Vilja að stöður sendiherra séu auglýstar

Tíu þing­menn vilja fella í burtu ákvæði í lögum sem heim­ilar und­an­þágu um að skylt sé að aug­lýsa laus störf hjá rík­inu þegar um skipun í störf ráðu­neyt­is­stjóra og sendi­herra í utan­rík­is­þjón­ust­unni er að ræða.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frumvarp til laga um breyt­ingu á lögum um utan­rík­is­þjón­ustu Íslands er varðar skipun ráðu­neyt­is­stjóra og sendi­herra hefur verið lagt fram. Fyrsti flutn­ings­maður er Björn Leví Gunn­ars­son en með honum eru níu þing­menn úr Sam­fylk­ing­unni, Pítötum og Viðreisn.

Þing­menn­irnir vilja fella í burtu ákvæði í lögum sem heim­ilar und­an­þágu frá meg­in­reglu laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins um að skylt sé að aug­lýsa laus störf hjá rík­inu þegar um skipun í störf ráðu­neyt­is­stjóra og sendi­herra í utan­rík­is­þjón­ust­unni er að ræða. 

Frum­varpið hefur verið lagt fram tvisvar sinnum áður af þing­flokki Bjartrar fram­tíðar. Það er nú end­ur­flutt og í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að það sé lagt fram í ljósi mik­il­vægis þess að störf hjá hinu opin­bera séu aug­lýst og að ráðn­ing­ar­ferlið ein­kenn­ist af gagn­sæi og jafn­ræði.

Í grein­ar­gerð­inni kemur jafn­framt fram að slík und­an­þága hafi í för með sér að ekki sé skylt að veita almenn­ingi aðgang að upp­lýs­ingum um nöfn og starfs­heiti umsækj­enda eins og almennt gildir um opin­ber störf.

Kröfur um gagnsæi munu fela í sér aðhald

„Ákvæði laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins um aug­lýs­inga­skyldu byggj­ast á jafn­ræð­is­sjón­ar­miðum um að veita beri öllum sem áhuga kunna að hafa tæki­færi til að sækja um opin­bera stöðu. Með opin­berri aug­lýs­ingu er áhuga­sömum aðilum almennt veittur mögu­leiki til að leggja inn umsókn upp­fylli þeir þau almennu hæf­is­skil­yrði sem gilda um stöð­una. Þá bygg­ist reglan á því sjón­ar­miði að með þeirri aðferð verði betur að því stuðlað en ella að ríkið eigi kost á sem flestum færum og hæfum umsækj­endum þegar ráðið er eða skipað í stöðu.

Skyldan til að veita almenn­ingi upp­lýs­ingar um umsækj­endur um opin­bert starf sé þess óskað bygg­ist á sjón­ar­miði um gagn­sæi við með­ferð opin­bers valds. Mik­il­vægt er að almenn­ingur geti veitt skip­un­ar­valds­hafa aðhald um að hann gæti að fram­an­greindum sjón­ar­miðum um jafn­ræði og hæfni þegar hann fer með það vald sitt fyrir hönd almenn­ings og í hans þágu. Verði frum­varpið að lögum munu almennar heim­ildir skip­un­ar­valds­hafa til að setja mál­efna­leg skil­yrði varð­andi hæfni umsækj­enda, með til­liti til eðlis starf­anna og þeirrar ábyrgðar sem þeim fylgir, að sjálf­sögðu eiga við eins og um önnur opin­ber störf. Kröfur um gagn­sæi munu þá fela í sér aðhald á þá leið að á þessum sjón­ar­miðum sé raun­veru­lega byggt við skipun við­kom­andi aðila,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Skipunarvald sendiherra og ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins pólitískt

Enn fremur kemur fram að hér á landi hafi tíðkast að skip­un­ar­vald sendi­herra og ráðu­neyt­is­stjóra utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sé póli­tískt og í höndum utan­rík­is­ráð­herra hverju sinni. Ekki liggi fyrir skýr við­mið sem leggja skuli til grund­vallar og sé skip­un­ar­ferlið ógagn­sætt. Hjá öðrum Norð­ur­landa­þjóðum sé þessu öðru­vísi háttað.

„Í Danmörku, Noregi og Finn­landi tíðkast ekki að ein­stak­lingar sem ekki starfa þegar innan utan­rík­is­þjón­ust­unnar séu skip­aðir í störf sendi­herra án þess að staðan hafi áður verið aug­lýst laus til umsóknar. Almennt eru lausar stöður sendi­herra aug­lýstar innan utan­rík­is­þjón­ust­unnar þannig að starfs­mönnum hennar gef­ist kostur á að sækja um. Ákvörðun um skipun er svo tekin á grund­velli fag­legs mats á hæfi, árangri og frammi­stöðu umsækj­enda, jafn­vel að und­an­geng­inni til­lögu til rík­is­stjórnar, kon­ungs­valds eða for­seta. Er því ljóst að mun skýr­ari við­mið eru þar um slíkar ákvarð­anir en hér á landi.“

Um veigamikla almannahagsmuni að ræða

Í grein­ar­gerð­inni segir að telja verði að þau sjón­ar­mið sem búa að baki skyld­unni til að aug­lýsa opin­ber störf og birta upp­lýs­ingar um umsækj­endur sé þess óskað hafi mjög mikið vægi með til­liti til vand­aðrar stjórn­sýslu í þágu almenn­ings, jafn­ræðis og gagn­sæis við með­ferð opin­bers valds. Hér sé því um mjög veiga­mikla almanna­hags­muni að ræða sem eigi jafnt við þegar skipað sé í stöður í utan­rík­is­þjón­ust­unni og endranær. Sendi­herrar og ráðu­neyt­is­stjóri utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sinni afar mik­il­vægum störfum og verk­efnum í þágu þjóð­ar­innar og því sé mjög mik­il­vægt að val í þau störf bygg­ist á hæfni og að jafn­ræðis sé gætt. Þá skipti máli að ákvörð­un­ar­fer­ill­inn sé gagn­sær og haf­inn yfir vafa og tor­tryggni eins og hægt er. Frum­varpið sé liður í því að auka gagn­sæi og aðhald í þessum efnum.

Gera megi ráð fyrir að þeir sem starfað hafa í utan­rík­is­þjón­ust­unni um ára­bil búi almennt þegar yfir hæfni og reynslu sem nauð­syn­leg er til að sinna störfum sendi­herra og ráðu­neyt­is­stjóra. Um til­flutn­ing slíkra aðila án aug­lýs­inga­skyldu muni með breyt­ing­unni gilda almennar reglur um til­flutn­ing milli emb­ætta hjá hinu opin­bera líkt og hjá öðrum ráðu­neytum. Við beit­ingu þess­arar heim­ildar sé ráð­herra þó sem endranær skylt að líta til hæfni þeirra sem skip­aðir eru með til­liti til þarfa utan­rík­is­þjón­ust­unnar og ann­arra mál­efna­legra og lög­mætra ástæðna sem gæta ber að við ráðn­ingu og skipun í opin­ber störf og stöður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár