Rétt hilla
Mynd dagsins

Rétt hilla

Á Hring­braut­inni keppt­ist þessi hjól­reiða­kappi listi­lega á móti norð­an­garr­anum með for­láta hillu. Samkvæmt nýrri reglu­gerð umhverfis- og sam­göngu­ráð­herra mega vera allt að fimm manns á einu hjóli, með tengi­vagni. Ekki má flytja hluti á reið­hjólum sem geta valdið veg­far­endum óþæg­indum. Samkvæmt reglu­gerð­inni skulu reið­hjól vera búin bjöllu, en mega ekki hafa annan búnað sem gefur frá sér hljóð.
Gísli, Eiríkur og Helgi
Mynd dagsins

Gísli, Eiríkur og Helgi

Á bæ þeim sem á Bakka heitir í Svarf­að­ar­dal, bjuggu þrír bræður sem voru orð­lagðir fyrir heimsku og heimsku­pör. Þeir Bakka­bræður hétu Gísli, Eiríkur og Helgi. Fyrir átta árum fengu þeir bræður kaffi­hús, safn og bar í hjarta Dalvíkur. Það verður nóg að gera hjá þeim bræðrum að moka frá inn­gang­inum, áður en opnar í hádeg­inu á föstu­dag. Kaffihús Bakka­bræðra er bara opið um helgar nú í svartasta skamm­deg­inu.
Ekki græna glóru hvað báturinn heitir
Mynd dagsins

Ekki græna glóru hvað bát­ur­inn heitir

Þetta tæp­lega hund­rað ára gamla hús á Hofsósi vekur alltaf hjá manni margar spurn­ingar. Eru eig­end­urnir ekki sam­mála um eitt eða neitt, eða eru þeir sam­stíga að svona eigi þessi bygg­ing að líta út, fal­leg og umfram allt öðru­vísi, eins og veðrið í Skaga­firði í dag? Í Fljót­unum var öskr­andi bylur, á Hofsósi smá snjó­koma, meðan Glóðafeykir var bað­aður í stillu og sól í 14 stiga frosti. Í Vatns­skarð­inu var norðan garri.
Hundrað fimmtíu og átta ára
Mynd dagsins

Hundrað fimm­tíu og átta ára

Það var norð­an­bál við Úlf­ljóts­vatn í morgun, en við þetta 4 km langa vatn stendur kirkja sem kennd er við vatnið. Kirkjan sjálf var byggð úr timbri árið 1863 og síðan var turn­inum bætt við 98 árum seinna. Hún er ein af rúm­lega 360 kirkjum í lýð­veld­inu - það er sem­sagt eitt guðs­hús fyrir hverja þús­und íbúa þessa lands. Vatnið er kennt við Úlfljót, fyrsta lög­sögu­mann Íslend­inga, en eftir honum voru einnig fyrstu almennu lög lands­ins nefnd, Úlf­ljótslög.
Tvö þúsund tonn af vatni
Mynd dagsins

Tvö þús­und tonn af vatni

Það streymdu inn 500 lítrar á sek­úndu af köldu vatni inn í bygg­ingar Háskóla Íslands snemma í morgun, eftir að rof varð á aðal­kalda­vatnsæð Veitna við Suð­ur­götu í nótt. Lang­mesta tjónið varð á Háskóla­torgi og Gimli, þar sem raf­magn fór af öllu hús­inu eftir að vatn flæddi upp í raf­magns­töflu húss­ins. Hand­ritin á Árna­stofnun eru óskemmd. Háskóli Íslands er ekki tryggður fyrir þessu mikla tjóni.

Mest lesið undanfarið ár