­lega saman eða jafn­vel stöðvast. Sóttkví, sjálfsein­angrun og sam­komu­bann mun einnig hafa áhrif á stöð­una.

Verð­bólga mun, að mati Seðla­bank­ans, drag­ast saman. Spáin í febr­úar gerði ráð fyrir með­al­verð­bólgu á árinu upp á 1,9 pró­sent. Sviðs­mynd­irnar gera hins vegar ráð fyrir því að hún verði lægri, eða 1,4 til 1,5 pró­sent. Þar ræður miklu að lægra verð á hrá­vöru alþjóð­lega og sá mikli slaki sem er að skap­ast á Íslandi toga á móti hefð­bundnum verð­bólgu­hvötum eins og geng­is­falli krón­unnar.

Auðvelda ríkissjóði að fjármagna útgjöld

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri ræddi á fund­inum um magn­bundna íhlutun Seðla­bank­ans, sem var nýverið kynnt og felur í sér upp­kaup bank­ans á rík­is­skulda­bréfum.

Hann sagði að aðgerð­inni sé nú beitt í fyrsta sinn á Íslandi en hafi verið í notkun í um tíu ár alþjóð­lega. Ákvörðun um að ráð­ast í þetta hafi verið tekin á sunnu­dag og enn eigi eftir að útfæra mörg atriði í fram­kvæmd­inni. Heim­ildin til að kaupa er 150 millj­arðar króna, sem er um fimm pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Ásgeir sagði að pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans tók ákvörð­un­ina án sam­ráðs við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið en útfærslan sé nú útfærð í sam­ráði við ráðu­neytið og rík­is­stjórn­ina.

Ástæðan fyrir því að ráð­ast í magn­bundna íhlutun núna sé að reyna að hafa áhrif á lang­tíma­kröfur á bréf. Í ljósi þess að rík­is­sjóður muni þurfa aukið fjár­magn til að standa skil á útgjöldum vegna COVID-19-far­ald­urs­ins þá sé fyr­ir­sjá­an­legt að það verði meiri útgáfa á skulda­bréfum. Aðgerðin muni ein­fald­lega auð­velda rík­is­sjóði að fjár­magna þau útgjöld sem liggi nú fyrir. „Þetta er þá að ein­hverju leyti aðgerð til að koma í veg fyrir að lang­tímakrafan muni hækka.“

Seðla­banka­stjóri sagði að ákveðnar hættur gætu fylgt þessu. Pen­inga­magn í umferð gæti auk­ist, þetta gæti valdið verð­bólgu eða lækkað gengi krón­unnar. Ásgeir telur hins vegar ekki að við yfir­stand­andi aðstæður sé sú hætta fyrir hendi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár