Hjartans kveðja frá Reykjanesi
Mynd dagsins

Hjartans kveðja frá Reykja­nesi

Þessi ferða­langur á Bleik­hóli, við suð­ur­enda Kleif­ar­vatns, ætl­aði að finna fyrir honum stóra sem kom svo ekki. Það voru fáir á ferli, enda hafa Almanna­varnir beint því til fólks að vera ekki að þvæl­ast að óþörfu um mið­bik Reykja­nesskag­ans. Krýsu­vík­ur­kerfið er undir sér­stöku eft­ir­liti vís­inda­manna, því það teygir anga sína inn á höf­uð­borg­ar­svæðið. Síðdegis í gær mæld­ust litlir skjálftar óþægi­lega nálægt Krýsu­vík­ur­svæð­inu, sem er áhyggju­efni vís­inda­manna.
Tæpir tuttugu milljarðar
Mynd dagsins

Tæpir tutt­ugu millj­arðar

Hann virkar ekki stór, hjól­reiða­mað­ur­inn sem dáist að Venusi frá Vopna­firði landa loðnu hjá Brim í Akra­nes­höfn nú í morgun. Íslensk upp­sjáv­ar­skip mega í ár, eftir tvær dauðar ver­tíðir, veiða tæp sjö­tíu þús­und tonn af loðnu, sem gerir um 20 millj­arða í útflutn­ings­verð­mæti. Verð­mæt­ust eru loðnu­hrognin, en á seinni mynd­inni má sjá hvernig þau eru unnin fyrir fryst­ingu á Jap­ans­markað. Kíló­verðið á hrogn­unum er um 1.650 krónur, sem er met.
Þá var kátt í höllinni
Mynd dagsins

Þá var kátt í höll­inni

Í morgun var byrjað að bólu­setja með 4.600 skömmtum frá Pfizer, ald­urs­hóp­inn 80 ára og eldri í Laug­ar­dals­höll­inni. Hér er Arn­þrúður Arn­órs­dóttir fædd 1932 að fá sinn fyrsta skammt. Alls hafa nú 12.644 ein­stak­lingar verið full bólu­settir gegn Covid-19, frá 29. des­em­ber, þegar þeir fyrstu fengu spraut­una. Ísland er í fjórða neðsta sæti í Evrópu með 1.694 smit á hverja 100 þús­und íbúa, Finnar eru lægstir með ein­ungis 981 smit á hverja 100 þús­und íbúa. Andorra er með flest smit á heims­vísu, eða 14.116 smit á hverja 100 þús­und íbúa.
Skjálfandi jörð
Mynd dagsins

Skjálf­andi jörð

Síðan skjálfta­hrinan byrj­aði síð­ast­lið­inn mið­viku­dag hafa rúm­lega 11.500 skjálftar mælst á Reykja­nes­inu. Og heldur er að bæta í því á fyrstu tólf tímum dags­ins í dag (1. mars) hafa mælst yfir 1500 skjálftar, þar af 18 af stærð­inni 3.0 eða stærri. Virknin í dag er stað­bundin en flestir skjálft­ana eiga upp­tök sín við Keili og Trölla­dyngju, sem er skammt frá Sand­fellsklofa þar sem er mynd dags­ins er tekin.
„Það eina sem ég vildi var að deyja“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Það eina sem ég vildi var að deyja“

Ásta Önnu­dóttir, sem var vistuð um tveggja ára skeið á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, lýsir því að hún hafi orðið fyrir slíku and­legu ofbeldi þar að það hafi dregið úr henni lífs­vilj­ann. Hún hafi verið glað­vært barn en fram­koman í hennar garð á heim­il­inu hafi barið alla gleði úr henni. Það sé fyrst nú, im tveimur ára­tugum síðar, sem hún sé að jafna sig.

Mest lesið undanfarið ár