Ný sviðsmynd sýnir 13 prósent samdrátt á Íslandi í ár

Við­skipta­ráð telur að for­sendur sem það gefur sér til að reikna með næstum 13 pró­sent sam­drætti í ár skili sviðs­mynd sem sé „afar dökk en raunsæ“.

Hrun í komu ferðamanna til Íslands er ráðandi þáttur í þeim samdrætti sem Ísland mun upplifa á árinu 2020.
Hrun í komu ferða­manna til Íslands er ráð­andi þáttur í þeim sam­drætti sem Ísland mun upp­lifa á árinu 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Í nýju haglík­ani sem Við­skipta­ráð Íslands hefur sett fram um þróun lands­fram­leiðslu til árs­ins 2030 er gert ráð fyrir að sam­dráttur í lands­fram­leiðslu á árinu 2020 verði 12,8 pró­sent. Það sam­svarar því að hún lækki um 379 millj­arða króna á yfir­stand­andi ári. For­sendur lík­ans­ins eru meðal ann­ars þær að atvinnu­vega­fjár­fest­ing drag­ist saman um 40 pró­sent, að þjón­ustu­út­flutn­ingur, sem felur meðal ann­ars í sér ferða­þjón­ustu, minnki um 59 pró­sent og að íbúða­fjár­fest­ing drag­ist saman um 25 pró­sent. Við­skipta­ráð telur upp­hafs­sviðs­mynd­ina sem dregin er upp þegar farið er inn í líkanið sé „afar dökk en raunsæ“.

[adspot]Sú lands­fram­leiðsla á mann sem Ísland var með í fyrra, 8,2 millj­ónir króna, verður aftur náð árið 2028 miðað við sviðs­mynd­ina og mann­fjölda­spá Hagstofu Íslands. Upp­safnað tap lands­fram­leiðslu frá árinu 2019 er 1.120 millj­arðar króna sem sem nemur rekstri Land­spít­al­ans í 16 ár og öllum launum og tengdum gjöldum á Íslandi í átta mán­uði.

Í umfjöllun Við­skipta­ráðs segir að efna­hags­á­fallið sem nú dynji yfir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum sé óvið­jafn­an­legt. „Að mati flestra liggur fyrir að kreppan verði sú dýpsta í ára­tugi og jafn­vel aldir, en hversu djúp og lang­vinn er afar óljóst. Þróunin er þess eðlis að sögu­leg gögn og haglíkön fanga illa slíkan atburð. Engu að síður skiptir máli að hafa sem skýrasta mynd af þró­un­inni og þar gegnir þróun lands­fram­leiðslu (VLF) lyk­il­hlut­verki enda hefur hún afger­andi áhrif á atvinnustig, kaup­mátt, tekjur rík­is­sjóðs og margt, margt fleira. Segja má að lands­fram­leiðsla setji verð­miða á virði allrar vöru og þjón­ustu sem fram­leidd er á Íslandi.“

Hægt er að upp­færa haglíkanið, sem sett er upp í Grid hug­bún­að­inum. með því að setja inn eigin for­sendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár