Sigmundur Davíð hæddist að ríkisstjórninni

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins var ekki ánægður með nýju rík­is­stjórn­ina á fyrsta fundi Alþingis á árinu. Sagði hana stjórn rík­is­út­gjalda sem ausi pen­ingum í gölluð kerfi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins lýsti yfir von­brigðum með fyrstu vikur nýrrar rík­is­stjórnar í starfi. Sig­mundur ræddi stöð­una í stjórn­málum og verk­efnin framundan á fyrsta fundi Alþingis á nýju ári í dag.

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra sagði rík­is­stjórn­ina ekki stjórn mik­illa breyt­inga, ekki stjórn stórra lausna heldur stjórn til að halda í horf­inu og eyða pen­ingum.

Sig­mundur hædd­ist að því að stjórn­ar­sátt­mál­inn héti ekki stjórn­ar­sátt­máli heldur sátt­máli um sam­starf þriggja flokka og efl­ingu Alþingis.

Hann efað­ist um vilja stjórn­ar­innar til að efla Alþingi á þeim grund­velli að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar séu nú hver og einn að ráða sér tvo aðstoð­ar­menn, en þeir hafi aldrei verið fleiri. Rík­is­stjórnin hafi að auki sett umtals­verða fjár­muni í önnur póli­tísk verk­efni á þeirra vegum en heild­ar­aukn­ing við kostnað rík­is­stjórn­ar­innar sé 50 pró­sent. Verið sé að styrkja póli­tíska stöðu flokk­anna sem mynda stjórn­ina - sem reyndar veiti ekki af til að veita henni aðstoð til að útskýra út á hvað þetta stjórn­ar­sam­starf gengur.

Á móti fái Alþingi víst að ráða einn nýjan starfs­mann. Það sé nið­ur­staða rík­is­stjórn­ar­innar um efl­ingu Alþingis.

Það sé sjálf­stætt mark­mið að auka útgjöld rík­is­ins, líkt og fram hafi komið í ræðu Katrínar Jak­obs­dóttur við upp­haf þing­fundar, en staða þings­ins verði ekki styrkt. Það hafi komið ber­sýni­lega í ljós þegar skipað var í nefndir þings­ins, þar sem stjórn­ar­and­staðan fékk ekk­ert umfram það sem hún átti rétt á. Auk þess hafi ekki ein til­laga stjórn­ar­and­stöð­unnar til breyt­inga á fjár­lögum verið sam­þykkt.

„Eina sem hún [rík­is­stjórnin] getur gert er að ausa pen­ingum í gölluð kerfi,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár