Fréttir

Greiddu 17 millj­ónir fyrir skýrslu um stöðu drengja

Skýrsla um stöðu drengja í skóla­kerf­inu sem unnin var að beiðni mennta- og barna­mála­ráð­herra og háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra kost­aði sam­an­lagt um 13,7 millj­ónir króna auk virð­is­auka­skatts og hljóðar heild­ar­upp­hæðin því upp á rúmar 17 millj­ónir. Tryggvi Hjalta­son, grein­andi hjá CCP, er eini höf­undur skýrsl­unnar. Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist hann hafa unnið að skýrsl­unni sam­hliða öðrum störfum en vinnan tók um eitt og hálft ár.
GreiningMillistétt í molum

Með­al­laun segja ekki allt varð­andi kjör fólks í land­inu

Reglu­lega er tölum um með­al­laun Íslend­inga fleygt fram í umræð­unni og þau gjarnan sögð vera óvenjuhá í sam­an­burði við önnur lönd. Í fyrra voru heild­ar­laun full­vinn­andi fólks að með­al­tali 935.000 þús­und krónur á mán­uði. Hins vegar fær flest starf­andi fólk mán­að­ar­laun sem eru lægri en þetta með­al­tal. Að ýmsu þarf að gæta þegar með­al­talið er rætt því hlut­fallið segir ekki alla sög­una.
FréttirSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Svör Íslands til ESA óljós - svör­uðu með hlekk á laga­safn þings­ins

Íslensk stjórn­völd svara því ekki með afger­andi hætti í svari til ESA hvort þau telji sam­keppn­isund­an­þágur sem alþingi sam­þykkti í vor, stand­ast EES-samn­ing­inn. Loðin og óskýr svör eru við flestum spurn­ingum ESA. Mat­væla­ráðu­neytið svar­aði spurn­ingum um harð­ort bréf sitt til Alþingis með því að senda ESA bréfið og hlekk á laga­safn þings­ins.

Mest lesið undanfarið ár