Þungarokk, skemmtilegheit og „matarhimnaríki“

Stefán Magn­ús­son ætlar sér að búa til skemmti­leg­asta veit­inga­stað lands­ins í Iðu­hús­inu þar sem Hard Rock Café opnar innan tíðar. Reynslan úr þung­arokk­inu kemur að góðum notum í því verk­efni.

Stefán Magn­ús­son, íþrótta­kenn­ari, þung­arokk­ari, frum­kvöð­ull­inn að baki Eistna­flugi, veit­inga­maður og nú síð­ast fram­kvæmda­stjóri Hard Rock Café á Íslandi, stendur í ströngu þessa dag­ana. Stefnt er að opnun Hard Rock Café um mán­að­ar­mótin, áður en Iceland Airwaves hátíðin skellur á í mið­borg Reykja­víkur. Hátíðin fer fram 2. til 6. nóv­em­ber.

Þegar Kjarninn hafði sam­band við Stefán var aug­ljós­lega mikið að gera, enda stóra augna­blikið framundan: opnun stað­ar­ins með öllu sem því fylgir, 30. októ­ber.

Tilkynnt var um ráðn­ingu Stefáns í ágúst síð­ast­liðnum og greindi Nútíminn frá því að Stefán hefði verið búinn að skipu­leggja fjar­nám við Háskól­ann á Bifröst og sund­kennslu við Rétt­ar­holts­skóla og Foss­vogs­skóla þegar tæki­færið kom. „Ég fór í nokkur við­töl og end­aði þetta allt saman á því að ég var ráð­inn og er kom­inn í HRC hóp­inn sem er algjör­lega frá­bær. Allir sem eru ráðnir á HRC fara í þjálfun og ég tek næstu fimm vikur á HRC staðnum í Flórens á Ítalíu,“ sagði Stefán við Nútímann, þegar ráðn­ingin var kunn­gjörð, í ágúst síð­ast­liðnum. Nú er hann kom­inn heim frá Ítalíu, og loka­sprett­ur­inn í und­ir­bún­ingi fyrir opnun er framundan.

Skúli og Birgir í Dimmu

Á innan við tveimur mán­uðum má segja að Stefán hafi gengið í gegnum ákveð­inn hreins­un­ar­eld, til að móta sig inn í nýtt starf. Hann seg­ist vera með skýrt mark­mið fyrir Hard Rock Café í Reykja­vík. Þetta á að vera skemmti­leg­asti veit­inga­staður í borg­inni og fólk á að vilja koma aftur.

Við skulum byrja á byrj­un­inni, þung­arokk­inu. Er það þung­arokkið sem opn­aði leið­ina inn í veit­inga­brans­ann?

„Já þar byrj­aði þetta ævin­týri,“ segir Stefán. „Ég tek að mér að vera rekstr­ar­stjóri á Skúla Craft Bar og það var allt Birgi Jónssyni Trommara í Dimmu að kenna. Hann aug­lýsti eftir rekstr­ar­stjóra og ég sagði honum að þetta væri ég til í að skoða og það end­aði svo með því að ég var ráð­inn og við tók frá­bær tími. Ég fékk frá­bært starfs­fólk til að vinna á Skúla með mér og það var alveg ægi­lega gaman að vinna með þessum snill­ingum. Svo var líka svo skemmti­legt fólk sem kom á stað­inn þannig að það var aldrei leið­in­legt í vinn­unni,“ segir Stefán.

Þungarokkið á Austurlandi

Innkoma Stefáns inn í veit­inga­geir­ann er rök­rétt að þessu leyti; í gegnum trommara í þung­arokks­hljóm­sveit. Þung­arokkið hefur verið stór hluti af lífi hans eftir að hann hóf að skipu­leggja þung­arokks­há­tíð­ina Eistna­flug, sem fer fram í byrjun júlí ár hvert í Nes­kaups­stað á Aust­fjörðum. Hátíðin er þekkt fyrir gleði, mikið þung­arokk og kannski ekki síst frið­sam­lega fram­komu, þrátt fyrir mikið rokk og ról. Fyrir liggur að Eistna­flug mun hætta ef það koma upp kyn­ferð­is­brot á hátíð­inni, og er það yfir­lýst stefna. Aldrei hafa komið upp kyn­ferð­is­brot á hátíð­inni frá því hún hóf göngu sína árið 2005, og ofbeld­is­mál hafa verið sárafá og engin alvar­leg. Slag­orðið „ekki vera fáviti“ hefur kom­ist vel til gesta, sem koma fyrst og fremst til að skemmta sér og hlusta á góða tón­list á fal­legum stað.

Hátíðin þykir mikil bæj­ar­prýði og hefur gott orð­spor hennar orðið til­efni til rann­sókna við Háskóla Íslands.

Þetta hefur verið mikið ævin­týri hjá þér með Eistna­flug, og er orðið að föstum lið á hverju ári í íslensku tón­list­ar­lífi. Sérðu fyrir þér að það stækki og eflist, eða viltu kannski ekki að það verði of stórt?

„Hátíðin í sumar var sú stærsta og skemmti­leg­asta í langan tíma að mínu mati. Það var gott veður og mikil gleði svo ég var strax til í annað Eistna­flug. Þetta var svo hel­víti hressandi vika. Við komum ekk­ert mikið fleirum á hátíð­ina og gaman að sjá hvað íþrótta­húsið kemur vel út og hvað tón­leik­arnir eru glæsi­legir í þessu húsi. En ég sakna samt alltaf Egils­búðar, þar gerð­ust hlutir sem ég er stoltur af og stór kafli í rokk­sögu Íslands byrj­aði,“ segir Stefán, en Egilsbúð var hefur lengst af verið heima­völlur hátíð­ar­innar, sem nú er farin að trekkja að gesti og hljóm­sveitir erlendis frá. Hún fer fram 5. til 8. júlí á næsta ári og eru þegar fimmtán hljóm­sveitir skráðar til leiks. „Við erum alltaf að stækka en hversu mikið í við­bót veit ég ekki. Við erum orðin þekkt hátíð hjá erlendum hljóm­sveitum og lítið mál að fá stórar og þekktar hljóm­sveitir til að spila en það kostar alltaf tals­vert af pen­ingum sem við eigum ekki mikið af,“ segir Stefán.

Hvað er að fara gerast á Hard Rock?

Nú ertu kom­inn með járn í eld­inn hjá Hard Rock. Hvernig leggst þetta í þig, og hvernig staður verður Hard Rock með þig með þræð­ina í hönd­unum?

„Þetta leggst rosa­lega vel í mig og þessir tæpu þrír mán­uðireru búnir að vera mikið ævin­týri. Ég var sendur til Flórens í þjálfun og var þar í sex vikur og núna er allt að smella hjá okkur og ætlum við að opna 30. októ­ber, eins og áður sagði. Hard Rock Café Reykja­vík verður mjög skemmti­legur staður og fal­legur. Hér verður hægt að borða góðan mat, fara á tón­leika í kjall­ar­anum og svo skoða memora­bili­una á veggj­unum sem er alltaf spenn­andi og skemmti­legt. Mitt verk­efni er að við­halda góðri stemmn­ingu og góðu and­rúms­lofti á staðnum. Það verður að vera gaman og það gaman að þig langar að koma aftur,“ segir Stefán. Þetta er grund­vall­ar­at­riði í hans huga. Að búa til skemmti­legt and­rúms­loft og þar með góðar minn­ingar við­skipta­vina.

Hard Rock hluti af alþjóðlegri keðju

Staðir undir merkjum Hard Rock eru nú í um sex­tíu löndum um allan heim, en hót­el­starf­semi er einnig umfangs­mikil undir merkjum þessa þekkta vöru­merkis, en segja má að Banda­ríkin sé heima­völlur þess, þó fleiri mark­aðir séu einnig mik­il­vægir.

Verður eitt­hvað sér­ís­lenskt við stað­inn hjá ykkur?

„Já vita­skuld, við verðum með eins mikið íslenskt og við getum. Þetta er íslenskur Hard Rock Café staður og við fáum eins mikið að hrá­efni héðan og hægt er en við verðum alltaf að fá ein­hver hrá­efni að utan. Svo verðum við með “local Burger“ sem er algjör troðsla, hann er svo góður,“ segir Stefán. „En fyrir utan mat­inn þá verðum við með mikið úrval af bragð­góðum drykkjum sem þú ættir að skoða og ég skal skála við þig hvenær sem er,“ bætir hann við.

