The Guardian skilar loksins hagnaði

Aukinn lestur á vef­miðli The Guardian og frjáls fram­lög frá les­endum spil­uðu stóra rullu í að mið­il­inn sé orð­inn sjálf­bær eftir erf­iða tíma.

Höfuðstöðvar The Guardian í London
Höf­uð­stöðvar The Guardian í London Mynd: Wiki Commons

Frétta­mið­ill­inn The Guardian skil­aði rekstr­ar­hagn­aði fyrir fjár­hags­árið 2018 til 2019 upp á 800.000 pund eða 127,6 millj­ónir íslenskra króna, sam­an­borið við 57 millj­óna punda tap síð­ustu þrjú árin þar á undan. Frá þessu er greint í frétt The Guardian í dag.

Þetta er í fyrsta skipti í nokkurn tíma sem mið­ill­inn nær að vera hinum megin við núllið en í frétt­inni segir að ástæðan fyrir breyttri fjár­hags­stöðu sé met­að­sókn í vef­inn, minni kostn­aður og aukin fjár­fram­lög frá les­end­unum sjálfum.

Samkvæmt miðl­inum styrkja 655.000 manns hann mán­að­ar­lega en ásamt því höfðu 300.000 manns styrkt hann í eitt skipti á síð­asta ári.

Athygli vekur að lestur á vef­miðl­inum hefur auk­ist til muna síð­ustu þrjú árin, úr 790 millj­ónum flett­ingum á mán­uði í jan­úar 2016 í 1,35 millj­arð flett­inga í mars 2019.

Kathar­ine Viner, sem gegnir rit­stjóra­stöðu hjá The Guardian, segir að á tímum óvenju­legs póli­tísks og efna­hags­legs umróts hafi þörf fyrir góða og sjálf­stæða blaða­mennsku og frétta­skýr­ingar aldrei verið meiri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár