Tóku völdin en misstu áhrifin

Tíu árum eftir að Bretar kusu að ganga úr Evrópu­sambandinu greiða Íslendingar atkvæði um hvort hefja eigi aðildar­viðræður við sambandið að nýju. Hvaða áhrif hafði útgangan á breskt samfélag og hvaða lexíu geta Íslendingar lært af henni?

Föstudags­morguninn 24. júní árið 2016 vöknuðu gestir tónlistar­hátíðarinnar Glastonbury í miðju forar­svaði. Skipuleggjandi hátíðarinnar kvaðst aldrei hafa upplifað aðra eins rigningartíð.

Ekki leið á löngu uns síma­skjáir tóku að lýsast upp í tjöldum með fréttum af því sem margir sáu sem óeiginlegt þrumuský. Niður­staða þjóðar­atkvæða­greiðslu, sem hafði farið fram daginn áður, lá fyrir. Bretar höfðu kosið að ganga úr Evrópu­sambandinu.

Ekki aðeins himnarnir grétu á Glastonbury sumarið 2016 heldur gestirnir líka; samkvæmt könnun The Times höfðu 83% hátíðar­gesta kosið gegn útgöngunni.

Þegar Chris Martin, söngvari Coldplay, steig á svið þakkaði hann gestum fyrir að umbera úrhellið, drulluna og hrun landsins.

Fimm hundruð kíló­metrum norðar í Sunderland kvað við annan tón. Tölur frá hafnar­borginni voru fyrsta vísbending um öruggan sigur útgöngu­sinna. „Hlutirnir verða að fara að breytast,“ sagði Jim Oliver, fyrr­verandi málari, við blaðamann Guardian. Hann kvaðst binda vonir við að framtíðin væri björt, en …

Kjósa
93
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið undanfarið ár