Þurfum að taka vel á móti fólki

Hard Rock verður stað­sett í hjarta ferða­þjón­ust­unnar í Reykja­vík, í Iðu­hús­inu. Vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ustu hefur gjör­breytt rekstr­ar­um­hverfi veit­inga­staða í Reykja­vík og eru erlendir ferða­menn stór hluti við­skipta­vina á þeim flestum. Búist er við því að ferða­mönnum sem heim­sækja Ísland muni fjölga um 500 þús­und á næsta ári, og verði um 2,2 millj­ónir. Á þessu eru bendir flest til þess að þeir verði um 1,7 millj­ónir.

Stefán seg­ist líta svo á að ferða­þjón­ustan sem atvinnu­grein sé að standa sig vel, en það aug­ljós­lega sjá­ist merki þess að inn­við­ina þurfi að styrkja. Læra megi af reynsl­unni í öðrum atvinnu­greinum, og þannig megi hugsa sér erlenda ferða­menn eins og „þorska“. Þeir séu verð­mætir og það þurfi að bera virð­ingu fyrir þeim. „Mér finnst ferða­þjón­ustan virki­lega vera að standa sig, en mér finnst fárán­legt að við séum ekki betur til­búin fyrir alla þessa ferða­menn. Að það sé til dæmis ekki almenni­leg sal­ern­is­að­staða á okkar vin­sæl­ustu stöðum, og að það séu ekki settir nægir pen­ingar til að við­halda þessum stöðum sem verða fyrir miklu álagi, það ein­fald­lega gengur ekki. Ferða­menn setja virki­lega skemmti­legan svip á borg­ina og gaman að sjá svona mikið líf hérna í mið­borg­inni alla daga vik­unnar. Það er klárt að ferða­mað­ur­inn er nýi þorsk­ur­inn okkar,“ segir Stefán.

Ferða­menn eru stór hluti gesta á veit­inga­stöðum í Reykja­vík, og lík­legt að svo verði áfram. Hefur þú ein­hverjar áhyggjur af ofvexti í grein­inni?

„Nei en við þurfum að vera fljót að aðlaga okkur og vera til­búin fyrir allt þetta fal­lega fólk. Það er ekki nóg að byggja bara hotel. Það þarf að laga veg­ina, vara við alls­konar hættum svo við séum ekki að „strá­fella“ fólkið þegar það mætir í heim­sókn á fal­legu eyj­una okkar,“ segir Stefán, og leggur áherslu á að ein­falda reglan eigi að vera sú að taka vel á móti fólki í því felst meðal ann­ars að tryggja öryggi og bjóða upp á góða áreið­an­lega þjón­ustu. Þetta ætli hann að hafa bak við eyrað á Hard Rock.

Matarhimnaríki

Þú nefndir að þú hefðir farið til Flórens á Ítalíu á dög­unum, eins og sjá mátti á Facebook hjá þér. Þar virt­ist þú vera að fá reynslu og læra nýja hluti. Hvernig reynsla var það og hvað er það helst sem þú tekur með þér heim úr þeirri reisu?

„Það var frá­bær tími, rosa­leg vinna og mik­ill lær­dómur. Ég var á 10 tíma vöktum og vann á öllum stöðum og reyndi að læra allt sem var verið að reyna að koma inn í haus­inn á mér. Svo eftir vakt þá var Hard Rock skóli á net­inu sem var auka vinna í fjóra tíma á dag. En þetta var rosa­lega gaman og ég eign­að­ist góða vini sem ég sakna nú þegar. Það er nefni­lega gaman að geta hlegið í vinn­unni og haft gaman og ég gerði það í 6 vikur. Það var líka magnað að fá að sökkva sér í Ítalska mat­ar­gerð. Ítalskur matur er alveg ótrú­lega góður en þá er ég líka að tala um eitt­hvað annað en bara pizzuna. Þvílík og önnur eins flóra af mat og drykk, ég var bara í mat­ar­himna­ríki. Svo ofan á það þá var það hluti af minni þjálfun að ég varð að smakka allt sem var á mat­seðl­inum á Hard Rock Café svo ég var mjög sjaldan svangur í þessar sex vikur.“

Hvaða mark­mið ertu búinn að setja þér fyrir kom­andi tíma hjá Hard Rock, eða ger­irðu kannski ekki slíkt?

„Ég er auð­vitað með mark­mið ann­ars ger­ist ekki neitt. Ég ætla að gera Hard Rock Café að skemmti­leg­asta veit­inga­stað Íslands. Er það ekki frá­bært mark­mið?“ segir Stefán að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár