Helga Vala vill frysta eignir Samherja

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar kallar eftir því að Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra stígi til hliðar á meðan Namib­íu­málið er til rann­sóknar. „Hér er ekki um ein­hverja sjoppu að ræða heldur millj­arða­fyr­ir­tæki.“

Helga Vala vill frysta eignir Samherja
Helga Vala Helga­dóttir Þing­maður vill að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra stígi til hliðar. Mynd: Alþingi

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vill að eignir Samherja verði frystar á meðan rann­sókn stendur yfir vegna Namib­íu­máls­ins. Þá vill hún að Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Samherja stígi til hliðar á meðan málið er til skoð­unar.

„Í mínum huga kemur ekk­ert annað til greina en að eignir Samherja verði frystar núna strax á meðan á rann­sókn stendur,“ skrifar Helga Vala á Facebook. „Um er að ræða rann­sókn á mögu­legu mútu­broti, pen­inga­þvætti og skatta­laga­brotum. Hér er ekki um ein­hverja sjoppu að ræða heldur millj­arða­fyr­ir­tæki með umtals­verð umsvif í fjölda ríkja og skatta­skjóls­svæðum. Minni á að eignir dæg­ur­laga­hljóm­sveit­ar­innar Sig­ur­rósar voru frystar vegna rann­sóknar á meintum skatta­laga­brotum hljóm­sveit­ar­með­lima sem varð­aði nokkra tugi/hund­ruð millj­óna.“

Kristján Þór Júl­í­us­son var stjórn­ar­for­maður Samherja um ára­bil, en er nú sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Kristján Þór kom á fund með namibísku þre­menn­ing­unum í höf­uð­stöðvum Samherja árið 2014 og kynnti Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, hann fyrir þeim sem „sinn mann“.

„Þá tel ég heldur ekk­ert annað koma til greina en að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Samherja stígi til hliðar á meðan á rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara stendur enda málið algjör­lega for­dæma­laust,“ skrifar Helga Vala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár